Maðurinn var blóðugur í andliti þegar lögregla handtók hann sökum þess að hann hafði slasast töluvert í samskiptum sínum við ljósastaur í borginni.
Slysið átti sér stað í Breiðholti. Maðurinn var talsvert ölvaður við hjólreiðarnar. Hann hlaut áverka á andliti en vildi enga aðstoð frá sjúkrabifreið sem kom á vettvang. Maðurinn var beðinn að leiða hjól sitt eða skilja það eftir vegna ástands hans.

























Athugasemdir