„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill loka mötuneytum starfsmanna til að styðja við bakið á veitingastöðum

Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill að borgin loki mötu­neytum starfs­manna til að styðja veit­inga­hús í Reykja­vík. Hildur telur að lokun mötu­neyta verði til þess að hund­ruðir opin­bera starfs­manna versli við veit­inga­hús í borg­inni. „Borg­ar­yf­ir­völd mættu vera atvinnu­lífi vin­veitt­ari,” skrifar hún í skoð­anapistli í Frétta­blað­inu.

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill loka mötuneytum starfsmanna til að styðja við bakið á veitingastöðum
Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi – Mynd xd.is Mynd: Unnur Magna

„Í mið­borg Reykja­víkur er fjöldi opin­berra stofn­ana. Mörg hund­ruð opin­berir starfs­menn snæða opin­beran hádeg­is­verð í opin­berum mötu­neytum dag hvern,” skrifar Hildur og bætir við: „Væri kannski ráð að draga saman seglin, loka hinum opin­beru mötu­neytum og styðja fremur við einka­fram­tak í nærum­hverfi?” Hún segir það mætti útfæra án tjóns fyrir starfs­fólk en miklum ágóða fyrir þá aðila sem stunda rekstur í mið­bænum. „Hér gæti Ráðhús Reykja­víkur gengið á undan með góðu for­dæmi.”

Hildur bendir á fleiri þætti sem gera rekstr­ar­að­ilum erfitt fyrir, þá ekki síst stjórn­sýsla borg­ar­innar: „Síhækk­andi fast­eigna­skattar, svifa­sein stjórn­sýsla og sam­ráðs­leysi hafa reynst litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum óþægur ljár í þúfu. Það er tíma­bært að bregð­ast við.”

Hún telur fram­kvæmdir í mið­bænum setja strik í reikn­ing­inn hjá veit­inga- og versl­un­ar­eig­endum. „Gatna­fram­kvæmdir standa yfir í mið­borg. Flestir skilja nauð­syn fram­kvæmd­anna – en þegar aðkomu versl­ana og veit­inga­staða er raskað er nauð­syn að eiga í sam­tali við rekstr­ar­að­ila.” Þá segir hún að þess hafi ekki verið gætt og margir orðið fyrir veru­legu tjóni. „Málið sýnir skiln­ings­leysi og hroka borg­ar­yf­ir­valda gagn­vart rekstr­ar­að­ilum mið­borgar. Samráð í til­kynn­inga­formi án fyr­ir­vara og sam­tals er engum til fram­dráttar.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins