„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mættu í þrefalt útgáfuboð: Popp og partý í Bíó Paradís

Það er helj­ar­innar veisla framundan hjá bókaunn­endum, rit­höf­undum og útgef­endum í aðdrag­anda jóla­ver­tíðar með útgáfu­boðum, upp­lestrum og fleiri við­burðum.

Mættu í þrefalt útgáfuboð: Popp og partý í Bíó Paradís

Í dag standa Benedikt, Bóka­beitan og Forlagið saman að útgáfu­boði og eru allir vel­komnir í Bíó Paradís kl. 17 til að kynna sér bækur Hildar, Ragn­hildar og Þórdísar.
Búast má við hörku­skemmtun þar sem höf­undar munu lesa upp á meðan gestir gæða sér á glóð­volgu popp­korni sem hægt er að skola niður með bjór eða sóda­vatni.

Nornin eftir Hildi Knúts­dóttur

Alma Khan veit ekki af hverju henni, óbreyttum nítján ára starfs­manni í baunahúsinu á Hell­is­heiði, er boðið starf í einka­gróðurhúsi hinnar heims­frægu Dr. Olgu Ducaróvu. Helst dettur henni í hug að það teng­ist eitt­hvað Kríu ömmu hennar, sem þekkir Olgu eftir alræmdan leið­angur þeirra til Mars. Þegar Alma kynn­ist svo hinni leynd­ardómsfullu Indru umturn­ast lífið end­an­lega. Árið er 2096 og náttúran er óútreikn­an­leg. Gamli mið­bær­inn er afgirtur og þar standa fúin hús í flæð­armálinu. Eitt þeirra á amma Ölmu og eng­inn skilur hvers vegna það er henni svona mik­il­vægt.

Nornin er fram­hald Ljónsins sem kom út í fyrra. Ljónið hlaut Barnabókaverð­laun Reykjavíkur og var til­nefnd til Íslensku bókmennta­verð­laun­anna. Hildur Knútsdóttir hefur skrifað fjölda vin­sælla ung­mennabóka og hlotið fyrir mikið lof gagnrýnenda.

Villu­eyjar eftir Ragn­hildi Hólm­geirs­dóttur

Frá því Arilda man eftir sér hefur skól­inn verið hennar annað heim­ili. Hún hefur aldrei velt því fyrir sér hvers vegna hann standi á eyju sem ann­ars er í eyði, ekki fyrr en dag­inn sem hún heldur inn á miðja eyj­una og villist í þokunni. Smám saman rennur það upp fyrir Arildu að hún getur engum treyst. Hún verður sjálf að leita svara, ekki bara um hryll­ing­inn sem býr á Útsölum heldur einnig um sína eigin fjöl­skyldu.

Villu­eyjar er önnur bók höf­undar en sú fyrsta, Kop­ar­borgin, hlaut Barna­bóka­verð­laun Reykja­vík­ur­borgar og til­nefn­ingu til Barna- og ung­linga­bóka­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs og Fjöru­verð­laun­anna.

Randalín, Mundi og leynd­ar­málið eftir Þórdísi Gísla­dóttur

Í þess­ari fjórðu bók um Randalín og Munda segir frá spenn­andi og lær­dóms­ríkum ævin­týrum skemmti­legra krakka. Randalín og Mundi eign­ast nýja vini, kom­ast að leynd­ar­máli nágranna síns, stofna hljóm­sveit og átta sig á að hlut­irnir eru ekki alltaf eins og fólk heldur í fyrstu.

Randalín, Mundi og aft­ur­göng­urnar eftir Þórdísi Gísla­dóttur og Þórarin M. Bald­urs­son var til­nefnd til Fjöru­verð­launa árið 2016. Þar að auki hefur Þórdís hlotið Fjöru­verð­launin, bók­mennta­verð­laun kvenna, fengið þrjár til­nefn­ingar til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna, til­nefn­ingu til íslensku þýð­ing­ar­verð­laun­anna og ljóða­bókin Óvissu­stig hlaut til­nefn­ingu til Maí­stjörn­unnar, ljóða­bóka­verð­launa Rit­höf­unda­sam­bands Íslands og Lands­bóka­safns

Við­burður á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðburður

Tendrun friðarsúlunnar – Boðið er upp á fríar ferjusiglingar
Innlentviðburður

Tendrun frið­ar­súl­unnar – Boðið er upp á fríar ferju­sigl­ingar

Frið­ar­súlan í Viðey verður tendruð í 15. sinn með frið­sælli athöfn á fæð­ing­ar­degi John Lennon laug­ar­dag­inn 9. októ­ber klukkan 20.00. Yoko Ono býður upp á fríar sigl­ingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfa­bakka frá kl. 18.00 til 19.30. Fyrsta ferja eftir tendrun Frið­ar­súl­unnar siglir frá Viðey kl. 20.30. Frið­ar­súlan mun varpa ljósi upp í him­in­inn til 8. des­em­ber sem er...
Fagna fertugsafmæli Harrys í þrjá daga
Innlent

Fagna fer­tugs­af­mæli Harrys í þrjá daga

Vin­sæl­asti galdra­strákur allra tíma, Harry Potter, verður fer­tugur á morgun, 31. júlí, og af því til­efni efnir Amt­bóka­safnið á Akureyri til þriggja daga Pott­er­há­tíðar. „Þetta er stóraf­mæli, það þarf að tjalda öllu til,“ segir Hrönn Björg­vins­dóttir, ung­menna­bóka­vörður á Amts­bóka­safn­inu og skipu­leggj­andi hátíð­ar­innar, í sam­tali við RÚV. Harry Potter er sam­kvæmt sög­unni fæddur 31. júlí 1980 og reyndar er 31. júlí...
Hildur mun svara spurningum áhugasamra í gegnum Skype
Innlentviðburður

Hildur mun svara spurn­ingum áhuga­samra í gegnum Skype

Tón­skáldið Hildur Guðna­dóttir fer yfir feril sinn, verk, rann­sóknir og vinnu­að­ferðir á opn­un­ar­kvöldi Hug­ar­flugs 2020, þann 13. febr­úar. Hildur mun spjalla við Fríðu Björk Ingv­ars­dóttur, rektor Lista­há­skóla Íslands, í gegnum Skype á við­burð­inum. Við­burð­ur­inn hefst klukkan 17.00 í hús­næði Lista­há­skóla Íslands, Laug­ar­nes­vegi 91, í stóra sal L223. Beint streymi verður þá frá við­burð­inum á live.lhi.is. Áhuga­sömum bíðst nú til að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins