„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bergið opnar formlega: „Bergið vill ná til ungmenna fljótt og vel“

Á morgun, mið­viku­dag­inn 4. sept­em­ber kl. 16, verður form­leg opn­un­ar­mót­taka þar sem Ásmundur Ingi Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra mun opna Bergið headspace. Einnig verður kynn­ing á starf­sem­inni. Öðrum ráð­herrum sem styðja við Bergið hefur einnig verið boðið til mót­tök­unnar ásamt öðrum velunn­urum.

Bergið opnar formlega: „Bergið vill ná til ungmenna fljótt og vel“
Sig­ur­þóra Bergs­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Bergið headspace er stofnað af gras­rót­ar­sam­tökum, Samtök um stuðn­ings­setur fyrir ungt fólk, sem stofnuð voru 17. sept­em­ber 2018.  Samtökin vilja brúa bil í þjón­ustu við ungt fólk  þar sem of margir detta á milli kerfa.  Rann­sóknir sýna að þessi ald­urs­hópur sækir sér ekki mikla hjálp fyrr en vand­inn er orð­inn mik­ill.  Kerfin geta líka verið flókin og afmörkuð við til­teknar grein­ingar eða vanda sem gerir það að verkum að erfitt er að fá heild­stæða þjón­ustu.

„Bergið vill ná til ung­menna fljótt og vel, helst áður en vand­inn er orð­inn mik­ill eða flók­inn,“

segir í til­kynn­ingu frá Berginu.

Við mótun starfs Bergsins hafa stofn­endur verið í sam­starfi við slíkar þjón­ustur erlendis, það er Headspace í Ástralíu og Headspace í Danmörku.

Þjónusta miðuð við ungmenni 25 ára og yngri

Þjónusta Bergsins er þannig upp­byggð að ung­menni, upp að 25 ára, geta komið, hringt, haft sam­band í vef­spjalli eða óskað raf­rænt eftir þjón­ustu.  Þau fá við­tal við ráð­gjafa sem að metur vand­ann, aðstoðar ung­mennið við að átta sig á því hver vand­inn er, ráð­leggja um það sem þau geta gert og ef þörf er á, hjálpað ung­mennum við að fá með­ferð eða aðstoð ann­ars staðar í kerf­unum.

Einnig verður boðið upp á ýmis konar hópa­starf og fræðslu sniðna að þörfum ung­menn­anna okkar.

Áhersla lögð á virkt samstarf við aðra aðila

Áhersla er lögð á að vera með gott og virkt sam­starf við aðila innan kerfa, svo sem félags­þjón­ustur sveita­fé­laga, barna­verndir, heil­brigð­is­kerfi, fram­haldas­skóla, lög­reglu og starfsend­ur­hæf­ingar. Bergið hefur verið í sam­bandi við og farið af stað í sam­starf við marga aðila innan þess­ara kerfa.  Sem dæmi þá er farið af stað sam­starfs­verk­efni milli barna­verndar Reykja­víkur og Bergsins um verk­ferla og verk­lag.  Einnig eru mörg önnur sam­starts­verk­efni í burð­ar­liðnum.

Tveggja ára tilraunaverkefni – 30 milljónir í úthlutun árlega

Fimm ráðu­neyti hafa skuld­bundið sig til að styðja við Bergið, sem tveggja ára til­rauna­verk­efni um 30 millj­ónir á ári.  Þau ráðu­neyti eru Félags- og barna­mála­ráðu­neytið, Heil­brigð­is­ráðu­neytið, Mennta og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, Dóms­mála­ráðu­neytið og Samgöngu og sveita­stjórn­ar­ráðu­neytið.  Að auki styrkti Reykja­vík­ur­borg verk­efnið um 9 millj­ónir á þessu ári.

Bergið er að Suð­ur­götu 10 í miðbæ Reykja­víkur

Bergið headspace er til húsa að Suð­ur­götu 10 í Reykja­vík og geta ung­menni sótt þjón­ustu þangað en einnig er boðið upp á fjar­þjón­ustu í gegnum fjar­þjón­ustu­for­ritið Kara connect.

Starf­andi ráð­gjafar eru með breiða fag­þekk­ingu og reynslu, einnig munu sjálf­boða­liðar koma að starfi Bergsins.

„Við teljum að Bergið headspace sé að fylla í skarð til að mæta þjón­ustu­þörf við ungt fólk á Íslandi.  Með því að bjóða upp á aðgengi­lega og fag­lega þjón­ustu fyrir þennan hóp teljum við að hægt sé að koma í veg fyrir að ýmis­konar vandi verði óvið­ráð­an­legri.  Rann­sóknir og reynsla ann­arra styðja við þessa nálgun okkar,“ segir í til­kynn­ingu Bergsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bergið headspace

„Hann hefði átt að fá að lifa“
Innlent

„Hann hefði átt að fá að lifa“

Frá fal­legu húsi við Suð­ur­götu 10 heyr­ast ham­ars­högg og vél­sag­ar­hvinur, enda allt á fullu við að aðlaga hús­næðið að fram­tíð­ar­starf­semi Bergsins Headspace sem stefnt er því að opna í júní­mán­uði. Auk tveggja eða þriggja iðn­að­ar­manna sinnir Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og upp­hafs­kona að Berginu, vinnu sinni og dag­arnir eru langir um þessar mundir. Sig­ur­þóra sjálf missti son sinn sem svipti sig lífi fyrir þremur árum í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins