„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Orð Guðna Th. við minningarathöfn upphafs seinni heimsstyrjaldarinnar: „Við megum aldrei gleyma þeirri grimmd sem geisaði“

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, og eig­in­kona hans, Eliza Reid, voru við­stödd alþjóð­lega minn­ing­ar­at­höfn í Póllandi í gær, en þann 1. sept­em­ber var þess minnst að 80 ár voru frá upp­hafi seinni heims­styrj­ald­ar­innar.

Orð Guðna Th. við minningarathöfn upphafs seinni heimsstyrjaldarinnar: „Við megum aldrei gleyma þeirri grimmd sem geisaði“
|

„Seinni heims­styrj­öldin mun ætíð telj­ast til skelfi­leg­ustu við­burða í sögu mann­kyns. Mik­il­vægt og sjálf­sagt er að minn­ast nú upp­hafs þessa hild­ar­leiks hinn 1. sept­em­ber 1939. Með inn­rás herja nas­ista í Pólland hófst stríðið en aðdrag­and­inn var langur og hörm­ung­arnar framundan skelfi­legri en orð fá lýst. Við hæfi er að koma saman í Póllandi réttum 80 árum eftir að óöldin brast þar á,“ segir Guðni Th. og bendir á að pólska þjóðin var meðal þeirra sem verst urðu úti í styrj­öld­inni.

„Við megum aldrei gleyma þeim glæpum sem voru framdir, þeirri grimmd sem geis­aði og þeim miska sem millj­ónir manna þurftu að þola. Við megum aldrei gleyma hel­för­inni gegn gyð­ingum auk ann­arra útrým­ing­ar­her­ferða nas­ista og hand­benda þeirra. Sú saga er gömul og ný að stríðsæs­inga­menn ala á ótta og illsku, tor­tryggni og andúð. Þeir mis­nota ætt­jarð­ar­ást, afflytja þjóð­rækni svo að úr verður þjóð­remba og hatur í garð ann­arra. Mörg dæmi eru um þetta, víti til að var­ast. Þann lær­dóm þarf að hafa í huga, nú og endranær.

Hitler horfir á þýska her­menn mar­sera inn í Pólland í Sept­em­ber 1939 (Mynd: Bild Bundesarchiv/ German Federal Archive)

Megi þessi minn­ing­ar­stund því verða til þess að efla sam­kennd og samúð innan okkar sam­fé­laga og milli ríkja heims­ins. Friður og vel­ferð hvíla á fjöl­breytni og frelsi, umburð­ar­lyndi og víð­sýni. Saga lið­ins tíma verður aldrei sögð í eitt skipti fyrir öll. En engum má líð­ast að afneita glæpum gegn mann­kyni. Og eng­inn má ein­oka frá­sagnir for­tíðar eða bregða hulu yfir þær, hvorki stjórn­völd né stjórn­mála­öfl. Öflugar þjóðir og ríki þola að saga þeirra sé litin gagn­rýnum augum, að bent sé á það sem deila megi um og það sem miður fór.

Fyrir hönd okkar Elizu þakka ég Pól­verjum gest­risni þeirra og hlý­hug. Sömu­leiðis færi ég þeim Pól­verjum, sem flutt hafa til Íslands og lagt sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, góðar kveðjur og óska þeim vel­farn­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins