Aðgangur ókeypis. Engin skráning. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Barinn verður opinn.

Nánar um Vorið vaknar:
Rokksöngleikurinn Vorið vaknar hlaut 8 Tony verðlaun þegar hann var frumsýndur á Broadway árið 2006. Söngleikurinn hefur síðan farið sigurför um heiminn en verður nú í fyrsta skipti fluttur af atvinnuleikhúsi á Íslandi. Í aðalhlutverkum eru Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir og Þorsteinn Bachmann. Leikstjóri er Marta Nordal, tónlistarstjóri Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson og danshöfundur er hinn margverðlaunaði Lee Proud frá West End.


























Athugasemdir