„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þá gilti að þekkja konu, sem þekkti aðra konu og svo framvegis“

Fyr­ir­lest­ur­inn Íslenska lesbían verður í Tjarn­ar­bíói í dag milli 17 og 19, í tengslum við Hinsegin daga, þar sem spjallað verður um upp­hafsár Sam­tak­anna ’78 frá sjón­ar­hóli lesbía en þær voru telj­andi á fingrum ann­arrar handar á fyrstu árunum. Hanna María Karls­dóttir rifjar upp fámennið og for­dómana hér áður fyrr en Lana Kolbrún Eddu­dóttir nefnir spjallið sitt „Kona sem þekkir konu, sem þekkir konu: Tengsla­net níunda ára­tug­ar­ins.“

„Þá gilti að þekkja konu, sem þekkti aðra konu og svo framvegis“
Fyr­ir­lest­ur­inn

Lana Kolbrún var þrettán ára þegar Samtökin ’78 voru stofnuð og hefur eftir heim­ildum að kon­urnar hafi verið afar fáar fyrst um sinn. „Það má fast­lega reikna með því að margar af eldri kyn­slóðum hafi verið búnar að flýja land, hafi þær á annað borð komið úr felum. Íslenskar les­b­íur bjuggu gjarnan í gömlu höf­uð­borg­inni okkar, Kaup­manna­höfn, og fluttu líka til fyr­ir­heitnu borg­ar­innar San Francisco. Þegar ég gekk í félagið 1987 voru ýmsar konur komnar á vett­vang og hlut­verk kvenna í félag­inu jókst mjög á næstu 10 árum, þar af urðu þrjár konur for­menn. Ekki veitti af vöskum konum í félags­starfið því bar­áttan gegn alnæmi kost­aði okkur öll mikið þrek.“

Lana Kolbrún Eddu­dóttir sagn­fræði­nemi. Mynd/Dagur Gunn­ars­son

Hún segir að les­b­íur hafi átt nokkuð auð­velt með að „dylj­ast meðal almenn­ings“, ef svo má segja. „En það var býsna erfitt og þurfti að fara alls­konar króka­leiðir til að kynn­ast öðrum konum á þessum árum. Vissu­lega hjálp­aði félags­mið­stöðin á Lind­ar­götu 49 mikið en sam­kvæmi í heima­húsum voru lengi vel einn helsti vett­vangur félags­lífs lesbía á Íslandi. Og þá gilti að þekkja konu, sem þekkti aðra konu og svo fram­vegis.

„En það var býsna erfitt og þurfti að fara alls­konar króka­leiðir til að kynn­ast öðrum konum á þessum árum.“

Fordómar gegn les­b­íum birt­ust á vinnu­stöðum, athuga­semdum við klæða­burð og hár, meðal leigu­sala sem vildu ekki leigja sam­kyn­hneigðum, á skemmti­stöðum þar sem okkur var gjarnan fleygt út fyrir að kyss­ast og dansa og síð­ast en ekki síst innan fjöl­skyld­unnar. Þar urðu margir fyrir þungum árásum og djúpum sárum sem oftar en ekki leiddu til þess að fólk sleit algjör­lega sam­skiptum við blóð­fjöl­skyldur sínar. Ég vona heitt og inni­lega að les­b­íur dags­ins í dag þurfi ekki að þola sama mót­læti og við eldri kyn­slóð­irnar,“ segir Lana Kolbrún og hvetur fólk til að mæta í dag.

„Það verður hægt að drekka kaffi­sopa eða hvítvíns­glas, hlusta á okkur Hönnu Maríu og bæta eigin sögum í safnið í spjall­inu á eftir. Við­burð­ur­inn fer fram á íslensku, ókeypis inn og öll vel­komin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samkynhneigð

Vissi af samkynhneigðinni tólf ára: Opnaði skápinn upp á gátt níræður – Aldrei verið hamingjusamari
Innlentsamkynhneigð

Vissi af sam­kyn­hneigð­inni tólf ára: Opnaði skáp­inn upp á gátt níræður – Aldrei verið ham­ingju­sam­ari

Hinn banda­ríski Kenneth Felts í Col­or­ado vissi að hann væri sam­kyn­hneigður ungur að aldri; tólf ára gam­all; kom hins vegar ekki út úr skápnum fyrr en nú, en hann er níu­tíu og eins árs Kennneth fékk strangt upp­eldi; alinn upp í í­halds­sömu og strang­kristi­legu umhverfi og fór í kirkju tvisvar í viku. Korn­ungur að árum gift­ist hann konu og gekk...
Fjörutíu ára gay saga frá sjónarhóli samtímamanns
Skoðun

Aðsend skoðun

Fjörutíu ára gay saga frá sjón­ar­hóli sam­tíma­manns

Skoðun Eftir / Böðvar Björns­son Fyrir rúmum fjöru­tíu árum hófu hommar á Íslandi bar­áttu fyrir rétt­indum sínum. Þá átt­uðu þeir sig á því að þeir yrðu fyrst að berj­ast fyrir rétti sínum til að vera til. Þögn, þöggun og for­dómar gegn sam­kyn­hneigð voru svo yfir­gnæf­andi að það þurfti dirfsku til að standa með sjálfum sér. Hommar og les­b­íur stóðu árum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins