„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Úr kjólum í kokkagalla

Leik­konan Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir varð að þjóð­ar­eign í fyrsta hlut­verki hennar sem söng­konan ást­sæla Henný Eldey Vil­hjálms­dóttir eða eins og hún var best þekkt, Elly Vil­hjálms. Fyrsta hlut­verk Katrínar eftir Elly er gjör­ó­líkt verk­efni, hlut­verk í far­s­anum Sex í sveit.

Úr kjólum í kokkagalla
Farsinn Sex í sveit

„Ég var reyndar í verk­inu Sýningin sem klikkar, með fram Elly, en Sex í sveit er fyrsta sýn­ingin mín eftir að Elly lauk,“ segir Katrín Halldóra sem er fast­ráð­inn leik­ari hjá Borg­ar­leik­hús­inu.

„Það verður nóg að gera, ég verð á þremur sýn­ingum á Stóra svið­inu í vetur,“ segir Katrín Halldóra. Sex í sveit verður frum­sýnt 5. októ­ber, Vanja frændi, í jan­ú­ar­byrjun og síðan söng­leik­ur­inn Níu líf, í mars en hann fjallar um ævi og tón­list hins eins sanna Bubba.

Í hlut­verki Ellyjar stóð Katrín Halldóra á sviði í hverjum gala­kjólnum á fætur öðrum. Í Sex í sveit klæð­ist hún hins vegar kokkagalla og tekst á við hlut­verk sem ein fyndn­asta kona lands­ins lék fyrir tveimur ára­tugum.

„Ég leik kokk frá veislu­þjón­ustu Sex­baut­ans á Akureyri, þetta er hlut­verk sem Edda Björg­vins lék og gerði frægt fyrir 20 árum þegar leik­ritið var sett upp síð­ast. Og ég lendi svo­lítið inni í þess­ari lyga­flækju sem verður til þarna á svið­inu. Þetta er rosa­lega gaman, þetta er ekk­ert smá­skemmti­leg rulla og ég reyni bara að gera hana að minni. Það er gaman að fá að grín­ast og hlæja með fólki á svið­inu, það er mjög erfitt að halda and­liti, þetta er oft ótrú­lega fyndið. Það gengur á ýmsu og lygarnar verða alltaf fleiri og fleiri og maður flæk­ist alltaf meira og meira inn í lyga­vef­inn.“

En á 20 ára gam­all farsi við enn þann dag í dag? „Húmor hefur breyst rosa­lega mikið síð­ustu 20 árin þannig að það verða lík­lega ein­hverjar breyt­ingar á hvernig horft verður á farsa í dag. Þannig að það verður spenn­andi að sjá, en ég held að þetta sé ekta kvöld­stund fyrir fólk til að skella sér út og hafa gaman og gleyma sér og skemmta sér saman,“ segir Katrín Halldóra.

Katrín Halldóra Sig­urð­ar­dóttir. Mynd / Hákon Davíð

„Markmið leiksýninga að búa til skemmtilegar samverustundir“

Katrín Halldóra segir að nú sé kom­inn tími til að skella sér í leik­hús, hlæja og hafa gaman. „Það er aðal­mark­miðið að búa til móment og sam­veru­stundir sem eru skemmti­legar. Það verður gaman að sjá hvernig verður tekið í þennan farsa.“

Katrín Halldóra kemur frá Nes­kaup­stað og býr í Mos­fellsbæ. Kokk­ur­inn sem hún leikur kemur hins vegar, eins og áður sagði, að norðan. „Ég er að leika Akur­eyr­ing með norð­lenskan hreim þannig að það verður gaman að glíma við það. Það er eig­in­lega stærsta verk­efni mitt að glíma við norð­lenska hreim­inn,“ segir Katrín Halldóra í gríni.

„Aðal­verk­efnið núna er að halda and­liti á svið­inu.“

Með­leik­arar hennar í sýn­ing­unni eru Haraldur Ari Stef­áns­son, Jörundur Ragn­ars­son, Sigurður Þór Ósk­ars­son, Sólveig Guð­munds­dóttir og Vala Kristín Eiríks­dóttir. Gísli Rúnar Jónsson sá um að íslenska verk hins franska Marc Camoletti og Bergur Þór Ing­ólfs­son leik­stýrir.

„Við verðum með rennsli á sýn­ing­unni fyrir áhorf­endur alla vik­una fram að frum­sýn­ingu og það mun pott­þétt eitt­hvað skemmti­legt koma upp á. Það er aðal­verk­efnið núna að halda and­liti á svið­inu, hin eru svo fyndin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Hinn dauðvona „Harold Bishop“ fékk gleðitíðindi: „Þeir geta ekki sagt að krabbameinið sé farið“
Heimurleiklist

Hinn dauð­vona „Harold Bishop“ fékk gleði­tíð­indi: „Þeir geta ekki sagt að krabba­meinið sé farið“

Nágranna­goð­sögnin Ian Smith var sagt að hann myndi ekki lifa fram að mars­mán­uði, eftir að hafa barist við árás­ar­gjarnt form lungna­krabba­meins, en nýlegar fréttir frá lækn­unum hafa gefið honum von um fram­leng­ingu á lífi. Ian Smith, ást­sæli leik­ar­inn sem lék Harold Bishop í áströlsku sápu­óp­er­unni Nágrönnum (e. Neighbours) í ára­tugi, var sagt að hann myndi ekki lifa fram í mars...
Vill að RÚV geri samning við Vesturport um árlegar þáttaraðir:„Allt small hér sem best mátti verða“
Menning

Vill að RÚV geri samn­ing við Vest­ur­port um árlegar þátt­araðir:„Allt small hér sem best mátti verða“

„Mikið megum við vera þakk­lát fyrir þá stór­kost­lega vel heppn­uðu þætti um líf elsku Vigdísar okkar allra, sem haldið hafa okkur hug­föngnum und­an­farin sunnu­dags­kvöld.“ Þannig hefst lof­ræða Jakobs Frímanns Magn­ús­sonar um þætt­ina um Vigdísi Finn­boga­dóttur, sem slegið hafa í gegn að und­an­förnu. Jakob stingur upp á því að RÚV geri sér­stakan samn­ing við Vest­ur­port, sem gerði þætt­ina um Vigdísi, um...
Gunnar gerir upp andlát foreldra sinna: „Þá er gott að eiga vini“
Menning

Gunnar gerir upp and­lát for­eldra sinna: „Þá er gott að eiga vini“

Leik­ar­inn og hand­rits­höf­und­ur­inn Gunnar Smári Jóhann­es­son sýnir um þessar mundir ein­leik­inn Félags­skapur í Tjarn­ar­bíó en í verk­inu gerir Gunnar upp and­lát for­eldra sinna sem lét­ust þegar hann var barn. „Í raun og veru fjallar þetta í grófum dráttum um félags­kvíða sem ég upp­lifði eftir and­lát for­eldra minna í æsku,“ sagði Gunnar í við­tali á RÚV um verkið en það fjallar...
Jón Gnarr og Edda Björgvins leika hjón: „Ég á fulla von á að þessir þættir muni slá í gegn“
Menning

Jón Gnarr og Edda Björg­vins leika hjón: „Ég á fulla von á að þessir þættir muni slá í gegn“

For­seta­fram­bjóð­and­inn Jón Gnarr hefur heldur betur um nóg að snú­ast þessa dag­ana. Jón Gnarr skrif­aði færslu í morgun þar sem hann lýsti ansi stífri dag­skrá sinni þessi dægrin en hann mun til að mynda brátt leika í nýjum sjón­varps­þáttum ásamt Eddu Björg­vins­dóttur. „Gær­dag­ur­inn var vel pakk­aður af verk­efnum. Byrjaði dag­inn á fyrsta sam­lestri á sjón­varps­þáttum sem ég er að gera...
„Harry Klein“ liggur á dánarbeðinum: „Hún höndlar aðstæðurnar ótrúlega vel“
Heimurleiklist

„Harry Klein“ liggur á dán­ar­beð­inum: „Hún höndlar aðstæð­urnar ótrú­lega vel“

Þýski leik­ar­inn Fritz Wepper, sem þekkt­astur er á Íslandi fyrir hlut­verk sitt sem Harry Klein í saka­mála­þátt­unum Derrick, liggur á dán­ar­beð­inum sínum á hjúkr­un­ar­heim­ili í Efri-Bæj­ara­landi. Þar er honum veitt líkn­andi með­ferð en hann er hættur að taka lyfin sín. Fritz, (82) hefur verið á hjúkr­un­ar­heim­il­inu síð­ustu daga en eig­in­kona hans, Susanne Kell­er­mann, (49) og dóttir þeirra Filippa (12) hafa...
Engin jarðarför fyrir Nágranna-leikarann: „Frjáls andi sem ekki var hægt að halda aftur af“
Heimurleiklist

Engin jarð­ar­för fyrir Nágranna-leik­ar­ann: „Frjáls andi sem ekki var hægt að halda aftur af“

Engin jarð­ar­för verður fyrir Nágranna-stjörn­una Troy Beckwith, sem lést á dög­unum aðeins 48 ára að aldri. Samkvæmt systur Troy, lést leik­ar­inn, sem þekkt­astur var fyrir hlut­verk sitt sem Michael Martin í Nágrönnum frá 1992 til 1998, eftir erf­iða bar­áttu við krabba­mein. Ættingi Troy, Shane Beckwith sagði á sam­fé­lags­miðlum frá dán­ar­or­sökum frænda síns í dag. „Fjöl­skyldan vill að allir viti að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins