„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fyrrum sjávarútvegsráðherra Angóla handtekinn vegna Samherjamálsins

Fyrrum sjávarútvegsráðherra Angóla handtekinn vegna Samherjamálsins
Skjáskot / RÚV

Gefin hefur verið út hand­töku­skipun á hendur Victóriu de Barros Neto, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Angóla, vegna tengsla hennar við Sam­herj­a­málið svo­kall­aða. Þetta kemur fram á vef angólska rík­is­út­varps­ins, en Frétta­blaðið greinir frá.

Þar kemur fram að banka­reikn­ingar de Barros Neto, banka­reikn­ingar eig­in­manns hennar og sömu­leiðis barna hafi verið frystir vegna Sam­herj­a­skjal­anna svoköll­uðu eftir að dóms­mála­ráð­herra Angóla gaf út til­skipun þess efnis. Bæði angólskir og namibískir ráða­menn eru grun­aðir um að hafa þegið mútur og tekið þátt í pen­inga­þvætti og skattaund­anskotum í umræddu máli, sem löndin tvö, Namibía og Angóla, vinna nú að því að upp­lýsa. Þeirra á meðal er áður­nefnd fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herrra Angóla.

Kjarninn greinir frá því að á meðal þeirra sem eiga að hafa notið góðs af greiðslum til fyrrum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi sé eitt barna hennar, João de Bar­ros. Sá hefur meðal ann­ars heim­sótt Sam­herja til Íslands, eins og kemur fram á vef Kjarnans.

Eins og kunn­ugt er greindu Stundin og frétta­skýr­inga­þátt­ur­inn Kveikur frá þvi í síð­asta mán­uði að Samherji hafi stundað stór­felldar mútu­greiðslur til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu til þess að ná undir sig fisk­veiði­kvóta. Í umfjöllun miðl­anna kom fram ađ Samherji, sem er umsvifa­mesta útgerð­ar­fé­lag Íslands með um 111 millj­arða króna eigið fé, hafi á síð­ustu árum greitt á annan millj­arð króna í mútur. Í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar hafa sex Namib­íu­manna, þar á meðal tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar, verið ákærðir vegna máls­ins.

Er málið, sem hefur vakið upp mikla reiði í Namibíu, nú til rann­sóknar þar í landi, á Íslandi og í Noregi. Grunur er um að auk mútu­greiðslna hafi Samherji stundað umfangs­mikla skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Talsmenn Samherja hafa vísað þessum full­yrð­ingum á bug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnaghagsmál

Stýrivextir áfram 9,25 prósent – Lakari horfur í ferðaþjónustu ein af ástæðunum
Innlentefnaghagsmál

Stýri­vextir áfram 9,25 pró­sent – Lakari horfur í ferða­þjón­ustu ein af ástæð­unum

Stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands verður haldið óbreyttum í 9,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans. Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri til­kynnti í morgun að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hafi ákveðið að halda stýri­vöxtum áfram í 9,25 pró­sentum. Fram kemur í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar að verð­bólga hafi auk­ist eilítið frá síð­asta fundi hennar eftir að hafa minnkað fram eftir ári. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn...
Rebekka Guðleifsdóttir: „Hvenær gera Íslendingar alvöru uppreisn gegn þessu andskotans rugli?“
Innlentefnaghagsmál

Rebekka Guð­leifs­dóttir: „Hvenær gera Íslend­ingar alvöru upp­reisn gegn þessu and­skot­ans rugli?“

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði gríð­ar­lega vin­sæla færslu á Facebook í gær en henni hefur verið deilt yfir 1100 sinnum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóra „og allt hitt ríka og fína sið­blinda fólkið“ sem kemur sér í valda­stöður á Íslandi. Færslan er löng og harð­orð og end­ur­speglar sístækk­andi óánægju í sam­fé­lag­inu vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi en Seðla­banka­stjóri ákveð enn...
Skapandi leigjendur komi með tillögur að leiguverði
Innlentefnaghagsmál

Skapandi leigj­endur komi með til­lögur að leigu­verði

Þann 10. júní gefst áhuga­sömum kostur á að skoða hús­næði sem Reykja­vík­ur­borg leigir út fyrir skap­andi verk­efni. Húsnæðið er í Gufunesi, Bryggju­hverfi og í Skerja­firði og sam­tals er um rúm­lega 9.000 fer­metra að ræða. Á vef­síðu Reykja­vík­ur­borgar segir að við val á leigj­endum verði sér­stök áhersla lögð á skap­andi greinar og það að byggja upp og efla nýjar atvinnu­greinar og...
Þjóðin situr uppi með Icelandair
Innlent

Þjóðin situr uppi með Icelandair

Útlit er fyrir að íslenska þjóðin sitji uppi með Icelandair-flug­fé­lagið og það komi alfarið í hennar hlut að bjarga því frá falli. Nú þegar á almenn­ingur stóran hluta í flug­fé­lag­inu í gegnum eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna. Allt stefnir í að fólkið í land­inu eign­ist enn meira í gegnum skuld­breyt­ingu lána stóru rík­is­bank­anna sem nú þegar hafa lánað flug­fé­lag­inu í kringum 20 millj­arða...
Þrír sinna eftirliti með lánveitingum og skila skýrslu til Bjarna
Innlent

Þrír sinna eft­ir­liti með lán­veit­ingum og skila skýrslu til Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd veit­ingar við­bót­ar­lána lána­stofn­ana með rík­is­á­byrgð. Í nefnd­inni eru þau Einar Páll Tamimi, for­maður, Kristrún Heim­is­dóttir og Ásta Dís Óla­dóttir. Eft­ir­lits­nefnd­inni er ætlað að hafa almennt eft­ir­lit með fram­kvæmd lán­veit­ing­anna til fyr­ir­tækja sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta kemur fram á...
Innlent

Mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu

„Kostn­að­ur­inn verður veru­legur. Það mun taka langan tíma að vinna okkur úr þess­ari kreppu.“ Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, á upp­lýs­inga­fundi núna fyrir hádegi þegar næstu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar voru kynntar. Rík­is­stjórnin hefur sam­þykkt þrjár til­lögur um stuðn­ing við launa­fólk og fyr­ir­tæki. Markmið þeirra er að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda þannig...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins