„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leiga á íbúð sögð greiðsla á persónulegum kostnaði Skúla

Deloitte telur að „greiðslur WOW vegna rekst­urs og leigu íbúð­ar­innar hafi ekki verið reistar á við­skipta­legum for­sendum.

Leiga á íbúð sögð greiðsla á persónulegum kostnaði Skúla

Félag sem heitir WOW air Ltd., og er skráð í Englandi, var lengi vel í per­sónu­legri eigu Skúla Mogensen. Félagið hét áður Mogensen Limited en nafni þess var breytt fyrir nokkrum árum. Starf­semi félags­ins fólst aðal­lega í að leigja íbúð í London. Skúli Mogensen og kærasta hans bjuggu í umræddri íbúð en þau héldu heim­ili á Íslandi og í London.
Í skýrslu skipta­stjóra WOW air segir að flug­fé­lagið hafi greitt 37 millj­ónir króna í leigu vegna íbúð­ar­innar á tveggja ára tíma­bili, frá 28. mars 2017 og þangað til að WOW air fór í þrot. Það þýðir að með­al­tals­mán­að­ar­leiga hefur verið rúm­lega 1,5 milljón króna á mán­uði.
WOW air Ltd. var fram­selt til WOW air í sept­em­ber 2018, sama mán­uði og skulda­bréfa­út­boð félags­ins fór fram. Skipta­stjór­arnir segja að eng­inn samn­ingur hafi verið í gildi milli WOW air og WOW air Ltd. „vegna þess­arar íbúðar og þá voru greiðslur WOW vegna hennar ekki sam­þykktar í stjórn félags­ins.“

Leigu­greiðsl­urnar hafi ein­fald­lega verið vegna greiðslu á per­sónu­legum kostn­aði hlut­hafa WOW air, Skúla Mogensen. Í skýrsl­unni segir enn fremur að Deloitte telji, að lok­inni athugun sinni, að „greiðslur WOW vegna rekst­urs og leigu fyrr­greindrar íbúðar hafi ekki verið reistar á við­skipta­legum for­sendum enda engar vís­bend­ingar um að íbúðin hafi verið nýtt í þágu starfs­manna WOW, hvorki flug­fólks né ann­arra almennra starfsmana. Skipta­stjórar skoða nú að krefj­ast end­ur­greiðslu þess fjár sem WOW greiddi vegna fyrr­greindrar íbúðar.“

Skúli Mogensen sagði í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla síð­ast­lið­inn mánu­dag að þegar WOW air hafi farið að leigja íbúð­ina, í byrjun árs 2017, hafi flug­fé­lagið verið að und­ir­búa opnun á nýrri starfs­stöð í London eða Dublin og jafn­framt verið að skoða mögu­lega skrán­ingu á mark­aði í London. „Hvort tveggja kall­aði á veru­lega við­veru for­stjóra í London. WOW air skil­aði yfir 4 millj­örðum í hagnað árið 2016 og því voru þessi áform eðli­legt skref í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu WOW air á þeim tíma og ekk­ert óeðli­legt við það að félagið skyldi leigja hús­næði fyrir for­stjóra félags­ins í þeim til­gangi að sinna þeim verk­efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins