„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óttast að taka rangar ákvarðanir

Hulda Björk Svans­dóttir hefur í þrjú ár barist fyrir því að sonur hennar, Ægir Þór, fái með­ferð við Duchenne-vöðva­rýrnun en alls staðar er komið að lok­uðum dyrum í heil­brigð­is­kerf­inu. Nú stendur Ægi mögu­lega til boða að taka þátt í til­rauna­með­ferðum bæði í Banda­ríkj­unum og Svíþjóð og fjöl­skyldan stendur því frammi fyrir því að þurfa að flytj­ast af landi brott í nokkur ár.

Óttast að taka rangar ákvarðanir

Báðar með­ferð­irnar sem Ægi standa mögu­lega til boða eru til­rauna­með­ferðir, er það ekk­ert ógn­vekj­andi til­hugsun að gera barnið sitt að til­rauna­dýri? „Jú, þú getur rétt ímyndað þér það,“ segir Hulda. „Það er mjög erfið til­hugsun. Það er margt sem getur farið úrskeiðis og öllum til­raunum fylgir auð­vitað áhætta. Gulrótin sem maður fær er að sjúk­ling­ur­inn fær lyfið sér að kostn­að­ar­lausu þangað til það kemur á markað, en þetta er rosa­lega erfið ákvörðun. Hvað er rétt að velja fyrir hann? Maður ótt­ast að taka rangar ákvarð­anir og eyði­leggja kannski fyrir honum aðra mögu­leika í fram­tíð­inni, það er erfitt að ná utan um þetta allt saman. Genatil­raun­irnar eru enn á algjöru frum­stigi, það eru svo mörg ef og margt sem ekki er vitað enn þá, sem er rosa­lega stór áhætta. En á sama tíma getur ávinn­ing­ur­inn líka verið mik­ill, hann gæti grætt tíu til fimmtán góð ár ef allt gengur vel. Og það eru mjög hraðar fram­farir í rann­sóknum á þessum sjúk­dómi þannig að eftir tíu til fimmtán ár gætu verið komnar fram enn þró­aðri gena­með­ferðir. Móð­ur­eðlið í mér vill nátt­úr­lega velja það sem er örugg­ast fyrir hann en hann gæti kannski grætt meira á gena­með­ferð­inni. Þannig að við stöndum frammi fyrir mjög erf­iðri ákvörðun þessa dag­ana.“

En þessar með­ferðir sem þið þurfið að taka ákvörðun um eru eina vonin fyrir Ægi? „Því miður er það þannig,“ segir Hulda og and­varpar. „Það er engin með­ferð fyrir hann hér á landi. Hér eru ekki gerðar neinar klínískar rann­sóknir, engar for­sendur fyrir þeim og eina lausnin sem for­eldrar hafa er að flytja úr landi. Það er sorg­legt að segja það en ef þú átt lang­veikt barn með sjald­gæfan sjúk­dóm er lítið hægt að gera hér á Íslandi. Það eru allir af vilja gerðir og ynd­is­legt fólk sem vinnur í heil­brigð­is­geir­anum en það getur ekk­ert gert fyrir mann. Von mín er að öll þessi bar­átta mín skili ein­hverju, að eitt­hvað breyt­ist svo fólk þurfi ekki að taka þennan slag sem ég hef staðið í í þrjú ár.“

Hægt er að lesa ítar­legra við­tal við Huldu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíða

Mótlætið styrkir mann
Innlentforsíða

Mótlætið styrkir mann

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er bjart­sýnn þrátt fyrir erf­iða stöðu tengda COVID 19-heims­far­aldr­inum. Hann seg­ist trúa því að Íslend­ingar muni koma hraðar til baka heldur en flestar aðrar þjóðir meðal ann­ars vegna þess að við höfum sjálf­stæðan gjald­miðil. Bjarni er mik­ill fjöl­skyldu­maður, nýorð­inn afi og hann notar úti­vist til að rækta lík­ama og sál. Spritt­brúsi stendur á skrif­borð­inu. Heims­far­ald­ur­inn...
Fór ekki í brjóstahaldara fyrr en á þingi
Innlentforsíða

Fór ekki í brjósta­hald­ara fyrr en á þingi

Guðrún Ögmunds­dóttir hefur alla sína ævi barist fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa og þeirra sem minna mega sín. Í sumar hlaut hún fálka­orð­una og á sunnu­dag­inn verður hún sæmd heið­urs­merki Sam­tak­anna ’78 fyrir bar­áttu sína. Hún seg­ist þakk­lát fyrir við­ur­kenn­ing­una en besta hrósið sé þegar fólkið sem hún hefur verið að berj­ast fyrir líti á hana sem eina úr hópnum.
Tekur slaginn fyrir náttúruna og dýrin í landinu
Innlent

Tekur slag­inn fyrir nátt­úr­una og dýrin í land­inu

Ragn­heiður Þor­gríms­dóttir, bóndi á Kúlu­dalsá í Hval­firði, hefur þurft að láta fella nítján hross síðan sum­arið 2007 vegna veik­inda sem hún telur stafa af flú­or­mengun frá álver­inu á Grund­ar­tanga. Hún höfð­aði mál gegn Norð­ur­áli vegna meng­un­ar­slyss sem varð í álver­inu árið 2006, tap­aði því fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á síð­asta ári og í síð­ustu viku stað­festi Lands­réttur dóm Hér­aðs­dóms og frí­aði Norðurál allri ábyrgð.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins