„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hundruð barna misnotuð og beitt ofbeldi á dönskum barnaheimilum

Hundruð barna misnotuð og beitt ofbeldi á dönskum barnaheimilum

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið þau hundruð barna sem máttu sæta grimmu ofbeldi á vistheimilum í þjónustu ríkisins afsökunar.

Málið á sér langan aðdrag­anda en fyrst var greint frá mál­inu í heim­ilda­mynd sem sýnd var árið 2005 og sagði frá grimmi­legu ofbeldi á Godhavn drengja­heim­il­inu í norð­aust­ur­hluta Dan­merkur. Í kjöl­farið létu sam­tök sem kenna sig við Godhavn-dreng­ina gera óháða rann­sókn á ásök­unum og var nið­ur­staðan sú að hund­ruð barna, drengir og stúlkur, á 19 barna­heim­ilum víðs vegar um Danmörku hafi sætt lík­am­legu, kyn­ferð­is­legu og and­legu ofbeldi.

Ofbeldið átti sér stað á árunum 1945 til 1976. Þolend­urnir, sem nú eru flestir komnir vel á full­orð­ins­aldur, hafa frá því málið komst í hámæli barist fyrir því að danska ríkið gang­ist við ábyrgð sinni og biðj­ist afsök­unar. Sú bar­átta vannst loks í morgun þegar Frederik­sen, sem tók við emb­ætti í júní, bauð þolendum á heim­ili sitt þar sem hún bað þau öll afsök­unar. „Ég vil horfast í augu við hvert og eitt ykkar og segja fyr­ir­gefðu. Ég get ekki tekið sök­ina en ég get axlað ábyrgð­ina,“ sagði Frederik­sen. Hún sagði danska ríkið hafa brugð­ist þolend­unum, það hafi tekið börn af for­eldrum sínum og í stað þess að sýna þeim hlýju og stuðn­ing hafi þau þurft að þola nið­ur­læg­ingu og mis­notkun.

Í ofan­greindri heim­ilda­mynd er sagt frá grimmi­legum mis­notk­unum sem börnin máttu þola. Til að mynda hafi læknar prófað lyf á börn­unum, meðal ann­ars LSD. Fjöl­margar frá­sagnir eru af lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi þar sem jafn­vel var not­ast við bar­efli.

Margir þolend­anna hafa aldrei beðið þess bætur eftir vist­ina á þessum heim­ilum og eiga mörg þeirra sögu um áfengis- og fíkni­efna­vanda. Enginn hefur verið lát­inn svara til saka vegna máls­ins en tals­maður þolenda vill að sett verði á legg­irnar nefnd sem verði ætlað að ákvarða miska­bætur til handa þolendum.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins