Hljómsveitin Of Monsters and Men (OMAM) er á tónleikaferðalagi um Norður-Ameríku. Í gær kom sveitin fram í hinum sívinsæla þætti The Ellen DeGeneres Show og flutti lagið sitt Alligator.
Frammistaða OMAM var stórkostleg og fengu allir í salnum eintak af nýjustu plötu sveitarinnar, Fever Dream.
Platan kom út 26. júlí og rauk beint upp í níunda sæti Billboard 200-listans. Næstu tónleikar OMAM eru á morgun, 26. september í Seattle.
Hægt er að sjá Omam taka lagið hjá Ellen hér fyrir neðan.




















Athugasemdir