„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mike Pence telur samkynja hjónabönd valda „samfélagslegu hruni”

Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, hefur ótal sinnum talað opin­ber­lega gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra og er sam­kvæmt eigin skil­rein­ingu: „Kristinn, íhalds­samur og Repúblikani. Í þess­ari röð.” Þá hefur hann meðal ann­ars haldið því fram að hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra boði sam­fé­lags­legt hrun og að kyn­hneigð sé val.

Mike Pence telur samkynja hjónabönd valda „samfélagslegu hruni”

Pence mun koma í opin­bera heim­sókn til Íslands 3. sept­em­ber næst­kom­andi en Samtökin ‘78 hafa harð­lega gagn­rýnt heim­sókn­ina. Formaður sam­tak­anna, Þorbjörg Þor­valds­dóttir, hefur bent á að allan stjórn­mála­feril sinn hefur Pence unnið gegn rétt­indum hinsegin fólks: „Pence kom inn í full­trúa­þing Banda­ríkj­anna 2001 og varð rík­is­stjóri Indiana frá 2013-2016. Allan þann tíma hefur hann unnið gegn hinsegin rétt­indum beint og óbeint,“ sagði Þorbjörg í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 fyrir stuttu. „Hann er svo sann­ar­lega eng­inn banda­maður og hrein­lega ill­gjörða­maður.“

Time hefur tekið saman nokkur ummæli og aðgerðir sem Pence hefur fram­kvæmt gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra.

Í ræðu árið 2006 sagði hann að „sam­fé­lags­legt hrun kæmi vegna spill­ingar á hjóna­böndum og fjöl­skyldu.” Bann gegn hjóna­böndum sam­kyn­hneigðra væri ekki mis­munun heldur í sam­ræmi við „vilja Guðs.” Þá sagði hann sam­kyn­hneigð vera val.

Sjá einnig: Mike Pence til­kynnir opin­bera heim­sókn til Íslands

Kaus gegn vernd gegn mismunun vegna kynhneigðar

Árið 2007 var lagt fram frum­varp á Banda­ríska þing­inu sem myndi banna mis­munun á vinnu­stöðum á grund­velli kyn­hneigðar. Pence kaus gegn frum­varp­inu og sagði það „stríða gegn trú­ar­frelsi á vinnu­stöðum.” Þingið sam­þykkti að lokum frum­varpið árið 2013 en féll síðar í Hvíta hús­inu. Pence fór í gagn­stæða átt á tíma­bili sínu sem rík­is­stjóri Indiana. Árið 2015 und­ir­rit­aði hann lög þar sem fólki var gert frjálst að mis­muna sam­kyn­hneigðum á grund­velli trú­ar­skoð­ana.

Vildi reka hinsegin sem opinberar kynhneigð sína úr hernum

Pence var mik­ill stuðn­ings­maður stefnu Banda­ríska hers­ins „Dont Ask, Dont Tell.” Stefnan, sem var sam­þykkt af rík­is­stjórn Bill Clinton árið 1994, bann­aði sam­kyn­heigðum og tví­kyn­hneigðum her­mönnum að opin­bera kyn­hneigð sína. Pence sagði í við­tali við CNN árið 2010 að her­inn væri ekki vett­vangur til að „prófa sig áfram.” Stefnan var felld niður árið 2011.

Í maí 2016 skip­aði rík­is­stjórn Barack Obama skólum að breyta reglum tengdum sal­ern­iss­notkun. Hvíta húsið fyr­ir­skip­aði að óheim­ilt væri að banna trans­fólki að nota sal­erni í sam­ræmi við sjálfs­mynd. „Rík­is­stjórnin á ekk­ert með að blanda sér í svona mál,” sagði Pence þegar hann mót­mælti aðgerð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins