„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins: Með háar tekjur, litlar áhyggjur af spillingu en telja efnahagsástandið gott

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síð­ustu könn­unum MMR sem sýna hver lík­leg­asta áferð með­al­kjós­anda hvers flokks er.

Kjósendur Sjálfstæðisflokksins: Með háar tekjur, litlar áhyggjur af spillingu en telja efnahagsástandið gott

Þar kemur fram að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru gjarnan með háar tekjur, litlar áhyggjur af spill­ingu en telja efna­hags­á­standið gott.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn stærsti flokkur lands­ins þótt fylgi hans hafi fallið hratt und­an­farin miss­eri og aldrei mælst jafn­lágt í könn­unum MMR og það gerir nú um stundir. Þegar nið­ur­stöður kann­ana fyr­ir­tæk­is­ins í ágúst og sept­em­ber eru lagðar saman kemur fram að stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk­inn mælist 18,7 pró­sent.

Flokk­ur­inn hefur sögu­lega verið mjög sterkur á meðal eldri kjós­enda. Þannig er staðan ekki lengur og virð­ist sem tölu­verður fjöldi þeirra sem til­heyra elstu ald­urs­hóp­unum hjá kjós­endum hans hafi nú leitað á önnur mið, aðal­lega til Mið­flokks­ins. Nú er stuðn­ingur við flokk­inn nokkuð dreifður milli ald­urs­hópa og eng­inn sér­stakur sem sker sig úr.

Sama má segja um stuðn­ing við flokk­inn milli lands­hluta. Mestur er stuðn­ing­ur­inn á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum, þar sem 24,1 pró­sent kjós­enda seg­ist ætla að kjósa gamla turn­inn. Það vekur hins vegar athygli að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur minnst stuðn­ings í Suð­ur­kjör­dæmi, þar sem hann sögu­lega hefur verið mjög sterkur. Þar hefur fylgni við flokk­inn dreg­ist hratt saman. Í maí sögð­ust til að mynda 26 pró­sent kjós­enda þar styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en nú er það hlut­fall 15,6 pró­sent.

Það sem helst ein­kennir kjós­enda­hóp Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að stuðn­ingur við hann eykst merkj­an­lega eftir því sem tekjur hækka. Þannig nýtur flokk­ur­inn minnst stuðn­ings í hópi þeirra sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur, 11,9 pró­sent, og er með fjórða mesta fylgi allra flokka hjá þeim hópi. Stuðn­ing­ur­inn er hins vegar mestur hjá þeim sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í heim­il­is­tekjur, alls 25,4 pró­sent, og hjá þeim hópi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn langstærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins.

Fyrri kann­anir MMR á ýmsum álita­málum mann­legrar til­veru hafa sýnt að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa minnstar áhyggjur allra kjós­enda af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum og minnstar áhyggjur allra af fátækt eða félags­legum ójöfn­uði. Þeir eru hins vegar lík­leg­astir allra til að telja efna­hags­stöð­una á Íslandi góða, en 87 pró­sent kjós­enda flokks­ins höfðu þá skoðun sam­kvæmt könnun sem fram­kvæmd var fyrr á þessu ári. Þá eru Sjálf­stæð­is­menn lík­legri en kjós­endur ann­arra flokka til að vera fylgj­andi veggjöldum.

Ítarlega umfjöllun er að finna á vef Kjarnans og í nýjasta Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins