„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áslaug Arna með skýr skilaboð: „Á Íslandi líðum við ekki heimilisofbeldi“

Áslaug Arna með skýr skilaboð: „Á Íslandi líðum við ekki heimilisofbeldi“
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd / Aldís Páls­dóttir

Dóms­mála­ráð­herra segir heim­il­is­of­beldi ekki liðið á Íslandi.

„Kyn­bundið ofbeldi er mesta ógn gegn frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti kvenna sem fyr­ir­finnst í íslensku sam­fé­lagi. Jafn­rétti kynj­anna verður aldrei að veru­leika á meðan það fær þrif­ist. Árlega leita hund­ruð kvenna til Kvenna­at­hvarfs­ins og Stíga­móta í leit að skjóli undan lík­am­legu og and­legu ofbeldi á heim­ilum sínum. Ofbeldi á heim­ilum er skeinu­hætt­ast kven­frels­inu.“ Þetta kemur fram í máli Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra í pistli í Morg­un­blað­inu í dag. Hún bætir við að þögn og afskipta­leysi séu í banda­lagi með ofbeld­is­mann­inum.

Í pistl­inum kemur Áslaug inn á 16 daga alþjóð­legt átak gegn kyn­bundnu ofbeldi, sem hófst 25. nóv­em­ber og lýkur 10. des­em­ber. „Átakinu er ætlað að opna augu sem flestra fyrir þessu vanda­máli. Árangur næst ekki nema með almennri vit­und­ar­vakn­ingu meðal þjóð­ar­innar og þá ekki síst meðal karl­manna. Við verðum öll að stíga fram og hafna hvers kyns áreitni og ofbeldi. Margt hefur áunn­ist í þess­ari bar­áttu. Sem dæmi má nefna þá mik­il­vægu breyt­ingu sem gerð var á almennum hegn­ing­ar­lögum árið 2016 að setja sér­stakt ákvæði um ofbeldi í nánum sam­böndum. Fyrst og fremst var það sett í þeim til­gangi að draga athygl­ina að alvöru heim­il­is­of­beldis,“ skrifar hún. „Ákvæðið er rök­rétt fram­hald af við­horfs­breyt­ingu sem hefur átt sér stað í sam­fé­lag­inu og lýsir sér m.a. í því breytta verk­lagi sem lög­reglan hefur tekið upp þegar hún er kölluð út vegna brota af þessu tagi.“

Bendir Áslaug á að Ísland hafi full­gilt svo­nefndan Ist­an­búl­samn­ing fyrr á þessu ári, sem feli í sér að Ísland hefur skuld­bundið sig til að fara að ákvæðum samn­ings­ins og tryggja vernd kvenna gegn ofbeldi og heim­il­is­of­beldi í sam­ræmi við ákvæði hans. „Skila­boðin eru skýr. Á Íslandi líðum við ekki heim­il­is­of­beldi og áfram verður unnið að auknum úrbótum. Hafi ein­hvern tím­ann verið talið að ofbeldi fengi að þríf­ast inni á heim­ilum og að yfir­völd létu það óátalið er ljóst núna að svo er ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins