„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Við eigum Ísland, við eigum bara eftir að taka það

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hér­lendis eru stærstu fjár­festar og lán­veit­endur á Íslandi. Þeir eru í eigu sjóðs­fé­laga en ný og rót­tæk verka­lýðs­for­ysta er á þeirri skoðun að atvinnu­rek­endur hafi allt of mikil áhrif innan þeirra. Í und­ir­bún­ingi, og í sumum til­vikum í fram­kvæmd, er að auka áhrif verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og sjóðs­fé­laga í sjóð­unum og láta þá horfa af meiri alvöru til ann­arra þátta en arð­semi í starf­semi sinni.

Við eigum Ísland, við eigum bara eftir að taka það

Rót­tæk­ari og her­skrárri verka­lýðs­for­ysta hefur kom­ist til valda í stærstu verka­lýðs­fé­lögum lands­ins og innan Alþýðu­sam­bands Íslands. Og hún telur sig geta tekið til sín miklu meiri völd um hvernig sam­fé­lagið þró­ast.

Sverrir Mar Alberts­son, fram­kvæmda­stjóri AFLs starfs­greina­sam­bands, sem tap­aði for­manns­kosn­ingum í ASÍ í fyrra náði ágæt­lega utan um þessa afstöðu á fundi sem Efling stóð fyrir á meðan að for­manns­bar­áttan stóð yfir. Þar sagði hann: „Stundum þegar ég vil fá jarð­teng­ingu við hvað ég er að gera þá fer ég í bækur sem hafa verið skrif­aðar, t.d. saga verka­lýðs­fé­lag­anna. Fyrsta verka­lýðs­fé­lagið fyrir austan er stofnað 1896. Þegar maður les fund­ar­gerðir frá fyrstu fund­unum … þetta er fólk sem bjó í nán­ast mold­ar­kofum, áhyggju­efnin voru hvort að börnin fengu mat dag­inn eftir. Menn voru settir út á kaldan klaka og fengu ekki atvinnu ef þeir voru í for­ystu fyrir verka­lýðs­fé­lagið. Í dag, félögin sem þetta fólk stofn­aði, við eigum Ísland. Það eina sem við eigum eftir að gera er að taka það.“
Mót­fram­bjóð­andi Sverris, Drífa Snædal sem síðar vann for­manns­kosn­ing­arnar, sagð­ist vera honum sam­mála.

Verka­lýðs­for­ystan getur mjög sýni­lega haft áhrif á fjár­fest­inga­stefnu líf­eyr­is­sjóða, enda skipar hún fjölda stjórn­ar­manna í sjóð­ina. Efling hefur til að mynda mikil áhrif í stjórn Gildis og hefur þegar látið kjósa Stefán Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og sér­fræð­ing hjá félag­inu, í stjórn hans.

VR er komið enn lengra í ferli sínu til að hafa veru­leg áhrif innan Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Þar skipar VR helm­ing stjórn­ar­manna og er með stjórn­ar­for­manns­sætið sem stendur. Við­mæl­endur Kjarnans segja ljóst að Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hafi lengi haft það að meg­in­stefnu að hafa meiri áhrif á það hvernig þessi næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, með um 800 millj­arða króna eignir, beitir sér í íslensku sam­fé­lagi.
Eftir að Ragnar Þór var end­ur­kjör­inn for­maður fyrr í ár, og kjör ann­arra stjórn­ar­manna skömmu síðar styrkti stöðu hans veru­lega, hafa verkin verið látin tala.

Fyrstu skrefin stigin, stóru skrefin framundan

Á fundi sem hald­inn var í full­­­­­­­­trú­a­ráð­i VR í Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóð­i verzl­un­­­­ar­­­­manna ­í júní síð­­­­ast­liðnum var sam­­­­­­­­þykkt að aft­­­­­­­­ur­­­­­­­­kalla umboð stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­­­­sjóðs verzl­un­­­­ar­­­­manna og var að auki sam­­­­­­­­þykkt til­­­­­­­­laga um nýja stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­menn til­­­­­­ bráða­birgða. Áður­­­­­­ hafði stjórn­­­­­­ VR­­­ lýst yfir trún­­­­­­­­að­­­­­­­­ar­bresti gagn­vart stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­mönnum félags­­­­­­­­ins hjá sjóðnum vegna sam­­­­­­­­þykktar stjórnar hans um hækkun breyt­i­­­­­­­­legra vaxta verð­­­­­­­­tryggðra sjóð­­­­­­­­fé­laga­lána.

Ragnar Þór sagði, þegar þetta stóð yfir, að lík­­­­­­­lega væri það eina ­leiðin til raun­veru­­­­­legra breyt­inga að sjóð­­­­­fé­lagar líf­eyr­is­­­­­­sjóð­anna kjósi stjórnir þeirra beint. Þannig væri hægt að aftengja atvinn­u­lífið og verka­lýðs­hreyf­­­­ing­una sem hann sagði að væri í ákveð­inn­i ­mót­­­­sögn við sjálfa sig sem fjár­­­­­­­magns­eig­anda. Skömmu síðar sagði hann að þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafi náð innan líf­eyr­is­sjóð­anna séu engan veg­inn ásætt­an­legt og að það hljóti að vera mark­mið verka­lýðs­hreyf­ing­unn­ar að losa sjóð­inn undan því oki.

Við­mæl­endur Kjarnans segja að í und­ir­bún­ingi séu miklar breyt­ingar hjá líf­eyr­is­sjóðnum, gangi áform VR eftir. Þar verði litið bæði fram á við, með breyttum áherslum í fjár­fest­ingum og beit­ingu hlut­hafa­valds, og aftur á bak með rann­sóknum á gjörn­ingum sem grunur sé um að hafi ekki verið fram­kvæmdir með hags­muni sjóðs­fé­laga að leið­ar­ljósi. Þar er efst á blaði salan á hlut Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í Bakkavör sem Ragnar Þór hefur opin­ber­lega sagt að gæti verið eitt stærsta fjársvika­mál Íslands­sög­unnar og farið fram á opin­bera rann­sókn á hvort líf­eyr­is­sjóðir hafi verið blekktir.

Nánar í nýjasta Mannlífi og á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins