„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Siðareglur – Dragbítur eða bót í máli?

Ákveðnar reglur gilda í sam­fé­lag­inu sem almennt er farið eftir og eru þær nokk­urs konar sátt­máli sem fólk tekur mið af í hegðun sinni og gjörðum. Í ætt við þennan sátt­mála eru siða­reglur sem fólk fer alla­jafna eftir í hinu dag­lega lífi. Þegar þessi sam­fé­lags­sátt­máli er síðan rof­inn geta ýmsar afleið­ingar hlot­ist af en mis­jafnar skoð­anir eru á því hverjar þær ættu að vera.

Siðareglur – Dragbítur eða bót í máli?

Siða­reglur starfs­stétta eru 20. alda fyr­ir­bæri sem ruddi sér til rúms þegar sam­ræma þurfti það hyggju­vit og skyn­semi sem fólk alla­jafna ber. Fjöl­margar starfs­stéttir hafa komið sér upp siða­reglum til að skýra hlut­verk þeirra og setja almennar reglur sem fólk getur litið til ef vafi leikur á hvað rétt og rangt sé að gera.

Margir hafa þó efast um gildi siða­reglna – sér­stak­lega í ljósi þess að erfitt hefur reynst að fá sátt um siða­reglur og þá sér­stak­lega siða­nefndir. Gríð­ar­lega mikil umræða hefur sprottið upp í kjöl­far nýlegra nið­ur­staðna for­sætis­nefndar þar sem hún féllst á álit siða­nefndar í nokkrum umdeildum málum.

Þar sem siða­reglur alþing­is­manna voru sér­stak­lega settar á lagg­irnar til að byggja upp traust alþing­is­manna er vert að kanna hver til­gangur þeirra sé – hvort raun­hæft þyki að setja slíkar reglur ef almenn­ingur og þing­menn­irnir sjálfir taka ekki mark á nið­ur­stöðum nefnda sem telja að brot hafi átt sér stað. Og það sem meira er – hvernig verður hægt að taka mark á nið­ur­stöðum siða­nefndar og for­sætis­nefndar í fram­tíð­inni?

Siðareglur eiga að bæta menningu innan hóps

Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor í heim­speki við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri, hefur skrifað bók og greinar um siða­reglur til fjölda ára. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að til­gang­ur­inn með siða­reglum sé marg­vís­legur. Að hans mati er þó mik­il­væg­asti til­gangur skráðra siða­reglna sá að bæta menn­ingu innan hóps­ins sem setur sér regl­unar. Það þýði að þessi hópur hagi sam­skiptum sínum og vinnu­brögðum á betri hátt með til­liti til til­gangs hóps­ins.

Þá sé hægt að spyrja sig hvort „dýnamíkin“ innan hóps hjálpi honum að sinna hlut­verki sínu vel og ef svo er ekki þá þurfi að bæta menn­ing­una innan hans. Að setja siða­reglur væri þá að aðferð til að gera hann betur færan til að sinna sínu hlut­verki og gætu þær jafn­framt miðlað upp­safn­aðri þekk­ingu. Þá sé hægt að læra af mis­tökum, til að mynda er varða sam­skipti og freistni­vanda.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ing­una í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins