„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Thunberg vegur nettröllin, með sannleikann að vopni

Aðgerðasinn­inn Greta Thunberg kom, sá og sigr­aði heims­byggð­ina með eld­móð sínum og bar­áttu­anda. Eins og við var að búast hefur hún í kjöl­farið verið nídd og van­virt á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum. Gagn­rýnendur segja hana strengja­brúðu, lygara, ófríða og geð­veika. En hún heldur ótrauð áfram.

Thunberg vegur nettröllin, með sannleikann að vopni
Greta Thunberg.

„Þegar hat­arar tala um útlitið þitt eða að þú sért öðru­vísi þá þýðir það að þeir hafa ekk­ert annað að tala um. Og þá veistu að þú ert að sigra!“ sagði aðgerðasinn­inn Greta Thunberg á Twitter í byrjun mán­að­ar­ins, sem svar við þeirri gagn­rýni sem hún hefur mætt frá því hún hóf mót­mæli gegn ham­fara­hlýnun fyrir um ári.

Í kjöl­far ræðu hennar á þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna á mánu­dag, þar sem hún las yfir hausa­mótum leið­toga heims, hefur sví­virðan sem hún hefur mátt þola í netheimum og víðar auk­ist til muna. Á sam­fé­lags­miðlum hefur Thunberg, sem er 16 ára, verið kölluð hóra og strengja­brúða, ýmist for­eldra sinna eða valda­mik­illa hags­muna­að­ila, og í fjöl­miðlum hefur hún verið sögð geð­veik vegna Asperger-grein­ingar sinnar og sökuð um að valda heilli kyn­slóð barna van­líðan með stað­hæf­ingum sínum um lofts­lags­vána.

„Þegar hat­arar tala um útlitið þitt eða að þú sért öðru­vísi þá þýðir það að þeir hafa ekk­ert annað að tala um. Og þá veistu að þú ert að sigra!“

„Þið hafið stolið draumum mínum og barn­æsku með inn­an­tómum orðum ykkar,“ sagði hún á þing­inu eins og frægt er orðið. „Augu allra fram­tíð­ar­kyn­slóða eru á ykkur. Og ef þið veljið að bregð­ast okkur þá segi ég: við munum aldrei fyr­ir­gefa ykkur,“ sagði Thunberg, sem sigldi á umhverf­is­vænum bát yfir Atl­ants­hafið til að flytja ræðu sína. Flestir hlóðu lofi á hinn unga eld­huga, sem á millj­ónir aðdá­enda um allan heim, en aðrir voru fljótir að finna að afdrátt­ar­lausri nálgun Thunberg, sem hefur ítrekað að hún sé aðeins að benda á vís­inda­legar stað­reyndir.

Scott Morrison, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, sagð­ist skilja að umræðan um lofts­lags­breyt­ingar vekti sterkar til­finn­ingar en ítrek­aði að það væri mik­il­vægt að setja hlut­ina í sam­hengi og full­vissa ungu kyn­slóð­ina um að fram­tíðin væri björt. „Ég vil ekki að börnin okkar séu full kvíða vegna þess­ara mála,“ sagði hann meðal ann­ars, spurður um ræðu Thunberg á mið­viku­dag­inn. Morrison hafði áður lýst yfir áhyggjum vegna skróp­mót­mæla Thunberg og kall­aði í fyrra eftir „auk­inni mæt­ingu í skóla, minni aðgerða­isma.“

Margir gagn­rýnendur voru orð­ljót­ari. Michael Knowles, álits­gjafi hjá Fox News, kall­aði Thunberg „and­lega veikt sænskt barn“.

Stjórn­mála­spek­ing­ur­inn Dinesh D‘Souza gekk jafn­vel lengra og birti tvær myndir hlið við hlið á Twitter; eina af Thunberg með flettur í hár­inu og aðra af ljós­hærðri stúlku, sömu­leiðis með fléttur, með nas­ista­fán­ann blakt­andi í bak­grunni.

Breski fjöl­miðla­mað­ur­inn Piers Morgan sagði Thunberg hafa rétt fyrir sér um þró­un­ina í lofts­lags­málum en lét að því liggja að eld­móður hennar væri afleið­ing Asperger-heil­kenn­is­ins, sem hún var greind með fyrir um fjórum árum. „Hvað vís­indi varðar er ég sam­mála henni: lofts­lags­breyt­ingar eru raun­veru­leg og yfir­vof­andi ógn og leið­togar okkar verða að gera meira til að berj­ast gegn þeim. En dóms­dags orð­ræða hennar hefur valdið ofsa­hræðslu hjá millj­ónum ungra ein­stak­linga, upp að því marki að umhverfisk­víði er að aukast svo um munar,“ sagði Morgan í Daily Mail.

„Ég segi bara það sem er nauð­syn­legt að segja.“

Verst hefur umræðan verið á sam­fé­lags­miðlum, eins og dæmin hér til hliðar sýna.
Thunberg virð­ist hafa þykkan skráp. Hún hefur stað­fast­lega neitað því að hún gagni erinda full­orð­inna og skaut listi­lega til baka á Donald Trump Banda­ríkja­for­seta þegar hún gerði kald­hæðn­is­lega lýs­ingu hans að sinni á Twitter: „Ham­ingju­söm stúlka sem hlakkar til bjartrar og dásam­legrar fram­tíðar.“

Telja má lík­legt að Thunberg sé allt of önnum kafin til að velta sér upp úr gagn­rýn­inni en eins manns mót­mælin sem hún hóf fyrir framan sænska þing­húsið í fyrra hafa nú vaxið í millj­óna fjölda­hreyf­ingu. Fjórar millj­ónir manna tóku þátt í skróp­mót­mælum síð­asta föstu­dag og sam­kvæmt Twitter-aðgangi Thunberg hafa 6.383 við­burðir í 170 löndum verið skipu­lagðir í dag. Þá hafa fjöl­miðlar greint frá því að Thunberg sé upp­á­hald veð­bank­anna til að hljóta frið­ar­verð­laun Nóbels. Sjálf hefur hún gert lítið úr sínu fram­lagi og segir raunar mest lítið utan sviðs­ljóss­ins, eins og við­mæl­endur hennar hafa tekið eftir. „Ég segi bara það sem er nauð­syn­legt að segja.“

Hér fyrir neðan má sjá brot af því sem tíst hefur verið um Gretu Thunberg að und­an­förnu.

https://twitter.com/meme_matty/status/1176300617326895105

https://twitter.com/HealthyWorld12/status/1177153834893926400

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samféagsmiðlar

Stefán borðaði fyrir tæpar 300 þúsund krónur: „Ekki Kobe-nautasteik með truflumús og amfetamíni“
Innlentsamféagsmiðlar

Stefán borð­aði fyrir tæpar 300 þús­und krónur: „Ekki Kobe-nauta­steik með trufl­umús og amfetamíni“

Stefán Pálsson, sagn­fræð­ingur, greinir frá því að hann hafi borðað sína dýr­ustu mál­tíð í gær. Sagn­fræð­ing­ur­inn Stefán Pálsson greinir frá því á Facebook að hann hafi óvart greitt 285 þús­und krónur fyrir ýsu sem hann keypti í fisk­búð, sem hann borð­aði svo með bestu lyst. Bankinn hans sagði að þetta myndi hugs­an­lega lag­ast af sjálfu sér en ann­ars ætti hann...
Netverjar ólmir í hálsmenið sem Obama skartaði
Heimur

Net­verjar ólmir í háls­menið sem Obama skart­aði

Háls­menið sem Michelle Obama skart­aði í gær hefur vakið mikla athygli. Ávarpið sem Michelle Obama, fyrr­ver­andi for­seta­frú Banda­ríkj­anna, flutti á lands­fundi Demókra­ta­flokks­ins í gær hefur vakið athygli. Í ávarp­inu, sem var streymt á Netið, sagði Obama að Donald Trump væri rangur for­seta fyrir Banda­rísku þjóð­ina og að vont gæti versnað ef þjóðin mun ekki knýja fram breyt­ingar í næstu for­seta­kosn­ingum....
Hörð viðbrögð við niðurstöðu atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu: „Illt í hjartanu í dag“
Innlent

Hörð við­brögð við nið­ur­stöðu atkvæða­greiðslu um afglæpa­væð­ingu: „Illt í hjart­anu í dag“

Frumvarp þing­manna Pírata um afglæpa­væð­ingu vímu­efna­neyslu var fellt á Alþingi í nótt þegar 28 þing­menn greiddu atkvæði á móti frum­varp­inu, 18 þing­menn greiddu atkvæði með. Með frum­varp­inu var lagt til varsla á neyslu­skömmtum fíkni­efna yrði ekki lengur refsi­verð. Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hefur vakið mikli við­brögð og hefur mikil umræða um málið skap­ast á sam­fé­lags­miðlum í dag, not­endur Twitter hafa til að...
Guðmundur Franklín segir að allir vinstri menn séu hálfgerðir sóðar
Innlent

Guð­mundur Franklín segir að allir vinstri menn séu hálf­gerðir sóðar

Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi segir að allir vinstri menn séu hálf­gerðir sóðar, nátt­úru­vernd­ar­sóðar og krefst þess jafn­framt að kosn­inga­stjóri Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta biðj­ist afsök­unar á því að hafa kallað hann ras­ista. „Þarna í gær kemur mark­aðs­mað­ur­inn hans, kosn­inga­stjór­inn Sveinn Waage, þetta er mik­ill maður og hann er þarna í ein­hverjum þætti á einni stöð­inni, og hann gefur í skyn...
Dorrit segir Vigdísi vera merkasta forseta Íslands
Innlentsamféagsmiðlar

Dorrit segir Vigdísi vera merkasta for­seta Íslands

Vigdís Finn­boga­dóttir fyrr­ver­andi for­seti Íslands fagnar 90 ára afmæli í dag. Afmælis­kveðjum rignir yfir hana í til­efni dags­ins. Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú, eig­in­kona Ólafs Ragnars Gríms­sonar er ein þeirra sem sendir Vigdísi kveðju. Dorrit birtir mynd af Vigdísi á Instagram og óskar henni til ham­ingju með dag­inn. Í kveðj­unni segir Dorrit Vigdísi vera „Iceland’s greatest pres­ident“ eða merkasta for­seta Íslands....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins