„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Samstaða íslenskra kvenna er mikilvæg“

Vin­kon­urnar og sam­starfs­fé­lag­arnir Andrea, Aldís, Elísabet, Nanna og Rakel, hefja á fimmtu­dag góð­gerð­ar­verk­efnið Konur eru konum bestar.

„Samstaða íslenskra kvenna er mikilvæg“
|||||Elísabet í bolnum í ár.|Andrea í bolnum. Rakel á mynd­ina sem er á baki hans.

Í ár rennur ágóð­inn til Krafts, en áður hefur Kvenna­at­hvarfið og Mennt­un­ar­sjóður Mæðra­styrks­nefndar notið góðs af fram­lagi vin­kvenn­anna og fjölda ein­stak­linga um allt land sem keypt hafa bol og styrkt verk­efnið.

Sem fyrr felst verk­efnið í sölu á hvítum stutt­erma­bol með áletr­un­inni Konur eru konum bestar. „Sú setn­ing snýst um það að við konur eigum að standa saman, frekar en að draga hvor aðra niður,“ segir Elísabet Gunn­ars­dóttir eig­andi Trendnet.is. „Það er mikið um nei­kvætt hug­ar­far og umtal í sam­fé­lag­inu og við viljum breyta því og gera sam­fé­lagið okkar að betri stað.“

Elísabet í bolnum í ár.

Það voru Elísabet og Andrea Magn­ús­dóttir fata­hönn­uður sem stofn­uðu Konur eru konum bestar árið 2017, en þeim fannst þörf á að sýna meiri kær­leik og virð­ingu gagn­vart náung­anum. Andrea hefur hannað og selt konum föt í fjölda ára og les­endur Trendnet eru að mestu leyti konur og því fannst þeim til­valið að sam­eina krafta sína. Eftir spjall í nokkurn tíma létum þær slag standa fyrir tveimur árum og Konur eru konum bestar varð að veru­leika. „Nei­kvæðni og slæmt umtal virð­ist vera orðið dag­legt brauð í nútíma sam­fé­lagi og á net­inu virð­ist fólk hafa leyfi til að ráð­ast á hvern sem er með orðum. Orð geta verið álög og þetta er eitt­hvað sem þarf að bæta og helst breyta. Við erum fyr­ir­myndir kom­andi kyn­slóða og þurfum að sýna meiri kær­leik og virð­ingu gagn­vart náung­anum,“ segir Elísabet.

Andrea í bolnum. Rakel á mynd­ina sem er á baki hans.

Fleiri krafta­konur bætt­ust í hóp­inn sem í dag sam­anstendur Andreu, Elísa­betu, Aldísi Páls­dóttur ljós­mynd­ara, Nönnu Kristínu Tryggva­dóttur og Rakel Tóm­as­dóttur graf­ískum hönn­uði sem gerði mynd­ina á baki bols­ins.

Hópurinn: Aldís, Nanna, Elísabet, Andrea og Rakel.

Árið 2017 styrkti hóp­ur­inn Kvenna­at­hvarfið um 1 milljón, en þá voru 350 bolir seldir, árið 2018 voru 500 bolir seldir og Mennt­un­ar­sjóður Mæðra­styrks­nefndar fékk 1,9 milljón að gjöf. „Í ár stefnum við á að selja 1000 boli og það verður gaman að sjá fram­lagið renna til Krafts,“ segir Elísabet.

Kraftur var eina félagið sem kom til greina

Þegar velja átti góð­gerð­ar­fé­lag til að styrkja í ár kom ekk­ert annað félag en Kraftur til greina og er ástæðan fyrir því per­sónu­leg að sögn Elísa­betar. Sagði hún ástæðu þess í ein­lægri færslu á Trendnet.

„Bæði voru þau gestir í brúð­kaupi okkar Gunna fyrir rúmu ári síðan.“

„Málefnið stendur mér nærri en ég þekki til tveggja dásam­legra fjöl­skyldna sem þurftu að kveðja einn með­lim sökum þessa ömur­lega sjúk­dóms. Önnur þeirra er frænka mín, Ástrós Rut Sig­urð­ar­dóttir, aðstand­andi (kona) Bjarka Más og elsku Emma dóttir þeirra (kona). Hin var Fanney Eiríks­dóttir vin­kona (kona) sem hvaddi þennan heim og skyldi eftir sig Ragnar Snæ, Emilý (kona) og krafta­verka­dreng­inn Erik Fjólar,“ segir Elísabet.

„Bæði voru þau gestir í brúð­kaupi okkar Gunna fyrir rúmu ári síðan. Þá var Bjarki búinn að berj­ast fyrir lífi sínu í sex ár á meðan Fanney geisl­aði með litla óléttu­bumbu alveg ómeð­vituð um hvað beið hennar, hún greind­ist í vik­unni eftir brúð­kaupið.

Bæði Bjarki og Fanney kvöddu í sumar, með viku milli­bili og við tekur erfitt líf fyrir aðstand­endur sem sitja eftir. Elsku börnin sem kvöddu for­eldra sína alltof snemma og þau eru ekki þau einu heldur er stað­reyndin sú að ungt fólk er að grein­ast alltof oft.

Við höfum alltaf viljað velja mál­efni sem hjálpar konum, en þarna hjálpum við bæði konum og körlum.“

Sala á bolnum hefst fimmtu­dag­inn 12. sept­em­ber kl. 17 í versl­un­inni AndreA á Norð­ur­bakka 1 í Hafn­ar­firði. Með fyrstu hund­rað bol­unum fylgir veg­legur gjafa­poki en merktur fjöl­nota taupoki fylgir öllum bol­unum í ár.

Nánari upp­lýs­ingar um við­burð­inn má finna hér.

Netsala á bolnum hefst kl. 20 sama dag í vef­verslun hér.

Kraftur

Kraftur hefur það að leið­ar­ljósi að beita sam­ein­uðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur þess. Félagið er fyrir fólk á aldr­inum 18 – 40 ára sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur á öllum aldri alveg frá 16 ára og upp úr.

Sala á bolnum hefst fimmtu­dag­inn 12. sept­em­ber kl. 17.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins