Í gærkvöldi voru fjórir aðilar handteknir grunaðir um þjófnað á flugeldum sem stolið var frá Hjálpasveit Skáta í Kópavogi og verða þeir yfirheyrðir í dag, kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Sjá einnig: Miklu magni flugelda stolið frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi – „Tjónið er gríðarlegt“
Við húsleit fundust flugeldarnir sem leitað var að og hefur sveitin því fengið sitt til baka. Fleiri munir fundust við leitina sem taldir eru tengjast öðrum innbrotum.


























Athugasemdir