„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ópíóðadjöfullinn tekur sinn toll

Ópíóðadjöfullinn tekur sinn toll
Mynd / Unsplash||Val­gerður Rún­ars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Að sögn Val­gerðar Rún­ars­dóttur, yfir­læknis á Vogi, hefur þeim fjölgað veru­lega sem fá svo­kall­aða við­halds­með­ferð; þ.e. lyfja­með­ferð við ópíóða­fíkn. „Það eru þessi sterku verkja­lyf sem hafa verið mikið í umræð­unni en alvar­leg neysla á þeim hefur auk­ist; fólk sprautar þeim í æð og tekur þau inn sér til skaða líka. Og það hefur bæst mjög í hóp­inn sem fær þessa lyfja­með­ferð.“

Val­gerður Rún­ars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Árið 2014 greindi Þórarinn Tyrf­ings­son, þáver­andi yfir­læknir á Vogi, frá því að um 100 ein­stak­lingar væru í fyrr­nefndri við­halds­með­ferð, sem felst í viku­legri lyfja­gjöf. Í nóv­em­ber sama ár náð­ust samn­ingar milli SÁÁ og Sjúkra­trygg­inga um með­ferð 90 ein­stak­linga en fram til þessa höfðu sam­tökin greitt með­ferð­ina, allt frá 1999.

„Skaða­minnk­un­ar­um­ræðan er tákn­ræn fyrir ákveðna áherslu í vímu­efna­vörnum og teng­ist þeirri umræðu, sem fer vax­andi, að með­höndla eigi fólk sem notar ólög­leg vímu­efni sem sjúk­linga sem eigi að fá þjón­ustu innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, frekar en sem afbrota­menn sem þurfi að hafa uppi á og refsa,“ sagði Þórarinn.

Framlag rík­is­ins mið­ast enn við 90 ein­stak­linga en í dag telur hóp­ur­inn 170.

„Það er með þetta eins og annað; þessir samn­ingar við ríkið um þessa þjón­ustu eru allir úreltir,“ segir Val­gerður. „Samtökin eru alltaf í með­gjöf en sem betur fer eru margir sem hjálpa til með því að styðja við SÁÁ.“

Val­gerður segir flesta sem fá með­ferð­ina vera í henni í að minnsta kosti eitt til þrjú ár. „Fólk er í mis­mun­andi stöðu; sumir hafa verið í góðum bata í mörg ár og svo eru aðrir sem eru að detta inn og út, eiga erfitt með að halda með­ferð og þurfa mik­inn stuðn­ing.“ Við­kom­andi séu í mjög hættu­legri neyslu.

„…hlutum hefur verið breytt hvað varðar upp­á­skriftir á lyfj­unum og læknar um allt land hafa tekið þetta til sín.“

En til hvaða aðgerða er hægt að grípa gegn ógn­inni sem stafar af ópíóðum? Það stendur ekki á svörum. Í fyrsta lagi, segir Val­gerður, að væri gott ef ríkið greiddi fyrir með­ferð þess fjölda sem þarf á henni að halda. „En varð­andi stóru mynd­ina þá hafa stjórn­völd gripið til aðgerða; hlutum hefur verið breytt hvað varðar upp­á­skriftir á lyfj­unum og læknar um allt land hafa tekið þetta til sín. Það hefur tölu­vert gerst hvað það varðar.“

Hún segir samt erfitt að spá fyrir um þró­un­ina þegar kemur að neyslu ávana­bind­andi efna en „þrösk­uld­ur­inn“ verði m.a. lægri þegar sam­fé­lags­um­ræðan þró­ast í þá átt að tala áhætt­una niður.

„Er eðli­legt að reykja hass eða kanna­bis? Er það lítið mál? Er lítið mál að sprauta sig? Ef við­horf breyt­ast þá breyt­ist líka trendið í neyslu. Þannig að þetta er flókið sam­spil; ef hlut­irnir eru normaliseraðir þá minnkar „perceived risk“ eða raun­veru­legt mat á hætt­unni sem í þeim fel­ast,“ segir Val­gerður. „Þetta spilar allt saman; upp­lýs­ingar, for­varnir, sam­talið í sam­fé­lag­inu. Það er óábyrgt að tala þannig að maður normaliseri hættu­lega hegðun.“

Fjallað var ítar­lega um mál­efni SÁÁ í helg­ar­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fíknisjúkdómar

Þekkir fíknisjúkdóminn af eigin raun: „Öll fjölskyldan er í því að passa að drengurinn deyi ekki“
Innlent

Þekkir fíkni­sjúk­dóm­inn af eigin raun: „Öll fjöl­skyldan er í því að passa að dreng­ur­inn deyi ekki“

Sigmar Guð­munds­son Alþing­is­maður segir íslensk stjórn­völd van­meta stór­lega fíkni­sjúk­dóma í íslensku sam­fé­lagi, sem hafi fjár­hags­leg og heilsu­fars­leg áhrif inn í alla kima sam­fé­lags­ins. Sigmar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist þekkja fíkni­sjúk­dóma af eigin raun og þeim fylgi skömm. Hann hafi hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það sé skylda sín að tala um þennan mála­flokk,...
Telur Perry hafa fallið skömmu fyrir andlátið: „Nei, ég er Mattman!“
Menning

Telur Perry hafa fallið skömmu fyrir and­látið: „Nei, ég er Mattman!“

Fyrr­ver­andi kærasta Matthew Perry seg­ist gruna að Friends-stjarnan hafi fíkni­efna­bakslag fyrir dauða sinn. Matthew Perry, lést á dög­unum eins og allir vita, en hann drukkn­aði í heita potti sínum á heim­ili sínu í Los Angeles. Hinn 54 ára leik­ari opn­aði sig í fyrra um fíkni­efna­vanda sinni en hann hafði í fjöldi ára glímt við fíkn í lækna­skyld lyf og áfengi....
Diljá um fíknisjúkdóma: „455 færri innlagnir en ella urðu á árinu 2020“
Innlentfíknisjúkdómar

Diljá um fíkni­sjúk­dóma: „455 færri inn­lagnir en ella urðu á árinu 2020“

„Það hefur orðið mik­il­væg við­horfs­breyt­ing í sam­fé­lag­inu í þá átt að fíkni­sjúk­dómar eigi að vera með­höndl­aðir sem slíkir innan heil­brigð­is­kerf­is­ins.“ Þetta skrifar Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í pistil á Vísi í morgun. Segir Diljá það ánægju­legt að meiri­hluti fjár­laga­nefndar hafi komið til móts við athuga­semdir SÁÁ en hljóðar til­laga um við­bót­ar­fram­lag upp á 120 millj­ónir króna. Í umsögn sem...
Innlentfíknisjúkdómar

Tolli vill lög­leiða fíkni­efni – næstu kyn­slóðir for­dæma fram­komu okkar við fólk með fíkni­sjúk­dóma

Hinn lands­þekkti list­mál­ari, Tolli Morthens, hefur sterkar skoð­anir um þá vinnu sem lögð hef­ur verið í til að breyta ferl­um í fang­els­um og við­horf­um fólks hér á landi til fanga. Hann var for­maður starfs­hóps sem kom með til­lög­ur að úr­bót­um; hafa marg­ar þeirra orðið að veru­leika. Tolli er and­stæð­ingur þeirrar refsi­menn­ing­ar sem við Íslend­ingar búum við; tel­ur bata­menn­ingu vera einu...
Hörð viðbrögð við niðurstöðu atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu: „Illt í hjartanu í dag“
Innlent

Hörð við­brögð við nið­ur­stöðu atkvæða­greiðslu um afglæpa­væð­ingu: „Illt í hjart­anu í dag“

Frumvarp þing­manna Pírata um afglæpa­væð­ingu vímu­efna­neyslu var fellt á Alþingi í nótt þegar 28 þing­menn greiddu atkvæði á móti frum­varp­inu, 18 þing­menn greiddu atkvæði með. Með frum­varp­inu var lagt til varsla á neyslu­skömmtum fíkni­efna yrði ekki lengur refsi­verð. Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hefur vakið mikli við­brögð og hefur mikil umræða um málið skap­ast á sam­fé­lags­miðlum í dag, not­endur Twitter hafa til að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins