„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Siðareglurnar verða endurskoðaðar

Nýlega kom fram í fréttum að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, und­ir­búi end­ur­skoðun siða­reglna fyrir alþing­is­menn í sam­vinnu við Helgu Völu Helga­dóttur, for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar þings­ins.

Siðareglurnar verða endurskoðaðar
Helga Vala Helgu­dóttir. Mynd / Bára Huld Beck

Í sam­tali við Vísi þann 3. ágúst síð­ast­lið­inn sagði hann að þau væru búin að kasta á milli sín hug­myndum og hefðu verið að sanka að sér gögnum. „Nú er komin ákveðin reynsla á fram­kvæmd­ina og búið að reyna á ýmis­legt og það er nú aðal­lega sú umgjörð sem við erum að skoða og fram­kvæmd regln­anna,“ sagði hann. Stein­grímur sagð­ist ekki eiga von á því að sjálfar hátt­ern­is­regl­urnar yrðu teknar upp heldur aðal­lega fram­kvæmd þeirra og far­vegur kvart­ana.

Ljóst að verklagið gengur ekki upp

Helga Vala stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann og segir að Stein­grímur hafi haft sam­band við sig síð­asta vetur til þess að fara yfir málin. Hún segir að henni hafi strax orðið ljóst að verk­lagið í kringum siða­regl­unar gangi ekki upp.

Hún segir að Íslend­ingar þurfi í raun ekki að finna upp hjólið. „Siða­reglur okkar eru byggðar á reglum Evr­ópu­þings sem þó eru nokkuð frá­brugðnar og má skoða hvort leita megi meira þangað. Þá hef ég áður nefnt að ÖSE hefur gefið út ítar­legar leið­bein­ingar um gerð og fram­kvæmd siða­reglna fyrir þjóð­þing aðild­ar­ríkj­anna og tel ég ein­boðið að fara vel yfir þær,“ segir hún.

„Við þurfum að kanna aðkomu ann­arra stjórn­mála­manna og for­sætis­nefndar,“ segir hún en bætir því þó við að þessar sam­ræður um regl­urnar séu enn algjör­lega óform­legar. „Þetta fer ekki á form­legan stað fyrr en for­sætis­nefnd fær drög að til­lögum um breyt­ingar og þegar drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fer til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.“

Standa og falla með trúverðugleikanum

Helga Vala bendir á að það að setja við­ur­lög við broti á siða­reglum sé flókið út af póli­tískri stöðu. „Það væri hægt að senda fólk í leyfi eða látið það ekki gegna trún­að­ar­störfum innan þings­ins. Það væri hug­mynd til að velta fyrir sér,“ segir hún.
Hún telur að hægt sé að end­ur­skoða siða­regl­urnar, þrátt fyrir að margt hafi „mis­tek­ist hrapal­lega“ í ferl­inu hingað til. En hún bætir því við að ekki sé hægt að byggja upp traust með því einu að breyta siða­reglum. „Hvert og eitt okkar stöndum og föllum með trú­verð­ug­leik­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins