„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gósentíð í veðri flýtir bráðnun jökla

Tíð­ar­farið í ár flýtir enn fyrir bráðnun jökla. Fjórir smá­jöklar munu að lík­indum hverfa innan 10 ára og Snæ­fells­jök­ull að óbreyttu innan 30 ára.

Gósentíð í veðri flýtir bráðnun jökla
Oddur Sig­urðs­son

Samfara hlýn­andi lofts­lagi á þess­ari öld hefur orðið gríð­ar­leg breyt­ing á íslenskum jöklum. Hefur flat­ar­mál jökla á Ísland minnkað á síð­ast­liðnum 130 árum úr því að vera 12 pró­sent í 10 pró­sent af flat­ar­máli lands­ins. Um alda­mótin var heild­ar­flat­ar­mál jökla 11.082 fer­kíló­metrar en árið 2012 var það komið niður í 10.600.

Hlý­inda­skeið eins og við höfum upp­lifað und­an­farið ýtir enn frekar undir þessa þróun. „Það gerir það vissu­lega. Við sjáum það vel á jök­ul­ánum, þær eru að verða mjög miklar. Venju­lega eru þær vatns­mestar síðla sum­ars, þá er vetr­ar­snjór­inn að mestu horf­inn, snjór­inn er dökkur og tekur þar af leið­andi í sig meiri geislun. En þessi hiti flýtir öllu þessu ferli,“ segir Oddur Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur á sviði jökla­rann­sókna á Veð­ur­stofu Íslands. Hann býst við að jöklar lands­ins muni rýrna veru­lega í ár. „Breyti­leiki jökla er fyrst og fremst háður sum­ar­hita og úrkomu. Þetta var til­tölu­lega rýr vetur, úrkoma var ekki mikil og jökl­arnir bættu ekki miklu við sig. Þannig að jökl­arnir munu rýrna veru­lega í ár, það er ekk­ert vafa­mál.“

„Samfara hlýn­andi lofts­lagi á þess­ari öld hefur orðið gríð­ar­leg breyt­ing á íslenskum jöklum.“

Smá­jöklum fækkar hratt
Því hefur verið spáð með gildum rökum að jöklar Íslands verði í stórum dráttum horfnir eftir tvær aldir haldi fram sem horfir um hlýnun loft­hjúps jarðar. Nú þegar eru jökl­arnir farnir að týna töl­unni (sjá umfjöllun um Okjökul hér til hliðar) og því er spáð að Snæ­fells­jök­ull verði horf­inn fyrir árið 2050. Smá­jökl­arnir týna óðum töl­unni. „Þetta eru fyrst og fremst jöklar sem eru til­tölu­lega lágir og flatir. Til dæmis Hofs­jök­ull eystri sem er hér um bil að gefa upp önd­ina. Torfa­jök­ull er mjög tæpur orð­inn og Kalda­klofs­jök­ull og Þránd­ar­jök­ull. Ég efast um að Hofs­jök­ull og Kalda­klofs­jök­ull nái 10 árum,“ segir Oddur sem kort­lagði íslenska jökla um alda­mótin og svo aftur 2017. Margir þess­ara jökla eru horfnir. „Það eru 50 til 60 jöklar sem lifðu ekki af fyrstu tvo ára­tugi þess­arar aldar. Þetta eru allt smá­jöklar. Nema Ok, hann hvarf mjög hratt.“

Snæ­fells­jök­ull óðum að hverfa
Um síð­ast­liðna páska var vetr­ar­af­koma í Snæ­fellsjökli mæld í fyrsta sinn. Kom fram í færslu á Veð­ur­stofu Íslands að jök­ull­inn hafi rýrnað mjög í hlýn­andi lofts­lagi síð­ustu ára­tuga og er flat­ar­mál hans nú minna en 10 fer­kíló­metrar, en var um 22 fer­kíló­metrar árið 2010. Jök­ull­inn er að jafn­aði aðeins um 30 metra þykkur og því lík­legt að hann verði að mestu horf­inn um miðja þessa öld. Sú spá er gerð út frá þeim for­sendum að hita­stigið hækki um 2 gráður á þess­ari öld en sjálfur telur Oddur að hlýn­unin verði hrað­ari og að jök­ull­inn hverfi jafn­vel fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlíf

Glúmur segir Ingu Sæland hafa svikið sig: „Hefði orðið besti borgarstjóri aldarinnar“
InnlentMannlíf

Glúmur segir Ingu Sæland hafa svikið sig: „Hefði orðið besti borg­ar­stjóri ald­ar­innar“

Glúmur Bald­vins­son seg­ist hafa ving­ast við Ingu Sæland í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum en nú virð­ist sem slest hafi upp á vin­skap­inn. Glúmur, sem var einn skraut­leg­asti fram­bjóði síð­ustu alþing­is­kosn­inga, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann sagð­ist hafa ving­ast við Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Ræddi hann við Ingu um hann yrði í einu efsta sæti flokks­ins í...
Mannlíf frítt fyrir alla landsmenn! – Stútfullt helgarblað með brakandi og spennandi efni
InnlentMannlíf

Mannlíf frítt fyrir alla lands­menn! – Stút­fullt helg­ar­blað með brak­andi og spenn­andi efni

Mannlíf gefur til­baka! Mannlíf er á mik­illi upp­leið og hefur vef­ur­inn að und­an­förnu slegið hvert metið á fætur öðru í lestri. Mannlíf þakkar dyggum les­endum kær­lega fyrir. Við þökkum fyrir með því að gefa út vandað og frítt tíma­rit fyrir lands­menn. Mannlíf er frítt fyrir alla og við hlökkum til áfram­hald­andi sam­fylgdar. Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið...
Mannlíf frítt fyrir alla landsmenn! – Stútfullt helgarblað með brakandi og spennandi efni
InnlentMannlíf

Mannlíf frítt fyrir alla lands­menn! – Stút­fullt helg­ar­blað með brak­andi og spenn­andi efni

Mannlíf gefur til­baka! Mannlíf er á mik­illi upp­leið og hefur vef­ur­inn að und­an­förnu slegið hvert metið á fætur öðru í lestri. Mannlíf þakkar dyggum les­endum kær­lega fyrir. Við þökkum fyrir með því að gefa út vandað og frítt tíma­rit fyrir lands­menn. Mannlíf er frítt fyrir alla og við hlökkum til áfram­hald­andi sam­fylgdar. Smelltu hér til að lesa blaðið eða flettu...
Anders klórar kúnum bak við eyrun – Brakandi ferskt sérblað Mannlífs um íslenskan iðnað
InnlentMannlíf

Anders klórar kúnum bak við eyrun – Brakandi ferskt sér­blað Mannlífs um íslenskan iðnað

Kúa­bændur hjá Mýra­nauti gera allt til að gera dýrin ham­ingju­söm og róleg. Á Leirulæk, skammt fyrir utan Borg­ar­nes við ósa Langár, reka hjónin Hanna Sigríður Kjart­ans­dóttir og Anders Larsen Mýranaut. Þau rækta úrvals naut­gripi til kjöt­fram­leiðslu sem þau selja svo beint til neyt­enda. Hjónin leggja mikið uppúr því að halda geð­góða naut­gripi sem fæst með umhyggju og ræktun. Ein­stak­lingar í...
Mannlíf með yfir 100 þúsund lesendur
InnlentMannlíf

Mannlíf með yfir 100 þús­und les­endur

Mannlíf er á mik­illi upp­leið og hefur vef­ur­inn að und­an­förnu slegið hvert metið á fætur öðru í lestri þar sem hver stór­fréttin rekur aðra. Nýlegar náði fjöl­mið­il­inn yfir 100 þús­undur les­endur á dag og síðu­flett­ingar hátt í 300 þús­und tals­ins. Mannlíf hefur rofið múr­ana einn af öðrum á árinu, náði yfir 80 þús­und og síðar 90 þús­und. Nýlega náði Mannlífs...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins