„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Miklu magni flugelda stolið frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi – „Tjónið er gríðarlegt“

Miklu magni flugelda stolið frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi – „Tjónið er gríðarlegt“

Jóla­fríið snýst að mestu um kær­leika og frið. Ljóst er að ekki voru allir á þeim nótum í jóla­frí­inu því brot­ist var inn í hús­næði Hjálp­ar­sveitar skáta í Kópavogi nú um jólin og miklu magni flug­elda stolið frá sveit­inni. Flug­eld­arnir voru geymdir í læstum gám fyrir utan björg­un­ar­mið­stöð sveit­ar­innar á Kársnesi, og var brot­ist inn í hann og heilu bretti af flug­eldum stolið.

„Verðmæti flug­eld­anna er að minnsta kosti tvær millj­ónir króna og tjónið er gríð­ar­legt,“ segir Aðal­steinn Maack, for­maður Hjálp­ar­sveitar skáta í Kópavogi. Flug­elda­sala er ein helsta tekju­lind sveit­ar­innar, líkt og ann­arra björg­un­ar­sveita Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar.

Flug­eld­unum sem var stolið eru stórar tertur, þar af margar sér­merktar Hjálp­ar­sveit skáta í Kópavogi, svokölluð afmælisterta sveit­ar­innar sem var keypt inn í tak­mörk­uðu magni, en sveitin fagn­aði 50 ára afmæli sínu 4. nóv­em­ber. „„Skott­ertur sem við létum merkja okkur sér­stak­lega í til­efni 50 ára afmæl­is­ins. Þær eru auð­þekkj­an­legar og eiga ekk­ert að vera í sölu. Þannig að ef ein­hver er að bjóða slíkt, þá er aug­ljóst að það er illa fengið. Alla vega fyrir 28. des­em­ber,“ segir Aðal­steinn.

Tjónið er ekki síður til­finn­inga­legt fyrir með­limi sveit­ar­innar eins og fram kemur á Facebook-síðu hennar, sem hafa unnið hörðum höndum allan des­em­ber mánuð í sjálf­boða­vinnu að und­ir­bún­ingi flug­elda­söl­unnar, en í Hjálp­ar­sveit skáta í Kópavogi eru um 400 með­limir.

Síðustu menn yfir­gáfu hús­næði sveit­ar­innar á aðfanga­dag eftir leit við erf­iðar aðstæður á Suð­ur­landi.
Þegar komið var í hús­næðið í dag kom þjófn­að­ur­inn í ljós, ljóst er því að þjóf­ur­inn eða þjófarnir hafa athafnað sig á þessum tíma. „Við vorum í útkalli á aðfanga­dag. Þá voru und­an­farar frá okkur að síga í Dyr­hólaey. Við teljum að þá hafi þetta verið á sínum stað. Þannig að þjófn­að­ur­inn hefur átt sér stað frá Þor­láks­messu­kvöldi og þangað til í morgun.“

Hjálp­ar­sveit skáta biður  alla þá sem hafa ein­hverjar upp­lýs­ingar um málið að hafa sam­band við lög­reglu, en einnig má senda skila­boð í gegnum Facebook-síðu sveit­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Björgunarsveit

Björg til bjargar
InnlentBjörgunarsveit

Björg til bjargar

Neyð­ar­kall frá fiski­báti barst stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar um klukkan fimm í morgun. Báturinn var þá staddur um hálfa sjó­mílu undan Svörtu­loftum á Snæ­fells­nesi. Um borð í bátnum voru tveir en þeir tjáðu varð­stjórum stjórn­stöðvar að bát­ur­inn væri stjórn­vana og ræki með sjáv­ar­falla­straumi norður með land­inu, sam­kvæmt heima­síðu Gæsl­unnar. Þegar í stað var þyrlu­sveit Land­helg­is­gæsl­unnar kölluð út auk sjó­björg­un­ar­sveitum Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar á...
Björgunarsveitir sóttu slasaðan smala í Borgarbyggð
InnlentBjörgunarsveit

Björg­un­ar­sveitir sóttu slas­aðan smala í Borg­ar­byggð

Björg­un­ar­sveitir í Borg­ar­firði voru kall­aðar út í dag vegna smala sem hrasað hafði við smala­mennsku í Skorra­dal en hann slas­að­ist lít­il­lega á fæti. Samkvæmt frétt RÚV um málið er landið sem smal­inn var að smala á, afar erfitt yfir­ferðar. Víða í sveitum Borg­ar­byggðar hefur smölun á fé staðið yfir í dag en björg­un­ar­sveitir voru kall­aðar út rétt fyrir klukkan 13:00...
Hópsmit á hálendinu – Björgunarsveitir sóttur veik skólabörn í Emstruskála
Innlent

Hópsmit á hálend­inu – Björg­un­ar­sveitir sóttur veik skóla­börn í Emstru­skála

Þessa stund­ina eru björg­un­ar­sveitir á Suð­ur­landi að flytja fjölda ferða­manns sem und­an­far­inn sól­ar­hring hafa veikst en flestir þeirra hafa dvalið í Emstru­skála. Sunn­lenska segir frá mál­inu en rétt í fyrir mið­nætti í gær voru björg­un­ar­sveitir kall­aðar út vegna hóps skóla­barna í Emstru­skála í Emstru­botnum. Af 50 manna hóp voru að minnsta kosti 15 börn orðin veik en komið var með...
Tveimur strandveiðiskipum komið til bjargar fyrir austan
Landið

Tveimur strand­veiði­skipum komið til bjargar fyrir austan

Það sem af er vik­unni hefur Hafbjörg, skip Björg­un­ar­sveit­ar­innar Gerpis í Nes­kaups­stað, sinnt tveimur útköllum vegna vand­ræða strand­veiði­báta. Aust­ur­frétt segir frá því að Hafbjörg hafi farið í fyrra útkallið um kvöld­mat­ar­leytið á mánu­dag en þá var bátur í vél­ar­vand­ræðum um sex mílur austur af Norð­fjarð­ar­horni. Báturinn var tek­inn í tog og var dreg­inn til Nes­kaups­staðar. Það var svo um klukkan...
Björgunarsveitir á Austurlandi fóru í tvö útköll í nótt – Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til
InnlentBjörgunarsveit

Björg­un­ar­sveitir á Aust­ur­landi fóru í tvö útköll í nótt – Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar kölluð til

Björg­un­ar­sveitir á Aust­ur­landi voru kall­aðar út í tvígang í nótt. Aust­ur­frétt segir frá því að áhöfn björg­un­ar­báts­ins Haf­bjargar í Nes­kaups­stað hafi komið skip­verja lít­ils fiski­bátar til hjálpar um fimm leytið í morgun. Maðurinn hafði slasast illa á fæti og var ófær um að sigla bátnum til hafnar. Báturinn var um sextán sjó­mílur austur af Norð­fjarð­ar­horni. Þá var þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar einnig...
Dularfullt strand við Fáskrúðsfjörð – Tók skyndilega 100 gráðu beygju í átt að landi
InnlentBjörgunarsveit

Dul­ar­fullt strand við Fáskrúðs­fjörð – Tók skyndi­lega 100 gráðu beygju í átt að landi

Ekki er vitað hvers vegna tank­skipið Key Bora tók skyndi­lega 90 til 100 gráðu beygju í átt að landi og strand­aði tíma­bundið í fjör­unni eftir að hafa lagt úr höfn í Fáskrúðs­firði stuttu áður. Á innan við klukku­stund tókst skip­inu að losna fyrir eigin vél­ar­afli. Samkvæmt Aust­ur­frétt var björg­un­ar­sveitin Geisli ræst út um leið og ljóst var að hið stóra...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins