Tranquility snekkjan er útbúin svítu og einkaklefum fyrir 22 gesti ásamt heilsulind, snyrtistofu bíósal, heilsurækt, sundlaug, útibar og þyrlupall svo fátt eitt sé nefnt. Fríðindunum fylgir svo 29 manna áhöfn. Snekkjan er hönnuð af Winch design og Oceanco.
Samkvæmt the Daily Mail er stefnan tekin á Miðjarðarhafið. Reikna má með að þetta verði eitt stærsta og veglegasta teiti Kardashian-Jenner fjölskyldunnar. Vikuleiga á snekkjunni er um 150 milljónir íslenskra króna. Kylie ætti að eiga fyrir partýinu en hún er yngsti milljarðamæringur sögunnar, af eigin ramleik, samkvæmt Forbes. Auðæfi hennar eru metin á um milljarð dollara. Hér að neðan má sjá myndir af snekkjunni































Athugasemdir