„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Arion banki 13 árum eftir á: Vísa til eldri laga um peningaþvætti

Líkt og kom fram í fréttum fyrir helgi þá er Ísland komið á gráan lista FATF yfir þau lönd sem eru undir eft­ir­liti, þar sem þau hafa ekki upp­fyllt skil­yrði um aðgerðir til að sporna gegn pen­inga­þvætti.

Arion banki 13 árum eftir á: Vísa til eldri laga um peningaþvætti
Mynd / Hákon Davíð

Sjá einnig: Ísland á gráan lista vegna pen­inga­þvættis

Lög um pen­inga­þvætti númer 140/2018 tóku gildi  1. jan­úar 2019, en frum­varp til þeirra laga var lagt fram af Sigríði Á. Andersen þáver­andi dóms­mála­ráð­herra 5. nóv­em­ber 2018. Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis afgreiddi málið 12. des­em­ber, og eftir tvær umræður þann dag varð frum­varpið að lögum með öllun greiddum atkvæðum þing­manna.

Vera Íslands á gráa list­anum hefur valdið titr­ingi meðal fjár­mála­fyr­ir­tækja, en í sam­tali við Mbl.is seg­ist Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir von­ast til að Ísland fari af list­anum í febr­úar eða júní á næsta ári. „Ég tel að það sé lítið sem út af stend­ur en engu að síður er það al­var­legt að við séum á þess­um lista og við mun­um gera allt í okk­ar valdi til að fara af hon­um sem fyrst.“

Þegar heima­síður bank­anna eru skoð­aðar vekur athygli að tveir þeirra, Arion banki og Lands­banki vísa til eldri laga um pen­inga­þvætti frá árinu 2006, en reglur bank­anna eru settar á grund­velli þeirra laga. Virðast þó hvorki regl­urnar hafa verið sam­ræmdar núgild­andi lögum eða vísan í þau upp­færð á heima­síðum bank­anna.

Í fyrstu grein reglna Arion banka segir:
1. TILGANGUR OG GILDISSVIÐ Það er stefna Arion banka að berj­ast gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og koma í veg fyrir að þjón­usta bank­ans sé mis­notuð í slíkum til­gangi. Regl­urnar byggja á stefnu bank­ans um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og tengdum stjórn­valds­fyr­ir­mælum. Þær skyldur sem kveðið er á um í reglum þessum gilda um sér­hvern starfs­mann bank­ans og stjórn­ar­menn. Sjá einnig hér

Reglur Lands­bank­ans má sjá hér.

Íslands­banki vísar hins vegar á heima­síðu sinni til núgild­andi laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins