„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Nokkuð viss um að ég er með Asberger“

Birgitta Jóns­dóttir hefur ekki verið áber­andi í umræð­unni síðan hún hætti á þingi haustið 2017. Á því varð þó breyt­ing eftir yfir­haln­ingu fyrrum sam­starfs­manna á henni á fundi Pírata fyrir skömmu. Hún við­ur­kennir að þau ummæli hafi verið áfall, en hún vilji ekki fara niður á sama plan og þau með því að svara fyrir sig. Hún hafi lent í mun erf­ið­ari raunum á lífs­leið­inni og lært að takast á við sjálfa sig og áföllin.

Að spyrja Birgittu um einka­líf hennar og nán­asta fólk er eins og að ganga á vegg. Hún seg­ist alltaf hafa passað vel upp á það að blanda ekki einka­málum sínum í opin­bera umræðu.
„Ég er mik­ill varð­hundur frið­helgi einka­lífs­ins,“ segir hún hlæj­andi. „En ég hef verið í flóknu sam­bandi við sjálfa mig all­lengi og þegar maður fer í svona brjál­æði eins og ég hef verið í er eng­inn tími fyrir eitt­hvert til­huga­líf, en ég á þrjú börn sem eru öll orðin meira en átján ára og tókst það sem fáum sem hafa verið áber­andi í stjórn­málum hefur tek­ist að passa vel upp á þau og blanda þeim ekki inn í það drullu­svað sem póli­tíkin er.

Það er eitt af því sem fólk gleymir þegar það segir ógeðs­lega ljóta hluti um aðra, oft án þess að hafa nokkurn tíma átt í sam­skiptum við við­kom­andi, að þessir aðilar sem verið er að við­hafa svona stór orð um eiga sitt líf og sínar fjöl­skyldur.

Það má vera með harða gagn­rýni á verk stjórn­mála­manna en þegar farið er að sjúk­dóms­greina aðra opin­ber­lega má fólk aðeins fara að hugsa sinn gang. Hafi fólk eitt­hvað út á mann að setja sem mann­eskju er lág­marks­krafa að það sé til­búið að segja það við mann augliti til auglitis í einka­sam­tali. Ef fólk er ekki til­búið til þess þá blokkera ég það, alveg án þess að hika. Fólk verður að geta staðið undir því sem það segir.“

Birgitta hefur unnið mikið í sjálfri sér og sínum vanda­málum í gegnum árin og segir það gjör­sam­lega hafa bjargað sér.

„Ég var svo heppin að detta inn í pró­gramm fyrir aðstand­endur alkó­hólista og það hefur algjör­lega bjargað mér,“ útskýrir hún. „Það er erfitt að búa í litla sam­fé­lag­inu þar sem allir þekkja alla og allir hafa skoð­anir á öllum og sú sjálfs­vinna sem fylgir því að fara í gegnum 12 spora kerfið hefur hjálpað mér óend­an­lega mikið.

„Eftir að hafa gengið í gegnum Asberger-grein­ingu með yngsta son minn er ég nokkuð viss um að ég er með Asberger. Ég get ekki logið og trúi alltaf að annað fólk meini það sem það segir.“

Eftir að hafa gengið í gegnum Asberger-grein­ingu með yngsta son minn er ég nokkuð viss um að ég er með Asberger. Ég get ekki logið og trúi alltaf að annað fólk meini það sem það segir. Verð svo rosa­lega hissa þegar það stendur ekki við það. Margir hafa sagt að ég sé óskap­lega naív, en ég er bara svona og hef ekki áhuga á því breyta því.

Eitt af því sem er erfitt hér á Íslandi er hvað fólk sem er öðru­vísi hefur litla mögu­leika á að blómstra og við sem þjóð þurfum að læra að vera umburð­ar­lynd­ari gagn­vart fjöl­breyti­leik­anum. Það eru nefni­lega allir öðru­vísi, ég hef aldrei hitt venju­lega mann­eskju. Hún er bara mýta.“

Sjá einnig: „Ber engan kala til þessa fólks“
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf 28. tbl 2019

Ife Tolentino og Teitur Magnússon í Iðnó
Menning

Ife Tolentino og Teitur Magn­ús­son í Iðnó

Brasil­íski gít­ar­leik­ar­inn og söngv­ar­inn Ife Tolentino og tón­list­ar­mað­ur­inn Teitur Magn­ús­son kom fram ásamt hljóm­sveitum í Iðnó á þriðju­dag klukkan 21. Ife Tolentino flytur eigið efni ásamt hans eigin útsetn­ingum af lögum meist­ara bossa nova, til dæmis Antonio Carlos Jobim og João Gilberto. Teitur gaf út sína aðra sóló­plötu í fyrra, Orna, við góðar und­ir­tektir og mun hann flytja eigin lög...
„Í fullkomnum heimi þarf ekki siðanefndir“
Innlent

„Í full­komnum heimi þarf ekki siða­nefndir“

Meg­in­til­gangur nýrra siða­reglna fyrir alþing­is­menn er að efla gagn­sæi í störfum þing­manna og ábyrgð­ar­skyldu þeirra, og jafn­framt að efla til­trú og traust almenn­ings á Alþingi. Margir hafa þó efast um gildi siða­reglna – sér­stak­lega í ljósi þess að erfitt hefur reynst að fá sátt um siða­reglur og þá sér­stak­lega siða­nefndir. Gríð­ar­lega mikil umræða hefur sprottið upp í kjöl­far nýlegra nið­ur­staðna for­sætis­nefndar þar sem hún féllst á álit siða­nefndar í nokkrum umdeildum málum.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins