„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Samherji opinberaður

Samherji opinberaður
Sam­herj­a­menn eru lög­sóttir í Namibíu.

Sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji er eitt stærsta og áhrifa­mesta fyr­ir­tæki á Íslandi. Fyr­ir­tækið teygir anga sína víða og stjórn­endur þess hafa ekki farið leynt með vilja sinn til að hafa mikil áhrif í sam­fé­lag­inu sem þeir búa í. Samherji hefur nú verið opin­berað fyrir að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir kvóta í Namibíu og stundað stór­fellda skatta­snið­göngu til að hámarka arð sinn af þeim kvóta. Afleið­ing­arnar af þessu eru þegar orðnar marg­hátt­aðar.

Beinar afleið­ingar opin­ber­unn­ar­innar hafa líka verið miklar. Innan við sól­ar­hring eftir að Kveiks­þætt­inum lauk voru Bern­hardt Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, og Sacky Shang­hala, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, sem báðir voru þiggj­endur þess fjár sem Samherji greiddi fyrir aðgengi að kvóta, búnir að segja af sér. Þing­kosn­ingar eru framundan í Namibíu í lok mán­að­ar­ins og málið tröll­ríður nú öllum fjöl­miðlum í land­inu. Ekki er búist við því að Swapo-flokk­ur­inn, sem hefur verið nær ein­ráður í Namibíu frá því að landið fékk sjálf­stæði, missi völdin vegna máls­ins en við­búið er að það mun reyn­ast flokknum erfitt. Hversu erfitt mun koma í ljós fyrir kom­andi mán­að­ar­mót.

Á Íslandi hefur Þor­steinn Már stigið tíma­bundið til hliðar sem for­stjóri Samherja á meðan að rann­sókn fyr­ir­tæk­is­ins á eigin athæfi stendur yfir. Það gerði hann í gær, fimmtu­dag, til að tryggja „sem best hlut­leysi rann­sókn­ar­innar.“

Enn er óljóst hversu víð­feðm önnur áhrif af mál­inu verða. Ljóst er að pen­inga­þvætt­is­rann­sóknin í Noregi getur skapað mikil vand­ræði fyrir Samherja og alþjóð­lega starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins, skili hún þeirri nið­ur­stöðu að fjár­munir hafi verið þvætt­aðir í gegnum norskan rík­is­banka. Auk þess má búast við því að geta Samherja til að kom­ast yfir alþjóð­legan kvóta, t.d. innan Evr­ópu­sam­bands­ins, muni tak­markast í ljósi þess að starfs­maður fyr­ir­tæk­is­is­ins hefur lýst stór­felldum mútu­greiðslum og skattsvikum þess í Namibíu. Þá telja við­mæl­endur Kjarnans, sem starfa í alþjóð­legu við­skiptaum­hverfi, fyr­ir­sjá­an­legt að málið geti haft áhrif á önnur íslensk fyr­ir­tæki alþjóð­lega, einkum í sjáv­ar­út­vegi. Sér­stak­lega vegna þess að opin­ber­unin á Samherja kom strax í kjöl­far þess að Ísland var sett á gráan lista vegna ónógra pen­inga­varna, en sú aðgerð er þegar farin að valda ein­hverjum íslenskum fyr­ir­tækjum erf­ið­leikum í sam­skiptum við við­skipta­vini sína.

Við blasir að málið mun valda Íslandi orð­spors­hnekki alþjóð­lega. Það bæt­ist við önnur mál sem hafa verið lituð í spill­ing­ar­litum og hafa vakið athygli á Íslandi langt út fyrir lands­stein­anna, svo sem banka­hrunið og Panama-skjölin, sem sýndu að aflands­fé­laga­eign var ein­hvers­konar þjóðar­í­þrótt hjá ákveðnu lagi fjár­magns­eig­enda á Íslandi.

Á Íslandi er almenn­ingur í áfalli og í gær fór fram sér­stök umræða á Alþingi um spill­ingu, sem var sér­stak­lega sett á dag­skrá vegna Samherja.

Nánar í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins