„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Útkoman verður stundum súrrealísk“

Mynd­list­ar­konan Helga Páley Frið­þjófs­dóttir opn­aði sýn­ing­una Innan girð­ingar í Ásmund­ar­sal um helg­ina. „Þetta eru allt tví­víð verk, mál­verk á plötu og verk sem eru skorin út í við. Hress og kaó­tísk verk í bland við minimal­ísk verk,“ segir Helga þegar hún er spurð út í hvernig verk hún sýnir.

„Útkoman verður stundum súrrealísk“
Mynd / Aðsend / Mynd / Kristín Pét­urs­dóttir||||

Sýning Helgu er hluti af sýn­inga­ser­í­unni Í Kring, verk sýn­ing­ar­innar hanga uppi á þremur stöðum, þ.e. á Reykja­vík Roasters á Kárastíg 1, í Braut­ar­holti 2 og á Ásmund­ar­sal.

„Hug­myndin að sýn­ing­unni kom út frá bygg­ing­ar­svæðum. Ég hjóla fram hjá nokkrum á leið upp á vinnu­stof­una mína og finnst gaman að sjá allt bygg­ing­ar­efnið sem er notað. Fyrir mér hafa þessi plast­rör og stál­bitar engan aug­ljósan til­gang, ólíkt því þegar þú gengur um hverfið þitt þar sem þú rekst t.d. á bekki og sól­palla og allt er ein­hvern veg­inn full­mótað,“ segir Helga.

Mynd­list­ar­konan Helga Páley opn­aði sýn­ing­una Innan girð­ingar um helg­ina.

„Þessi svæði gefa eins­konar leyfi fyrir óreiðu og eru milli­bils­á­stand fyrir eitt­hvað var­an­legt. Allt ferlið á bak við það að byggja hús er eftir ströng­ustu verk­reglum enn fyrir utan­að­kom­andi er þetta ekki eins skýrt.“

Bygg­ing­ar­svæði hafa lengi heillað Helgu. „Þegar ég var krakki þá voru bygg­ing­ar­svæði mest spenn­andi leik­völl­ur­inn. Þá gaf maður hlutum nýjan til­gang. Með þess­ari sýn­ingu er ég að leika mér með þessi form og efni og leyfi mér að skálda og leika mér með þau. Útkoman verður stundum súr­r­eal­ísk.“

„Í stað­inn fyrir að nota bygg­ing­ar­efnið til að byggja hús fór ég að stafla þeim upp í píramída og búa til skúlp­t­úra.“

„Þetta eru allt tví­víð verk, mál­verk á plötu og verk sem eru skorin út í við.“

Aðspurð hvaðan inn­blást­ur­inn kemur segir Helga: „Frá svo mörgu, þarf ekki að vera merki­legt stundum er það ein­hver litur eða áferð sem kitlar mann og getur verið kveikjan að næstu mynd. Um dag­inn var ég að vinna á Ill­u­strator sem mér fannst mjög frústrer­andi því þar þarf maður að hugsa meira í formum enn línum. Ég varð að vinna innan ein­hverra tak­markanna frá því sem maður kann og finna nýjar leiðir að loka­út­kom­unni,“ útskýrir Helga.

Hún tekur þá inn­blást­ur­inn að sýn­ing­unni Innan girð­ingar sem dæmi:

„Þegar ég var að vinna í Ill­u­strator var það skemmti­leg­asta sem ég gerði að búa til einn hlut og stafla honum ofan á annan, gera þannig eitt­hvað mjög heimsku­legt en svo full­nægj­andi. Þetta yfir­færð­ist svo í verkin á sýn­ing­unni því þar fór ég að stafla formum ofan á hvort annað. Í stað­inn fyrir að nota bygg­ing­ar­efnið til að byggja hús fór ég að stafla þeim upp í píramída og búa til skúlp­t­úra.“

Mynd / Aðsend

Áttu þér upp­á­halds­verk á sýn­ing­unni?

„Haug­ur­inn með der­húf­una. Þetta er abstrakt verk, en með því að setja der­húfu inn á það tekur það ein­hvern veg­inn alvar­leik­ann af því og gerir það hress­ara. Enn ann­ars er það oft­ast nýjasta verkið sem er í upp­á­haldi, því þá hugsar maður já, þetta er að koma og það heldur manni spenntum fyrir fram­hald­inu.“

Helga Páley verður með leiðsögn og spjall um sýn­ing­una á föstu­dag­inn, 15. nóvem­ber, klukkan 17:00 í Braut­ar­holti 2.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sýning

Sýningin Jólin hans Hallgríms slær í gegn í Hallgrímskirkju: „Börnunum fannst svo gaman“
Menning

Sýningin Jólin hans Hall­gríms slær í gegn í Hall­gríms­kirkju: „Börnunum fannst svo gaman“

Jóla­sýn­ingin Jólin hans Hall­gríms hafa slegið í gegn í Hall­gríms­kirkju í des­em­ber. Í frétta­til­kynn­ingu frá Hall­gríms­kirkju segir að sýn­ingin Jólin hans Hall­gríms hafi slegið ræki­lega í gegn í des­em­ber en nú þegar hafa um 600 börn á aldr­inum þriggja til tólf ára séð sýn­ing­una. Sýningin byggir á sam­nefndri bók Stein­unnar Jóhann­es­dóttur en þetta er í níunda skiptið sem hún er...
List til styrktar góðu málefni – ætlar þú að vera með?
Mannlífið

List til styrktar góðu mál­efni – ætlar þú að vera með?

Litla Hönnunar Búðin og Litla Gallerý ætla að vera með upp­boð í Litla Gallerýi, þann 2. októ­ber næst­kom­andi til styrktar Mæðra­styrks­nefnd Hafn­ar­fjarðar. Upp­boðs­sýn­ing mun standa yfir dag­ana 2.-17.októ­ber í Litla Gallerýi við Strand­götu 19 í Hafn­ar­firði en gall­erýið er stað­sett inn af Litlu Hönn­un­ar­búð­inni. Gestir og gang­andi geta komið og boðið í verkin á meðan sýn­ingu stendur en allur ágóði...
100% Ull – sýning í Hönnunarsafni Íslands
Mannlífið

100% Ull – sýn­ing í Hönn­un­ar­safni Íslands

Ull er klass­ískur, nátt­úru­legur efni­viður með óend­an­lega mögu­leika. Á sýn­ing­unni getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönn­uðir og hand­verks­fólk er að fást við í dag. Þátt­tak­endur sýn­ing­ar­innar koma frá ólíkum sviðum hönn­unar og hand­verks en eiga það sam­eig­in­legt að vinna af hug­vits­semi með íslensku ull­ina í sínum afurðum. Þátt­tak­end­urnir eru: Ást­hildur Magn­ús­dóttir, vef­ari; Magnea Ein­ars­dóttir, fata­hönn­uður;...
Villiblómið og Borgarhljóðvist í formi ensks lystigarðs – haustsýningar í Hafnarborg
Mannlífið

Villi­blómið og Borg­ar­hljóð­vist í formi ensks lysti­garðs – haust­sýn­ingar í Hafn­ar­borg

Haust­sýn­ingar árs­ins 2020 í Hafn­ar­borg bera heitið Villi­blómið og Borg­ar­hljóð­vist og opn­uðu þær þann 29. ágúst síð­ast­lið­inn. Í aðal­sal húss­ins fer sýn­ingin Villi­blómið fram en sýn­ing­ar­stjórar eru Becky Forsythe og Penelope Smart. Sýningin byggir á sam­starfi alþjóð­legra lista­manna frá Kanada og Íslandi en þeir beina sjónum sínum að plöntu­rík­inu og birt­ing­ar­myndum blóma á norð­ur­slóðum. Sýn­ing­ar­sal­ur­inn umbreyt­ist í engi fag­urra blóma,...
Innlent

Árleg sýn­ing Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands opnar á mánu­dag­inn

Myndir árs­ins er árleg sýn­ing Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands sem opnuð verður í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur 11. maí. Á sýn­ing­unni í ár eru 96 myndir frá liðnu ári sem valdar voru af óháðri dóm­nefnd úr 836 inn­sendum myndum íslenskra blaða­ljós­mynd­ara. Myndunum er skipt í 7 flokka sem eru frétta­myndir, dag­legt líf myndir, íþrótta­myndir, por­trett­myndir, umhverf­is­myndir, tíma­rita­myndir og myndaraðir. Í hverjum flokki valdi dóm­nefndin...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins