„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hverjir eru valkostir Íslands?

Íslandi stendur til boða að taka þátt í Belti og braut, sem er risa­vaxið inn­viða- og fjár­fest­inga­verk­efni sem kín­versk stjórn­völd standa fyrir. Ávinn­ing­urnn gæti verið mik­ill en um leið eru ýmsar ógn­anir.

Hverjir eru valkostir Íslands?
Forseti Kína

Þetta kemur fram í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans sem birt­ist í Mannlífi 2. ágúst.

Í raun er því ekk­ert til fyr­ir­stöðu og geta íslensk stjórn­völd ákveðið sína stefnu gagn­vart verk­efn­inu. Þátttaka gæti aukið fjár­fest­ingar á Íslandi og auð­veldað upp­bygg­ingu inn­viða, einnig gæti þátt­taka greitt leið fyrir við­skiptum við Kína og styrkt almenn sam­skipti við fjöl­menn­asta ríki heims.

Því er ljóst að efna­hags­legur hagur gæti orðið af þátt­töku í verk­efn­inu en hins vegar gæti þátt­taka haft ýmsar ófyr­ir­séðar stjórn­mála­legar afleið­ingar fyrir Ísland. Ákveði íslensk stjórn­völd að taka þátt í Belti og braut væri skyn­sam­legt að hafa öll ákvæði skýr hvað varðar fjár­fest­ingar og fram­kvæmdir, til að mynda að kveða skýrt á um hvernig útboðum sé háttað. Jafn­framt er mik­il­vægt að stíga var­lega til jarðar og rýna ítar­lega í hverjar afleið­ingar þátt­töku yrðu fyrir land og þjóð.

Hvað græða þátttökuríki á Belti og braut?

Þátttaka í verk­efn­inu er sem stendur öllum ríkjum opin. Mörg þátt­töku­ríki fagna verk­efn­inu vegna auk­inna kín­verskra fjár­fest­inga þar sem mörg hver þeirra hafi þörf á að byggja upp inn­viði sína, til dæmis hafnir, lestar­teina, hrað­brautir eða flug­velli.

Enn fremur gæti þátt­taka aukið hraða við­skipta á milli þátt­töku­ríkj­anna við Kína og önnur lönd og þar með verið löndum til bóta. Talsmenn verk­efn­is­ins segja að það geti gert ríkjum kleift að þróa hag­kerfi sín og jafn­vel dregið úr fátækt.

Varðandi hvað þátt­taka myndi þýða fyrir Ísland og hvaða breyt­ingar það hefði í för með sér segir Jin Zhijian, sendi­herra Kína á Íslandi, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, að Belti og braut geti þjónað sem nýr vett­vangur og veitt kín­versk-íslenskri sam­vinnu ný tæki­færi. Þátttaka Íslands myndi styrkja tengsl á milli land­anna. Með stuðn­ingi Beltis og brautar, AIIB og Silki­vegs­sjóðs­ins gætu Kína og Ísland unnið betur saman með því að byggja tengsla­net á sjó, lofti og á Netinu, auk þess að byggja inn­viði fyrir ferða­menn, koma á sigl­inga­leiðum um Silkiveg norð­ur­slóða, beinu flugi og 5G-sam­skipta­kerfi.

Sendi­herr­ann segir að þátt­taka Íslands gæti aukið sam­vinnu í við­skipta­lífi og verslun á milli land­anna tveggja. Það sé vegna þess að hag­vöxtur í Kína er stór hluti heims­hag­kerf­is­ins og þurfi kín­verski mark­að­ur­inn nú að mæta auk­inni eft­ir­spurn á vörum, þar á meðal á vörum frá Íslandi.

„Með batn­andi lífs­kjörum kjósa fleiri og fleiri Kín­verjar að ferð­ast utan land­stein­anna. Ísland hefur fengið auk­inn fjölda kín­verskra ferða­manna árlega sem hefur aukið þjón­ustu­við­skipti á Íslandi. Á sama tíma gæti Belti og braut stutt við frí­versl­un­ar­samn­ing land­anna okkar tveggja sem myndi efla vöxt tví­hliða við­skipta á vörum og þjón­ustu og sam­vinnu í net­verslun og auka tví­hliða fjár­fest­ingar,“ segir sendi­herr­ann.

Hvað græðir Kína á Belti og braut?

Kínversk stjórn­völd eru undir for­merkjum Beltis og brautar að fjár­festa í innviðum ann­arra ríkja til þess að vinna að mark­miðum verk­efn­is­ins og auð­velda allan inn- og útflutn­ing. Með auk­inni inn­viða­bygg­ingu í bæði nær- og fjær­ríkjum Kína mun flutn­ings­geta aukast og þar með gætu við­skipti Kína við önnur ríki auk­ist.

Ýmsir fræði­menn hafa bent á að kín­versk stjórn­völd vilji gera Kína tækni­vædd­ara og auka þróun ýmissa hér­aða rík­is­ins. Einka­neyslu þurfi einnig að auka til að halda uppi hag­vexti rík­is­ins og verk­efnið muni enn fremur styrkja gjald­miðil rík­is­ins. Aðrir telja að verk­efnið sé að mestu stra­tegískt, til að mynda í Ind­lands­hafi. Stærra net hafna í haf­inu tryggi Kína aðgengi að sjó­leiðum sem sé bráð­nauð­syn­legt fyrir ríki eins og Kína sem byggir sinn efna­hag á útflutn­ingi.

Alla frétta­skýr­ing­una má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins