„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Alveg hægt að sinna tónlist samhliða leiklist

Söng- og leik­konan Silja Rós frum­sýnir glæ­nýtt tón­list­ar­mynd­band við lagið sitt Who am I sem er af fyrstu plötu söng­kon­unnar sem kom út árið 2017.

Alveg hægt að sinna tónlist samhliða leiklist

Síð­ast­liðið ár hefur verið ansi við­burð­ar­ríkt hjá Silju en hún hefur starfað sem söng- og leik­kona í Hollywood.

„Margir hafa spurt mig hvort ég sé meiri leik­kona eða söng­kona en ég hef aldrei getað valið á milli og mér finnst ég ekki þurfa þess. Báðar starfs­grein­arnar hald­ast mjög vel í hendur. Mér finnst ég hafa meiri stjórn þegar kemur að tón­list­inni þar sem ég er óháð­ari öðru fólki. Ég sem alla mína tón­list og texta sjálf og hef svo ráðið upp­töku­stjóra til að hjálpa til við það ferli.

„Báðar starfs­grein­arnar hald­ast mjög vel í hendur.“

Leik­list­ar­verk­efnin koma meira í bylgjum og ég var í raun­inni bara mjög heppin að hafa fengið nóg af verk­efnum meðan ég bjó í Hollywood. En það komu alltaf ein­hverjar vikur inn á milli þar sem var rólegt og þá gat ég ein­beitt mér að því að semja tón­list. Maður getur alveg gert bæði, maður þarf bara að skipu­leggja sig vel,” segir Silja Rós en síð­ast­liðið ár tók hún meðal ann­ars þátt í tveimur söng­leikjum, lék í stutt­myndum og tók þátt í upp­setn­ingu af Macbeth.

Silja heldur tón­leika og frum­sýnir tón­list­ar­mynd­band við lagið All I Can See næsta föstu­dag 9. ágúst, á Loft Hostel.

Silja Rós vinnur nú hörðum höndum að nýrri plötu. „Við erum byrjuð að taka upp plöt­una, en hún verður tölu­vert ólík fyrri plöt­unni minni. Ég vil aldrei standa í stað, mér finnst gaman að prófa ólíkar stefnur og þróa mig sem lista­mann. Ég er ótrú­lega spennt að gefa út nýja efnið en fyrstu lögin á plöt­unni verða þó ekki vænt­an­leg fyrr en seinna á árinu. Þangað til mun ég þó gefa út efni sem ég vann úti í LA sem er ennþá í sama stíl og fyrri platan mín. Það má segja að ég sé að ljúka þeim kafla og fara yfir í næsta.“

„…mér finnst gaman að prófa ólíkar stefnur og þróa mig sem lista­mann.“

Mynd­bandið við lagið Who am I hefur verið í vinnslu í tölu­verðan tíma en tökur hófust árið 2017 og klár­uð­ust nú í ár. Silja segir að það flækti örlítið hlut­ina að vera búsett í LA en að lokum tóks þetta.

Kvik­mynda­konan Katla Líndal sá um gerð mynd­bands­ins. En Katla lærði kvik­mynda­gerð í Bond Uni­versity ásamt því að vera kvik­mynda­fræð­ingur. „Þetta er annað mynd­bandið sem Katla gerir fyrir mig og það þriðja er á leið­inni. Við erum einmitt með tón­leika og frum­sýn­ingu á tón­list­ar­mynd­band­inu við nýjasta lagið mitt All I Can See næsta föstu­dag 9. ágúst kl 20:30 á Loft Hostel,” segir Silja Rós að lokum.

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á plöt­una Silence.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza