„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðrún féll frá 27 ára-Söfnun til að flytja hana heim:„Ein hjartahlýjasta manneskja sem við áttum“

Guðrún María var aðeins 27 ára þegar hún lést 29. októ­ber í Þránd­heimi í Noregi. Það eina sem hún vildi var að koma heim til Íslands til fjöl­skyldu sinnar og því hefur verið hrundið af stað söfnun til að flytja jarð­neskar leifar hennar heim og jarð­setja hana á Íslandi.

Guðrún féll frá 27 ára-Söfnun til að flytja hana heim:„Ein hjartahlýjasta manneskja sem við áttum“
|Syst­urnar Guðrún María og Ragna Klara

„Vegna mik­ils kostn­aðar við slíkan flutn­ing langar okkur að biðla til ykkar um aðstoð og hrinda af stað söfnun. Allur styrkur er vel þeg­inn og margt smátt gerir eitt stórt,“ segir í Facebook-hópi sem stofn­aður hefur verið.

„Guðrún var ein hjarta­hlýjasta mann­eskja sem við áttum í okkar lífi og hún vildi svo sann­ar­lega lifa en þetta var bara hörmu­legt slys sem eng­inn gat komið í veg fyrir. Svo viljum við þakka öllum okkar nán­ustu fyrir allan þann stuðn­ing sem þau hafa veitt á þessum erf­iðu tímum.“

Styrkt­ar­reikn­ingur fyrir þá sem vilja leggja söfn­un­inni lið:
Reikn­ings­númer: 0370-22-019156
Kennitala: 040965-5059

IBAN númer: IS820370220191560409655059
Adresse: Arion banki, Smara­torg, 201 Kopa­vogur, Island
SWIFT: ESJAISRE

Syst­urnar Guðrún María og Ragna Klara

Guðrúnu er lýst sem vina­margri, góðri og hlýrri mann­eskju. Í lýs­ingu Facebook-hópnum segir:

„Guðrún María ólst upp í Smára­hverfi í Kópavogi frá 7 ára aldri eftir að hafa búið í Noregi sem barn. Hún var vina­mörg enda góð og hlý við alla. Hún þurfti mikið knús og athygli en þró­aði eins og mörg önnur börn fljótt með sér kvíða, kvíð­ann sem á end­anum leiddi hana út í heim neysl­unnar.

Guðrún vildi ekk­ert heitar síð­ustu daga en að koma heim til fjöl­skyld­unnar sinnar og var það svo sann­ar­lega planið en end­aði með skelfi­legum afleið­ingum sökum mik­illar van­líð­unar. Guðrún vildi lifa.

Hún á skilið að koma heim eins og hún er og viljum við fjöl­skyldan hennar að hún verði kistu­lögð hér á Íslandi. Það er kostn­aður sem því fylgir sem við þörfn­umst hjálpar við að standa undir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins