Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir er í hópi þess íþróttafólks sem situr fyrir í myndaþáttum sem birtast í nýjasta Body Issue ESPN tímaritsins. Um glæsilegar og smekklegar nektarmyndir er að ræða.
Myndirnar af Katrínu eru teknar á Íslandi af ljósmyndaranum Benedict Evans. Myndaþættinum fylgir svo einnig viðtal.

Frá tökudegi. Benedict Evans á heiðurinn af myndunum af Katrínu.
„Ég er svo stolt af líkama mínum og hverjum einasta vöðva líkamans, ég þurfti að hafa fyrir þessu,“ segir Katrín meðal annars.


























Athugasemdir