„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslenska heilbrigðiskerfið svelt á meðan landsmenn hamstra sælgæti og brennivín

Rit­stjórn Mannlífs tók saman hverja hún taldi hafa átt góða og slæma síð­ustu viku.

Íslenska heilbrigðiskerfið svelt á meðan landsmenn hamstra sælgæti og brennivín

Góð vika – versl­un­ar­eig­endur, sæl­gæt­is­fram­leið­endur og ÁTVR
Enn og aftur gerðu íslenskir lista­menn það gott í vik­unni sem er að líða því tón­list­ar­konan Hildur Guðna­dóttir og förð­un­ar­fræð­ing­ur­inn Heba Þór­is­dóttir hlutu báðar til­nefn­ingu til Critics’ Choice-verð­laun­anna. Heba fyrir störf sín við mynd­ina Once Upon a Time in Hollywood og Hildur fyrir tón­list­ina í Joker. Til­nefn­ingin er enn ein rósin í hnappa­gat Hildar sem hefur á árinu hlotið fjölda við­ur­kenn­inga fyrir tón­list sína, bæði í umræddri mynd og eins í Netflix-þátt­unum mar­verð­laun­uðu Chernobyl. Þá höfðu versl­un­ar­eig­endur, sæl­gæt­is­fram­leið­endur og ÁTVR sér­staka ástæðu til að kæt­ast þar sem óveð­ur­spár ollu því að vín- og mat­vöru­versl­anir lands­ins troð­fyllt­ust af örvænt­ing­ar­fullu fólk sem hamstr­aði snakk, nammi og brenni­vín eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn. Úr einni verslun bár­ust þær fréttir að ósvikin dóms­dags­stemn­ing ríkti. Meira að segja þurr­mat­ur­inn væri við það að klár­ast. Sumir skildu hins vegar ekki í öllu óða­got­inu og bentu á að land­menn ættu fyrir löngu að vera búnir venj­ast svona skíta­veðri. Hvað sem því líður má segja að óveðrið hafi fært ofan­greindum aðilum óvæntan glaðn­ing og það beint ofan á alla jóla­söl­una.

Slæm vika – íslenska heil­brigð­is­kerfið
Skipta­stjórar þrota­bús WOW air hafa ekki átt sjö dag­ana sæla eftir að þeir voru sak­aðir um að hafa tvíselt eignir úr búinu. Heldur ekki starfs­fólk Play, sem fréttir herma að hafi víst ekki fengið greidd laun fyrir síð­asta mánuð. Hvorki Play né nýja WOW hefur tryggt sér flug­rekstr­ar­leyfi eða selt eina ein­ustu flug­ferð frá því þau boð­uðu starf­semi sína. Þá mátti rit­stjóri DV þola sví­virð­ingar á sam­fé­lags­miðlum og eggjakast á hús sitt eftir að blaðið birti upp­lýs­ingar um íslenskar stjörnur sem búa í for­eldra­húsum. Og talandi um orra­hríð, ekki má gleyma fár­viðr­inu sem gekk yfir landið og setti allt tíma­bundið úr skorðum. Svo er það Land­spít­al­inn þar sem enn einu sinni hefur þurft að beita blóð­ugum nið­ur­skurði, með til­heyr­andi launa­lækk­unum og upp­sögnum. Í nýjum pistli sem hefur farið um Netið eins og eldur í sinu vekur leik­stjór­inn og leik­ar­inn Karl Ágúst Úlfsson athygli á stöðu íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins sem hann telur að gæti orðið eitt af þeim bestu í heimi. „Meinið er bara að pen­ing­arnir sem okkur vantar til að ná þessu marki liggja á aflands­reikn­ingum víðs vegar um heim­inn,“  skrifar Karl Ágúst, „og eru ekki á leið­inni að skila sér á næst­unni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins