„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvar eru ódýrustu jólabækurnar? – Oft 40-60% munur á hæsta og lægsta verði

Hvar eru ódýrustu jólabækurnar? – Oft 40-60% munur á hæsta og lægsta verði

Góð bók er alltaf klass­ísk jóla­gjöf en áður en haf­ist er handa við að finna réttu bók­ina handa vinum og vanda­mönnum er ágætt að vita hvar besta verðið er.

Í verð­könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á jóla­bókum sem gerð var 10. des­em­ber var Bónus oft­ast með lægsta verðið en Penninn.is oft­ast með hæsta verðið.

Í mörgum til­fellum var verð á bókum Mál og Menn­ingar og Heim­kaupa ein­ungis um 10 krónum lægra en verð á bókum hjá Pennanum.

Oftast var 40-60% munur á hæsta og lægsta verði milli versl­ana og algengt var að 1.500- 2.500 kr. verð­munur væri á bókum.

Penninn Eymundsson Austurstræti vísaði starfsmanni verðlagseftirlitsins út

Í grein ASÍ um verð­lagskönn­unn­ina kemur fram að starfs­maður Pennans Eymunds­son hafi vísað full­trúa Verð­lags­eft­ir­lits­ins út úr verslun sinni í Aust­ur­stræti og neit­aði þát­töku. „Og virð­ist því ekki telja það þjóna hags­munum sínum að neyt­endur séu upp­lýstir um verð í versl­un­inni. Rétt er að vekja athygli á að verð var kannað á penn­inn.is sem er net­verslun Pennans-Eymunds­sonar,“ segir í grein­inni.

Bónus var oft­ast með lægsta verðið í könn­un­inni, í 61 til­viki af 77 en í öðrum til­fellum dreifð­ust lægstu verð á Hagkaup, Nettó, Nettó.is og Forlagið.

Penninn.is var oft­ast með hæsta verðið eða í 52 til­vikum af 77. Mál og menn­ing var næst oft­ast með hæsta verðið og þar á eftir kom Heimkaup.is.

998 krónur í Bónus en 2.590 krónur hjá Heimkaup

Mestur var verð­mun­ur­inn á bók­inni Fót­bolta­spurn­ingar eftir Bjarna Þór og Guðjón Inga eða 160%. Lægst var verðið hjá Bónus, 998 kr. en hæst hjá Heimkaup.is, 2.590 kr. sem gerir 1.592 kr. verð­mun. Í krónum talið var mestur verð­munur á bók­inni Síld­ar­árin 1867-1969 eftir Pál Baldvin Bald­vins­son, 5.992 kr. eða 54%. Þá var mik­ill munur á hæsta og lægsta verði á bók­inni Listin að vefa eftir Ragn­heiði Björk Þórs­dóttur, 3.101 krónur eða 53% en ódýr­ust var hún í Bónus á 5.898 kr. en dýr­ust hjá Penninn.is á 8.999 kr.

Nið­ur­stöður ASÍ má skoða nánar á vef ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðlag

Segir uppskerubrest á kakói ekki hafa áhrif: „Súkkulaðið okkar er fyrst og fremst flórsykurleðja“
Innlentverðlag

Segir upp­skeru­brest á kakói ekki hafa áhrif: „Súkkulaðið okkar er fyrst og fremst flór­syk­ur­leðja“

Atli Þór Fanndal segir að upp­skeru­brestur á kakói ætti ekki að hafa nein áhrif á verð á íslensku súkkulaði. Formaður Íslands­deildar Transparency International, Atli Þór Fanndal hæð­ist að íslenskri mat­væla­fram­leiðslu í Facebook-færslu sem hann birti í gær. Færsluna skrif­aði hann við frétt um vænt­an­lega hækkun upp á 100 pró­sent á súkkulaði­verði hér á landi, vegna upp­skeru­brests. „Þá er nú aldeilis...
Aukin framleiðsla á eldsneyti. Joe Biden: „Það er jákvætt“
Heimur

Aukin fram­leiðsla á elds­neyti. Joe Biden: „Það er jákvætt“

Fyrir helgi fjall­aði Mannlíf um verð­hækk­anir og svara­leysi íslenskra stjórn­valda, varð­andi stuðn­ing eða afslátt á elds­neyti á Íslandi. Sjá hér. For­vitni­legt verður að fylgj­ast með hvort þessi fram­leiðslu­aukn­ing muni skila sér í íslenskt verð­lag. OPEC, Samtök landa í elds­neyt­is­út­flutn­ingi, hafa gefið út yfir­lýs­ingu um aukna fram­leiðslu á jarð­elds­neyti í júlí og ágúst nk.. Samkvæmt frétt á dr.dk segir að aukin...
Bensínverð lækkar í Þýskalandi – Runólfur hjá FÍB: „Hér heyrist ekkert“
Innlentverðlag

Bens­ín­verð lækkar í Þýska­landi – Runólfur hjá FÍB: „Hér heyr­ist ekk­ert“

Samkvæmt frétt á dr.dk inn­leiddi þýska ríkið, frá og með 1. júní til 1. sept­em­ber, nið­ur­greiðslu á elds­neyt­is­verði sökum mik­illa fyr­ir­sjá­an­legra hækk­ana vegna stríðs­ins í Úkraínu. Þýski elds­neyt­is­af­slátt­ur­inn Bensín: 0,35 evru afsláttur sem jafn­gildir 48,29 kr á núver­andi gengi Dísel: 0,17 evru afsláttur sem jafn­gildir 23,45 kr á núver­andi gengi Með þessu vill þýska ríkið lækka elds­neyt­is­verðið til fyrra horfs...
Ostakassi MS 4.014 krónum dýrari heldur en sömu vörur stakar: „Kostnaðarverð er mun hærra“
Innlentverðlag

Osta­kassi MS 4.014 krónum dýr­ari heldur en sömu vörur stakar: „Kostn­að­ar­verð er mun hærra“

Í færslu sem sveimar nú um víða á sam­fé­lags­miðlum eru neyt­endur varaðir við kaupum á osta­kössum frá MS, sem eru nú víða til sölu fyrir jólin. Sá osta­kassi sem um ræðir var keyptur í Nettó á dög­unum. Um er ræða kassa merktan núm­er­inu „5“. Athugull neyt­andi skoð­aði inni­haldið í kass­anum og fann síðan allar vör­urnar stakar í verslun Nettó. Fann...
Sævar segir Strætó okra á öryrkjum: „Maður getur ekki annað en hlegið að þessu“
Innlentverðlag

Sævar segir Strætó okra á öryrkjum: „Maður getur ekki annað en hlegið að þessu“

Öryrkjar borga tæp­lega 67 pró­sentum meira fyrir bæði kort og staka ferð hjá Strætó eftir að þeir verða 67 ára gamlir. Þar sem skrán­ing öryrkja hjá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins breyt­ist yfir í eldri borg­ara þegar þeir verða 67 ára, þýðir það sömu­leiðis að þau kjör og afslættir sem þeir aðilar nutu áður í sam­fé­lag­inu breyt­ast sam­hliða. Dæmi um þetta er gjald­skrá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins