„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tinnu Alavis og Sólrúnu Diego bannað að birta duldar auglýsingar

Tinnu Alavis og Sólrúnu Diego bannað að birta duldar auglýsingar
Mynd / Unsplash

Neyt­enda­stofu barst nýverið ábend­ingar um duldar aug­lýs­ingar tveggja áhrifa­valda á Instagram. Áhrifa­vald­arnir sem um ræðir eru Sólrún Diego og Tinna Alavis.

Í ábend­ingum til Neyt­enda­stofu var bent á að bæði Sólrún og Tinna höfðu fjallað um ýmsar vörur og þjón­ustu fyr­ir­tækja án þess að það kæmi fram að um aug­lýs­ingu var að ræða. Í til­felli Sólrúnar var sér­stak­lega vísað til umfjöll­unar hennar um versl­un­ina Air í Kringl­unni. Í til­felli Tinnu var bent á umfjöllun hennar um vörur og þjón­ustu versl­un­ar­innar Sætar syndir.

Þegar Neyt­enda­stofa krafði Sólrúnu og Tinnu um upp­lýs­ingar um hvort end­ur­gjald hefði komið fyrir umfjöll­un­ina kom í ljós að áhrifa­vald­arnir höfðu þegið vörur að gjöf frá fyr­ir­tækj­unum sem telst vera end­ur­gjald.

Neyt­enda­stofa taldi að um mark­aðs­setn­ingu væri að ræða og að ekki hefði komið fram með nægi­lega skýrum hætti að umfjöll­unin hefði verið aug­lýs­ing eða að hún væri gerð í við­skipta­legum til­gangi. Þetta kemur fram í grein Neyt­enda­stofu um málið.

Stofn­unin bann­aði því áhrifa­völd­unum að nota duldar aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlum.

Hvítt letur á hvítum bakgrunni

Í ákvörun Neyt­enda­stofu kemur fram að Sólrún merkti umfjöllun sína með myllu­merk­inu #sam­starf en merk­ingin þótti of lítil. „Benti stofn­unin á að umræddar færslur hafi ekki verið merktar sem aug­lýs­ingar eða með öðrum skýrum hætti greint frá því að þær hafi verið gerðar í við­skipta­legum til­gangi, að því und­an­skildu að finna mátti örsmáa merk­ingu neðst í hægra horni mynd­ar­innar, #sam­starf, í hvítu letri á hvítum grunni,“ segir meðal ann­ars í ákvörð­un­inni sem má lesa í heild sinni hérna.

„Með vísan til 2. mgr. 21. gr. b. laga nr. 57/2005, um eft­ir­lit með við­skipta­háttum og
mark­aðs­setn­ingu, er Sólrúnu Lilju Diego Elmars­dóttur bannað að birta aug­lýs­ingar
með fram­an­greindum hætti. Verði ekki farið að bann­inu má búast við að tekin verði
ákvörðun um sekt á grund­velli IX. kafla laga nr. 57/2005, um eft­ir­lit með
við­skipta­háttum og mark­aðs­setn­ingu,“ segir í ákvörð­un­ar­orðum Neyt­enda­sotfu.

Merkti ekki færslurnar

Í umfjöllun um mál Tinnu segir að umfjöllun hennar hafi ekki verið merkt. „Umræddar færslur hafi ekki verið merktar sem aug­lýs­ingar eða með öðrum hætti greint frá því að þær hafi verið gerðar í við­skipta­legum til­gangi,“ segir meðal ann­ars um mál Tinnu. Ákvörð­un­ar­orð Neyt­enda­stofu má lesa í heild sinni hérna. 

Hér má svo lesa leið­bein­ingar Neyt­enda­stofu um auð­þekkj­an­legar aug­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins