„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hagræðing og einangrun?

Eins og rakið var í frétta­skýr­ingu í Mannlífi fyrir skemmstu undir fyr­ir­sögn­inni „Hvað er að ger­ast í hag­kerf­inu?“ þá bendir margt til þess að tölu­verður hæga­gangur sé nú í hag­kerf­inu.

Hagræðing og einangrun?

Mikill sam­dráttur hefur verið í inn­flutn­ingi, eða um sem nemur 9 pró­sentum miðað við árið í fyrra, og einka­neysla hefur dreg­ist tölu­vert saman.

Í sam­tölum við sér­fræð­inga og grein­endur á fjár­mála­mark­aði, mátti greina tölu­verðar áhyggjur af þess­ari stöðu, jafn­vel þótt und­ir­stöð­urnar í hag­kerf­inu væru traustar, það er að skuldir heim­ila og fyr­ir­tækja væru ekki of miklar.

Það sé kom­inn upp nýr veru­leiki sem erfitt sé að lesa í hvernig muni þró­ast. Þótt stýri­vaxta­lækk­anir séu af hinu góða, og í takt við Lífs­kjara­samn­inga aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda, þá er það ládeyðan á mark­aði – ekki síst hluta­bréfa­mark­aðnum – sem við­mæl­endum fannst gefa til­efni til þess að ákveð­inn doði sé að mynd­ast í hag­kerf­inu, eins og er víða vanda­mál í heim­inum um þessar mundir.

Hag­vaxt­ar­spár gera ráð fyrir litlum sem engum hag­vexti á þessu ári, eftir 4,6 pró­sent hag­vöxt í fyrra. Á næsta ári mun hag­kerfið taka við sér aftur, að mati flestra grein­enda. Það er hins vegar háð því að það tak­ist að spyrna við fótum.

Eins og staðan er núna, virð­ist lík­legt að vet­ur­inn muni ein­kenn­ast af frek­ari hag­ræð­ingu, með fækkun starfa og breyt­ingum í hag­kerf­inu. Það er ekki víst að það heyr­ist mikið af því í formi hóp­upp­sagna, heldur frekar að fyr­ir­tæki muni draga saman seglin – í eilífri leit að betri rekstr­ar­grund­velli.

Þá eru áhrifin af auk­inni sjálf­virkni­væð­ingu einnig ekki hluti af ein­hverri fjar­lægri fram­tíð, heldur má sjá slíka þróun glögg­lega í nýjum samn­ingum fyr­ir­tækja. Í vik­unni var til­kynnt um kaup Brims á tækjum og tækni frá Marel, sem mun gera bol­fisk­vinnslu fyr­ir­tæk­is­ins þá full­komn­ustu í heimi.

Hún mun þurfa mun færri hendur en hún gerir núna, en um leið verða afkasta­meiri og stuðla að betri nýt­ingu hrá­efnis. Þó að íslenskur sjáv­ar­út­vegur hafi lengi verið á þess­ari veg­ferð – með auk­inni vél­væð­ingu og sjálf­virkni – má gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram á næst­unni, af meiri hraða og krafta en und­an­farin ár.

Fyrir rúm­lega 200 þús­und manna vinnu­mark­að­inn á Íslandi, getur hvert til­felli þar sem störfum fækkar tölu­vert í einni svipan með auk­inni tækni og sjálf­virkni, valdið titr­ingi, t.d. hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni, eins og eðli­legt er.

Lesa má frétta­skýr­ing­una í heild í nýjasta Mannlífi.

Höfundur / Magnús Hall­dórs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins