„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Langaði að endurnýja vinskapinn við ánægjulegri viðburð“

Í dag verða sann­kall­aðir end­ur­fundir með­lima Kvenna­kórs Reykja­víkur þegar fyrr­ver­andi kór­fé­lagar munu fagna saman í húsi Domus Vox. Hafdís Hann­es­dóttir, sviðs­rit­ari hjá Grein­ingar- og ráð­gjaf­ar­stöð rík­is­ins, er ein þess­ara kvenna, en hún hefur verið í kórnum í tutt­ugu og sex ár og átta mán­uði.

„Langaði að endurnýja vinskapinn við ánægjulegri viðburð“
Kvenna­kór Reykja­víkur í St. Ignacio-kirkj­unni í Róm.||Hafdís Hann­es­dóttir hefur verið í Kvenna­kór Reykja­víkur í tæp 27 ár.

„Ég byrj­aði í jan­úar 1993 en vin­kona mín setti sér ára­móta­heit að byrja í kór og ég fór með henni. Við erum báðar enn í Kvenna­kór Reykja­víkur,“ segir Hafdís.

Hafdís Hann­es­dóttir hefur verið í Kvenna­kór Reykja­víkur í tæp 27 ár.

„Starfið með kórnum hefur gefið mér mikið í gegnum árin. Töfra, gleði, ótrú­legar upp­lif­anir í mögn­uðum söng­húsum um allan heim og ég hef kynnst konum úr öllum stéttum þjóð­fé­lags­ins.

Að auki heldur þetta heil­anum starf­andi, en við erum alltaf að læra nýja texta og nýjar nótur. Hljóð­færið kvenna­kór er alveg ein­stakt, getur gefið svo tæran og magn­aðan hljóm, og það er hægt að láta kvenna­kóra gera svo margt, til dæmis með hreyf­ingum og bún­ingum. Við mætum oft þreyttar á æfingu en förum heim end­ur­nærðar. Mjög sterkt tengsla­net hefur mynd­ast innan kórs­ins.“

Hlátur, söngur og faðmlög

Um er að ræða end­ur­fundi félaga Kvenna­kórs Reykja­víkur sem sungu undir stjórn Mar­grétar Pálma­dóttur á árunum 1993 til 1997 ásamt und­ir­leik­urum og sam­ferða­fólki.

„Hljóð­færið kvenna­kór er alveg ein­stakt, getur gefið svo tæran og magn­aðan hljóm.“

„Við ætlum að fagna saman þann þrett­ánda sept­em­ber milli 17 og 20 í húsi Domus Vox við Laugaveg 116. Við köllum þennan við­burð Oh happy day þar sem við vitum að þetta verður mjög skemmti­legur dagur. Oh Happy Day er lag sem kom út á fyrsta geisla­diski Kvenna­kórs Reykja­víkur og var mikið spilað í útvarpi en það segir mikið um líð­an­ina þegar við komum saman. Við höfum boðið þeim konum sem við finnum á Facebook í gegnum við­burð­inn: Oh Happy Day, og þær sem við höfum ekki fundið en voru í kórnum 1993-1997 eru inni­lega vel­komnar,“ segir Hafdís.

„Við sem stöndum fyrir við­burð­inum hitt­umst við jarð­ar­för söngsystur og lang­aði að end­ur­nýja vin­skap­inn við ánægju­legri við­burð en 239 konur komu við í kórnum á árunum 1993-1997. Níu konur syngja enn með Kvenna­kór Reykja­víkur og ell­efu með Vox Feminae, sem er einn af hóp­unum sem voru stofn­aðir út frá Kvenna­kór Reykja­víkur.“

Við hverju má svo búast í kvöld? „Hlátri, söng, spjalli og faðm­lögum,“ segir hún ljóm­andi að lokum. „Það verður ynd­is­legt að hitt­ast og syngja saman.“

Myndir / Aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins