„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnþór bað Samherjamenn um ráð til að blekkja Grænlendinga: „Reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum“

„Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Græn­landi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjár­fest­ingum, veiðum, vinnslu og hafn­ar­mann­virkjum ef menn myndu vera setja upp fiski­mjöls og upp­sjáv­ar­verk­smiðju í Amma­salik aust­ur­strönd Græn­lands.“

Gunnþór bað Samherjamenn um ráð til að blekkja Grænlendinga: „Reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum“
Gunnþór Ingvason fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar.

Á þessum orðum hefst tölvu­póstur sem Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað sendi 30. apríl 2014 til Aðal­steins Helga­sonar, Jóhann­esar Stef­áns­sonar og manns hjá Samherja sem hefur net­fangið [email protected]

Tölvu­póst­ur­inn sem ber yfir­skrift­ina Að nema nýjar lendur er hluti skjala sem Wikileaks hefur birt. Henrik Leth er stjórn­ar­for­maður Polar Seafood sem mun vera stærsta fyr­ir­tæki í einka­eigu á Græn­landi.

Frétta­blaðið fjallar um málið í dag.

„Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru ein­hverjir heima­menn í Græn­landi með ein­hverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórn­völdum með því að þykj­ast vera fara byggja upp á Austur Græn­landi,“ und­ir­strikar Gunnþór í pósti sínum. „Eigið þið ekki til­búna ein­hverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um Afríku?“

Sam­herj­a­menn tóku vel í beiðn­ina og svarar Jóhannes: „Það er kannski spurn­ing um að taka frá Marokkó, hvað seg­irðu um það?“ og beinir þá spurn­ing­unni til áður­nefnds Sigga.

„Gunnþór, ertu að leit­ast eftir ein­hverju ýtar­legu eða bara í kynn­ing­ar­formi?“ spyr hann síðan stjórn­anda Síld­ar­vinnsl­unnar.

„Nei, bara punktum hvað þarf,“ svarar Gunnþór.

Aðal­steinn Helgason var einn af lyk­il­starfs­mönnum Samherja í á þriðja ára­tug þar til hann lét af störfum 2016.

Gunnþór vildi ekki tjá sig um málið þegar Frétta­blaðið leit­aði eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins