„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nýjar tillögur um lög um vatnsréttindi tilbúnar um áramót

Vatn er ein af mik­il­væg­ustu auð­lindum jarðar og sífellt heyr­ast fleiri raddir sem benda á að innan fárra ára gætu vatns­auð­lindir orðið jafnefna­hags­lega mik­il­vægar og olíu­auð­lindir eru nú. Mik­il­vægi þess að tryggja sam­fé­lags­legt eign­ar­hald á vatni hefur því reglu­lega ratað í umræð­una, bæði erlendis og á Íslandi. Samþykkt sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar sendu frá sér árið 2010 skil­greinir aðgang að hreinu vatni sem mann­rétt­indi, en enn er langt frá því að þeir sem nýta vatns­upp­sprettur sem gróða­leið fari eftir þeirri sam­þykkt. En hvað er til ráða og hvar er Ísland statt í þessu mik­il­væga máli?

Nýjar tillögur um lög um vatnsréttindi tilbúnar um áramót
|For­sæt­is­ráð­herra Íslands
For­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Í íslenskum lögum um nýt­ingu vatns er ríki og sveit­ar­fé­lögum tryggður réttur til að seil­ast í vatn á landi í einka­eigu en land­eig­endur eiga þá rétt á bótum fyrir þá nýt­ingu, hvort sem um er að ræða lagn­ingu vatns­veitna eða til nýt­ingar í orku­fram­leiðslu. Ef ekki semst um greiðslu, þá er heim­ild til þess í lögum að ráð­herra beiti sér­stökum úrræðum um eign­ar­nám.

For­sæt­is­ráð­herra Íslands, Katrín Jak­obs­dóttir, lýsti því yfir í við­tali við Frjálsa verslun í ágúst á þessu ári að auk­inn áhugi auð­manna á að kaupa jarðir á Íslandi kunni að tengj­ast vatns­rétt­indum og öðrum verð­mætum hlunn­indum í tengslum við lofts­lags­breyt­ingar. Þetta hafi menn ekki séð fyrir við gerð gild­andi laga frá 2004 og því sé verið að vinna til­lögur að hugs­an­legum breyt­ingum á lögum og reglu­verki um landa­kaup.

„Á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er unnið að heild­ar­end­ur­skoðun lög­gjafar um jarðir og fast­eignir og ég á von á að þær til­lögur liggi fyrir öðru hvorum megin við ára­mót.“

Í skrif­legu svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Mannlífs vegna máls­ins segir: „Það liggur fyrir bæði póli­tískur og almennur vilji til að setja skýrar laga­heim­ildir þannig að unnt sé að tak­marka landa- og jarða­kaup, t.d. til að koma í veg fyrir sam­þjöppun eign­ar­halds á landi. Á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins er unnið að heild­ar­end­ur­skoðun lög­gjafar um jarðir og fast­eignir og ég á von á að þær til­lögur liggi fyrir öðru hvorum megin við ára­mót. Á alþjóða­vett­vangi sjáum við aukna ásælni í land og þau rétt­indi sem fylgja land­ar­eignum, þar á meðal mögu­leg vatns­rétt­indi. Ég tel að við séum lánsöm að hafa sett þjóð­lendulögin á sínum tíma en vegna þeirra eru 40% af land­inu í almanna­eigu og þar með auð­lind­irnar sem þar eru. Bæði stjórn­ar­skrá og EES-samn­ing­ur­inn veita svig­rúm til að setja reglur um eign­ar­hald og nýt­ingu fast­eigna í þágu almanna­hags­muna og ýmsar leiðir eru færar í þeim efnum.“

Grunsemdir um að erlendir auðmenn ásælist vatnsréttindi

Ljóst er að vax­andi óánægju gætir með síaukin landa­kaup erlendra auð­manna hér­lendis og á aðal­fundi Lands­sam­bands veiði­fé­laga, sem hald­inn var á Sauð­ár­króki 13. júní síð­ast­lið­inn, var Jóhannes Sig­fús­son, bóndi á Gunn­ars­stöðum í Þistil­firði, ómyrkur í máli um þær grun­semdir að þeir ásælist vatns­rétt­indin og lífs­nauð­syn­legt sé að rík­is­valdið grípi inn í sem fyrst.

Jóhannes gerir meðal ann­ars kaup breska auð­kýf­ings­ins James Ratcliffe á meiri­hluta í Gríms­stöðum á Fjöllum, með Jökulsá á Fjöllum inn­an­borðs, að umtals­efni og átelur stjórn­völd fyrir að hafa ekki gripið inn í til að stöðva þau.

„Gríms­staðir á Fjöllum er stærsta ein­staka fersks­vatns­forða­búr í Evrópu. Hafi ein­hvern tíma verið ástæða fyrir ríkið að koma að málum þá var það við sölu á þeirri jörð. Ríkið átti síðan ein­fald­lega að lýsa þetta land sem þjóð­lendu,“ segir Jóhannes.

Harðar tek­ist á um nýt­ingu vatns víða í heim­inum
Þessi umræða er langt því frá bundin við Ísland og er sífellt harðar tek­ist á um nýt­ingu vatns og vatns­rétt­indi víða í heim­inum. Alþjóð­lega stór­fyr­ir­tækið Nestlé var til dæmis nýverið harð­lega gagn­rýnt vegna fyr­ir­ætl­ana um að nýta dag­lega yfir milljón gallon af vatni úr Santa Fe-ánni í Flórída og tappa því á flöskur í hagn­að­ar­skyni. Gagn­rýnendur ótt­ast að vatns­upp­s­rettan þoli ekki slíka nýt­ingu eins og fram kom í ítar­legri úttekt breska blaðs­ins The Guardian.

Peter Brabeck,.

Þá vöktu ummæli fyrr­ver­andi stjórn­ar­manns Nestlé, Peter Brabeck, gríð­ar­lega reiði þegar hann gerði lítið úr því sjón­ar­miði að aðgangur að heil­næmu drykkj­ar­vatni ætti að vera skil­greindur sem sjálf­sögð mann­rétt­indi. Hann sagði að vatn væri eins og hver önnur neyslu­vara og ætti að hafa mark­aðsvirði.

Ummæli Brabecks eru í hróp­andi mót­sögn við sam­þykkt Sam­ein­uðu þjóð­anna um að allir, karlar, konur og börn, eigi að hafa aðgang að hreinu drykkj­ar­vatni og öruggri hrein­læt­is­að­stöðu.

Í grein­ar­gerð sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar tóku saman í til­efni alþjóða­dags vatns­ins, sem haldin er í mars á hverju ári, kemur fram að yfir tveir millj­arðar manna lifi í dag án öruggs neyslu­vatns og allt að fjórir millj­arðar upp­lifi alvar­legan vatns­skort að minnsta kosti einn mánuð á ári. Yfir sjö hund­ruð börn undir fimm ára aldri deyja dag­lega vegna kvilla sem tengj­ast óör­uggu drykkj­ar­vatni og ófull­nægj­andi hrein­læt­is­að­stöðu. Ef fram heldur sem horfir er talið að árið 2030 muni um sjö hund­ruð millj­ónir manna um heim allan hafa þurft að flýja heim­kynni sín vegna vatns­skorts.

Mynd / Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins