„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nýja Ísland: Nokkrir stórir leikendur í íslensku viðskiptalífi

Hér inn­an­lands er hins vegar að finna ansi kröft­ugar fjár­fest­inga­blokkir einka­fjár­festa sem hafa verið að láta á sér kræla í fjár­fest­ingum í atvinnu­líf­inu. Og hafa getu til að gera enn meira. Hér eru nokkrir stórir leik­endur.

Nýja Ísland: Nokkrir stórir leikendur í íslensku viðskiptalífi
|Svan­hildur Nanna .|Guðrún Lár­us­dóttir.|Helgi Magn­ús­son.|Hregg­viður Jónsson.

Lítill sem eng­inn áhugi virð­ist vera erlendis frá á mik­illi fjár­fest­ingu hér­lendis, eins og sást ljós­lega þegar bindi­skylda var lækkuð niður í núll fyrr á þessu ári, aðgerð sem var til þess fallin að reyna að örva erlenda fjár­fest­ingu. Síðan það var gert hefur erlend fjár­fest­ing verið minni en hún var á sama tíma í fyrra. Þetta er hið nýja Ísland.

Eftir stendur mark­aður sem þarf þá virki­lega á nýju blóði að halda en virð­ist í erf­ið­leikum með að trekkja að nýja fjár­fest­ingu. Hér inn­an­lands er hins vegar að finna ansi kröft­ugar fjár­fest­inga­blokkir einka­fjár­festa sem hafa verið að láta á sér kræla í fjár­fest­ingum í atvinnu­líf­inu. Og hafa getu til að gera enn meira.

Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir.

Töluvert hefur farið fyrir hópnum sem ráðið hefur í trygg­inga­fé­lag­inu VÍS á und­an­förnum árum. Þar er um að ræða hjónin Svan­hildi Nönnu Vig­fús­dóttur og Guðmund Örn Þórð­ar­son, sem eiga 7,25 pró­sent hlut í VÍS, 6,93 pró­sent í Kviku banka og hlut í Korta­þjón­ust­unni í gegnum félag sitt K2B ehf. Innan VÍS hafa þau myndað blokk með nokkrum öðrum einka­fjár­festum, meðal ann­ars Óska­beins­hópnum, sem á 2,48 pró­sent í VÍS, og er í eigu Gests Breið­fjörð Gests­sonar, Sigurðar Gísla Björns­sonar, Andra Gunn­ars­sonar og Fannars Ólafs­sonar.

Brim­garðar, félag í eigu systk­in­anna Eggerts Árna, Guðnýjar Eddu, Gunnars Þórs og Halldórs Páls Gísla­barna, er nokkuð umfangs­mikið í skráðum eignum, sér­stak­lega í fast­eigna­fé­lögum. Það á í Eik (6,9 pró­sent), Reitum (2,1 pró­sent), í Reginn (2,73 pró­sent) og Heima­völlum (3,01 pró­sent). Brim­garðar hafa líka átt hlut í Icelandair. Eigið fé Brim­garða nam 2.959 millj­ónum króna í lok síð­asta árs en á sama tíma átti félagið eignir upp á 10.998 millj­ónir króna.

Hregg­viður Jónsson.

Félagið Stormtré er að stærstu leyti í eigu Hregg­viðs Jóns­sonar. Það er aðal­eig­andi Veritas Capital sem á meðal ann­ars Vistor, sem flytur inn til Íslands lyf og aðrar tengdar vörur. Auk þess á Stormtré 2,5 pró­sent hlut í smá­sölu­fé­lag­inu Festi.
Eigið fé Storm­trés var 6,8 millj­arðar króna í lok síð­asta árs.

Snæból er fjár­fest­inga­fé­lag í jafnri eigu hjón­anna Finns Reyrs Stef­áns­sonar og Stein­unnar Jóns­dóttur. Það á stóran hlut í Sjóvá (8,64 pró­sent), í Heima­völlum (7,47 pró­sent) auk þess sem það á þrjú pró­sent hlut í Eyri Invest, stærsta eig­anda Marel. Alls átti Snæból um tíu millj­arða króna í eigin fé um síð­ustu ára­mót.

Guðrún Lár­us­dóttir.

Stálskip var stofnað sem útvegs­fyr­ir­tæki árið 1970 en seldi frysti­togar­ann sinn og allan kvóta árið 2014. Í kjöl­farið var því breytt í fjár­fest­inga­fé­lag, en það er í eigu hjón­anna Guðrúnar Lár­us­dóttur og Ágústs Sig­urðs­sonar og þriggja barna þeirra. Guðrún er fram­kvæmda­stjóri, en hún er 86 ára gömul. Á meðal fjár­fest­inga Stál­skipa má nefna 8,59 pró­sent hlut í Heima­völlum en alls voru eignir félags­ins metnar á 11,9 millj­arða króna í lok síð­asta árs. Þar af voru verð­bréf sem metin voru á 3,1 millj­arð króna en uppi­staðan, 6,3 millj­arðar króna, voru geymdar á banka­bók.

Þá verður að telja til félagið 365 ehf., sem á nú end­ur­komu í heim hluta­bréfa­fjár­fest­inga, fyrst með kaupum í Högum og svo í Skelj­ungi eftir að það los­aði sig út úr fjöl­miðla­rekstri eftir 16 ár í slíkum. Eigandi þess er Ingi­björg Pálma­dóttir og eig­in­maður hennar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sett­ist nýverið í stjórn Skelj­ungs þar sem 365 á 4,32 pró­sent hlut.

365 seldi fjöl­miðla sína til tveggja aðila. Annars vegar til fjar­skipta­fé­lags­ins Sýnar, þar sem Heiðar Guð­jóns­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður og núver­andi for­stjóri, er stærsti ein­stak­lings­hlut­haf­inn í gegnum Ursus (9,2 pró­sent). Heiðar á líka stóran hlut í HS Veitum. Sýn keypti ljós­vaka­miðla 365 og vef­inn Vísir.is.

Helgi Magn­ús­son.

Hinn aðil­inn sem keypti fjöl­miðla af 365 var Helgi Magn­ús­son, sem á nú Frétta­blaðið og tengda miðla að öllu leyti. Hann hefur verið mjög umsvifa­mik­ill í íslensku athafna­lífi á und­an­förnum árum í gegnum félögin Hofgarða, Varðberg og Eign­ar­halds­fé­lagið Hörpu, sem hann á með öðrum. Hann hefur til að mynda átt hluti í Bláa lón­inu, þar sem hann er stjórn­ar­for­maður, og hefur lengi átt vænan hlut í Marel, en hann hefur verið að selja sig niður þar und­an­farið. Helgi hefur fjár­fest í Iceland Seafood, Stoðum og Kviku banka á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins