„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Play greiðir laun og stefnir að fjármögnun í janúar

Starfs­menn Play hafa fengið laun greidd fyrir nóv­em­ber. Sam­skipta­stjóri félags­ins stað­festir í sam­tali við Mannlíf að öll launa­tengd gjöld hafi verið gerð upp.

Play greiðir laun og stefnir að fjármögnun í janúar
|

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að stjórn­endur Play hafi leitað að brú­ar­fjár­mögnun und­an­farnar vikur til að geta greitt starfs­mönnum sínum laun en eins og kunn­ugt er fengu þeir ekki útborgað síð­ustu mán­aða­mót. Samkvæmt sömu heim­ildum barst aðstoðin í vik­unni og voru launin fyrir nóv­em­ber loks gerð upp. Jafn­framt hafa greiðslur fyrir laun í des­em­ber verið tryggð.

„Öll launa­tengd gjöld hafa verið greidd,“ stað­festir María Margrét Jóhanns­dóttir, sam­skipta­stjóri Play, í sam­tali við Mannlíf. „Búið er að greiða launin fyrir nóv­em­ber og búið að tryggja laun í des­em­ber,“ segir hún.

Erlendur sjóður leiðarfjárfestir?

Mannlíf hefur enn­fremur heim­ildir fyrir því að tveir erlendir sjóðir, sem sér­hæfa sig i fjar­fest­ingum i flug­rekstri, hafi sýnt Play mik­inn áhuga und­an­farnar tvær vikur. Að minnsta kosti annar sjóð­ur­innn ætli að koma að hluta­fjár­aukn­ingu félags­ins, ásamt inn­lendum fjár­festum sem hafi beðið eftir að leið­andi fjár­festir komi inn í félagið. Samkvæmt sömu heim­ildum er unnið að því að ljúka hluta­fjár­aukn­ingu Play um miðjan jan­úar, sem er tölu­vert seinna en stefnt var að í upp­hafi. Málið sé á við­kvæmu stigi.

Spurð út í málið seg­ist María ekki vera reiðu­búin að stað­festa þetta. „Ég get ekki stað­fest það að svo stöddu.“

En neit­arðu því?
„Ég get ekki neitað því.“

En er það rétt að þið stefnið á að ljúka hluta­fjár­aukn­ingu Play um miðjan næsta mánuð?

„Við stefnum á að ljúka fjár­mögnun sem allra fyrst og okkur miðar vel áfram í því,“ segir hún án þess að vilja tjá sig nánar um málið, en fréttir und­an­farið hafa bent til hins gagn­stæða. Til marks um það greindu fjöl­miðlar ekki fyrir alls löngu frá því að stjórn­endur félags­ins hefðu boð­ist til að lækka hlut­deild sína í 30%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Fjármálastjóri Play sakaður um spillingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“
Innlentflugfélög

Fjár­mála­stjóri Play sak­aður um spill­ingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“

Þóra Egg­erts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Play, situr í stjórn eins af stærstu hlut­höfum flug­fé­lags­ins, líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu. Sjóð­ur­inn sker sig úr hvað varðar íslenska líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að því að fjár­festa í Play og hefur stjórnin nú þegar sam­þykkt að leggja meira fé til félags­ins. Samkvæmt Sam­stöð­inni er Birta einn af stærstu hlut­höf­unum í Play með 8,5 pró­senta eign­ar­hlut, sem kost­aði sjóð­inn...
Innlentflugfélög

Aðal­eig­andi Icelandair í skattapara­dís: „Auðvitað til að greiða sem minnst í sam­eig­in­lega sjóði“

Aðal­eig­andi íslenska flug­fé­lags­ins Icelandair geymir hlut sinn í félag­inu í skattapara­dís sem notuð er af alþjóð­legum félögum til að kom­ast hjá skatt­greiðslum. Um er að ræða banda­ríska hrægamma­sjóð­inn Bain Capital sem með 17 pró­senta eign­ar­hlut sínum er langstærsti hlut­hafi Icelandair. Hlutinn geymir sjóð­ur­inn í írska félag­inu Blue Issuer en Írland er þekkt skattapara­dís. Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans og fyrr­ver­andi...
Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“
Innlentflugfélög

Birgir harmar upp­lifun far­þega af óboð­legu hót­eli: „Þetta er bara við­bjóðs­legt“

For­stjóri flug­fé­lags­ins Play harmar upp­lifun far­þega sem sendir voru á hótel sem upp­fyllti væg­ast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru stranda­glópar í París eftir að flug­ferð félags­ins var aflýst. Vísir greinir frá þessu. Birgir Jónsson, for­stjóri Play, er sam­mála því að hót­elið sem far­þeg­unum var boðið upp á í París hafi verið óvið­un­andi. „Ég er bara sam­mála þessu fólki sem...
Birgir boðar hækkun á verði flugmiða: „Það er óumflýjanlegt“
Innlentflugfélög

Birgir boðar hækkun á verði flug­miða: „Það er óum­flýj­an­legt“

Birgir Jónsson, for­stjóri Play, segir óum­flýj­an­legt að hækkun á olíu­verði í heim­inum í dag muni valda hækkun á verði flug­miða. Þetta segir hann í við­tali við RÚV. Hann segir standa til að lág­marka rekstr­ar­kostnað flug­fé­lags­ins til þess að mæta auknum kostn­aði. „Það er alveg ljóst að ef heims­mark­aðs­verð á elds­neyti hækkar um tugi pró­senta mun það skila sér í hærra...
Fleiri flugfélög til Íslands – verða 25 talsins í sumar
Innlent

Fleiri flug­fé­lög til Íslands – verða 25 tals­ins í sumar

Alls fljúga fimmtán flug­fé­lög til Íslands í ár en það eru einu fleiri en árið 2019, fyrir heims­far­ald­ur­inn. Þá er búist við miklum fjölda ferða­manna hingað til lands eða allt að 1,2 milljón manns. Bendir hvort tveggja til um kröft­uga við­spyrnu í ferða­þjón­ustu hér á landi og segir Guð­mundur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta og þró­unar hjá Isavia spána vera gleði­fréttir....
Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar
Innlentflugfélög

Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar

Nýtt flug­fé­lag sem ber nafnið Niceair hefur starf­semi í sumar. Flug­fé­lagið mun hefja milli­anda­flug frá Akureyri næsta sumar og verður í upp­hafi með eina Airbus 319 flug­vél sem tekur 150 far­þega. Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fra­kvæmda­stjóri og flug­maður flug­fé­lags­ins sagði í við­tali við Frétta­blaðið að mikil þörf væri á milli­landa­flugi fyrir Norður- og Aust­ur­land. Áætlað er að fyrsta flugið verði 2.júní...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins