„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hátt í tuttugu bæjar- og útihátíðir um allt land í dag

Versl­un­ar­manna­helgin, stærsta árlega ferða­helgi land­ans, er gengin í garð. Hátt í tutt­ugu bæjar- og úti­há­tíðir eru nú í fullu fjöri um allt land. Hátíð­ar­höld eru ekk­ert síðri í Reykja­vík á Inni­púk­anum en flestir ættu að finna sér eitt­hvað við sitt hæfi.

Hátt í tuttugu bæjar- og útihátíðir um allt land í dag
|Mynd: Myr­ar­bolti.com|Mynd: ein­medollu.is|

Inni­púk­inn heldur áfram í dag og kvöld á Granda. Hinn árlegi úti­fata­mark­aður verður hald­inn í dag á bryggj­unni við hátíð­ar­stað­ina Bryggjan Brugghús og Messinn Granda. Mark­að­ur­inn er opinn öllum og verður ýmis­legt í boði fyrir alla ald­urs­hópa. Dag­skrár­lið­ur­inn er því til­val­inn fyrir fjöl­skyldu­fólk. Í kvöld verða svo fjöl­breytt tón­list­ar­at­riði á svæð­inu sem skarta meðal ann­ars Friðrik Dór, GDRN og Hildi. Nánar um dag­skrána má sjá hér. Hægt er að kaupa miða á stakt kvöld en 20 ára ald­urs­tak­mark er á við­burð­inn. Arm­böndin er svo hægt að nálg­ast á hátíð­ar­svæð­inu frá kl 16:00 í dag.

Fyrri hluti úti­há­tíð­ar­innar á skemmti­staðnum SPOT í Kópavogi fer fram í kvöld. Greif­arnir og Siggi Hlö skipta með sér kvöld­unum. Miða­salan opnar kl 22:00 en einnig er hægt að tryggja sér miða á Tix.is, á stakt kvöld eða bæði kvöldin. Brekku­söngur SPOT fer svo fram sunnu­dags­kvöld og verður hann opinn öllum.

Þeir sem hyggj­ast ferð­ast út fyrir bæj­ar­mörkin í dag þurfa ekki að leita langt yfir skammt að helstu dag­skrár­liðum land­svæð­anna. Hér eru allir laug­ar­dags­við­burðir eftir lands­hlutum:

Fjölskylduvæn dagskrá á Vesturlandi

Helg­ar­dag­skrá Hraun­borgar í Gríms­nesi heldur áfram. Eins og alla daga helg­ar­innar verður boðið upp á sund­laugarpartý fyrir krakk­ana síð­degis. Þá verður sveita­mark­aður á tjald­svæð­inu, reipi­tog, minigolf­keppni og margt fleira fram eftir degi. Nánari upp­lýs­ingar má nálg­ast hér. 

Dagskrá Sæludaga í Vatna­skógi er þétt­setin en hátíðin er vímu­laus. Fræðslur, fjöl­skyldu­bingó, Wipe-out braut og krafta­keppni eru meðal dag­skrár­liða. Þá mun Páll Óskar troða upp í íþrótta­hús­inu í kvöld. Allar frek­ari upp­lýs­ingar ásamt miða­sölu má nálg­ast hér.

Harm­on­iku­há­tíð FHUR í Gríms­nesi er enn í fullu fjöri. Sér­stakir gestir hátíð­ar­innar munu halda uppi fjör­inu í dag, þær Ásta Soffía Þor­geirs­dóttir og Kristine Farstad Björdal. Tón­leikar þeirra fara fram í félags­heim­il­inu á Borg. Eftir tón­leik­ana verður sam­spil á svæð­inu, mark­aður og harm­on­iku­sölu­sýn­ing EG tóna í íþrótta­hús­inu. Um kvöldið verður dans­leikur á félags­heim­il­inu, þar sem Ásta Soffía og Kristine munu halda uppi stuð­inu.

Hin árlega fjöl­skyldu­há­tíð við flug­völl­inn í Múlakoti heldur áfram. Krakka­leikar, flug­keppni, brenna og kvöld­vaka eru meðal dag­skrár­liða. Nánari upp­lýs­ingar má nálg­ast hér.  

Mýrarbolti, Kjötsúpuhátíð og Gönguhátíð á Vestfjörðum

Í hádeg­inu fer fram Evr­ópu­meist­ara­mótið í Mýr­ar­bolta á Bol­ung­ar­vík. Leikmenn og áhorf­endur geta hitað sig upp í bjór jóga sem hefst 11:30. Eftir mótið sjálft verður hægt að skola af sér drull­una í sund­laugarpartýi og slaka á fyrir tón­leika kvölds­ins. Meðal lista­manna sem koma fram eru Flóni, Anton Líni og Þórdís Erla.

Kjöt­súpu­há­tíðin á Hesteyri fer fram í dag en þrjár sigl­ingar frá Bol­ung­ar­vík eru í boði yfir dag­inn. Eftir kjöt­súp­una verður boðið upp á kaffi og nýbak­aðar pönnu­kökur. Þá verður skemmti­leg dag­skrá fram eftir degi sem hentar öllum ald­urs­hópum. Um kvöldið verður gengið í fjöru þar sem tendr­aður verður varð­eldur og sungið yfir hafið. 

Göngu­há­tíðin í Súðavík heldur áfram og hófst dag­skráin í morgun með hafr­ar­graut, lifr­ar­pylsu og lýs­is­skammti. Tvær leiðir voru í boði og hófust þær báðar kl: 09:00. Þá verður síð­deg­is­ganga um þorpið í boði með leið­sögu­manni en nán­ari upp­lýs­ingar má finna hér. Sam­eig­in­legt grill verður um kvöldið í Ragga­garði. Á svæð­inu er fjöl­breytt leik­svæði fyrir yngri hátíð­ar­gesti. Fjörugt ball verður í fram­haldi og ókeypis er fyrir þá sem eru með göngu­arm­band. Aðrir gestir geta keypt sér miða við dyrnar.

Norðurland: Síldarævintýri, Ein með öllu og Norðarpaunk

Lifandi tón­list, prjóna­kaffi, forn­bíla­sýn­ing og Bjór­leik­arnir eru eitt af fjöl­mörgum dag­skrár­liðum í boði á Síldar­æv­in­týri á Siglu­firði í dag. Allar tíma­setn­ingar og nán­ari upp­lýs­ingar má nálg­ast á Facebook síðu hátíð­ar­innar. Þá verður Bryggju­söng­ur­inn á sýnum stað við smá­báta­höfn­ina í kvöld. Að því loknu mun Herra Hnetu­smjör og DJ Egill Spegill troða upp á Kaffi Rauðku.

Á Akureyri fer fram hátíðin Ein með öllu. Allir ættu að finna sér eitt­hvað við hæfi en yfir dag­inn verða tón­leikar, mark­aður, Einar Mikael töfra­maður og margt fleira í boði. Hátíð­ar­dag­skrá mið­bæj­ar­ins er þétt setin og er Svala Björg­vins, Omotrack og Soffía Ósk meðal lista­manna. Helg­ar­dag­skrána má finna hér. 

Tón­list­ar­há­tíðin Norð­an­paunk er hafin á Laug­ar­bakka í Vestur-Húna­vatns­sýslu. Þar munu 50 hljóm­sveitir koma fram. Meðal þeirra eru Norna­hetta, Mass Kælan Mikla og Korter í flog. Hátíðin er fyrir alla ald­urs­hópa en mælt er með eyrna­hlífum fyrir yngstu kyn­slóð­ina. 

Austurland: Neistaflug og Unglingalandsmót UMFÍ

Mynd úr safni

Neista­flug á Nes­kaup­stað er hátíð fyrir alla fjöl­skyld­una. Árlega Barðs­nes­hlaupið hófst í morgun en af nógu er að taka fram eftir degi. Leik­hóp­ur­inn Lotta, úti­mark­aður, sápu­bolti og margt fleira er að finna í dag­skránni í dag. Partý­bingó og tón­leikar fara svo fram í kvöld þar sem Einar Ágúst, Matti Matt og Papar munu sjá um skemmt­ana­hald. Nánari upp­lýs­ingar um miða­verð og dag­skrá má sjá hér. 

Ung­linga­lands­mót UMFÍ heldur áfram í dag í Höfn í Horna­firði. Ásamt fjöl­mörgum keppn­is­greinum sem er hægt að fylgj­ast með er boðið upp á göngu­ferð með leið­sögn í dag, Leikja­torg fyrir yngri áhorf­endur, sund­laugap­artý og margt fleira. Daglega kvöld­vakan heldur áfram en Bríet og Daði Freyr munu halda utan um skemmtun kvölds­ins. 

Suðurland: Þjóðhátíð í Eyjum og Flúðir um Versló

Dagskrá Þjóð­há­tíðar í Eyjum hófst í gær en af nógu er að taka um helg­ina. Meðal tón­list­ar­manna sem halda uppi stuð­inu í kvöld er Jón Jónsson, Friðrik Dór og FM95Blö. Á mið­nætti fer svo fram flug­elda­sýn­ingin en DJ Muscleboy mun svo halda uppi stuð­inu fram­eftir nóttu. Upp­lýs­ingar um dag­skrá og miða­kaup má nálg­ast hér.

Trakt­ora­tor­færan í Torfdal fer fram í dag á hátíð­inni Flúðir um Versló. Barna- og fjöl­skyldu­skemmt­anir halda svo áfram í Lækj­ar­garði í dag. Um kvöldið mun Eyþór Ingi taka alla bestu rokkslag­ara átt­unda ára­tug­ar­ins á félags­heim­il­inu. Fyrir nán­ari upp­lýs­ingar er bent á Facebook síðu hátíð­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins