„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lambakjöt til útlanda á mun lægra verði en íslenskum neytendum stendur til boða

Lambakjöt til útlanda á mun lægra verði en íslenskum neytendum stendur til boða
Mynd úr mynda­banka

Skortur á lambakjöti í íslenskum verslunum er sagður stafa af því að kjötið er flutt til útlanda í stórum stíl. Verðið á kjötinu erlendis er mun lægra en íslenskum neytendum stendur til boða.

Félag atvinnu­rek­enda hefur sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu (SE) erindi og farið fram á að eft­ir­litið taki til skoð­unar bæði hátt­semi afurða­stöðva, sem leitt hefur til fyr­ir­sjá­an­legs skorts á lamba­hryggjum í versl­unum, og við­brögð stjórn­valda við fyr­ir­sjá­an­legum skorti. Greint er frá þessu á vef Félags atvinnu­rek­enda.

Í erind­inu er bent á að yfir­vof­andi skortur eigi ekki rætur sínar að rekja til óvenju­mik­illar neyslu lands­manna á lamba­kjöti eða fram­leiðslu­brests, heldur til  stór­tæks útflutn­ings afurða­stöðva á lamba­kjöti til útlanda á verði sem er mun lægra en íslenskum versl­unum stendur til boða. „Slíkur útflutn­ingur hefur því skapað skort á lamba­kjöti sem hefur leitt til hækk­unar á verði á lamba­kjöti í inn­lendum versl­unum, neyt­endum til tjóns. Yfir­vof­andi skortur hefur verið ljós í marga mán­uði enda barst [atvinnu­vega]ráðu­neyt­inu beiðni um tíma­bund­inn inn­flutn­ings­kvóta í apríl á þessu ári frá inn­flutn­ings­að­ilum en ekk­ert var aðhafst fyrr en nú.“

Er þess farið á leit við Sam­keppn­is­eft­ir­litið að hafin verði rann­sókn á hátt­semi þeirra afurða­stöðva sem hlut eiga að máli, enda sé hátt­semin gagn­gert til þess fallin að stuðla að skorti og verð­hækk­unum hér á landi. Þá vill Félag atvinnu­rek­enda láta rann­saka hvort kjöt­af­urð­irnar hafi verið und­ir­verð­lagðar í útflutn­ingi til þess að skapa inn­lendan skort, gagn­gert til að halda verð­lagi hér á landi uppi.

Líklegt er því að á næstu vikum verði skortur, með til­heyr­andi verð­hækk­unum á grill­kjöti land­ans …

Enn fremur er biðlað til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að rann­saka hvort afurða­stöðv­arnar hafi beitt blekk­ingum þegar ráðu­neytið athug­aði hvort skortur væri yfir­vof­andi.

Um leið er kvartað yfir hátt­semi hins opin­bera og seina­gangi í við­brögðum stjórn­valda við yfir­vof­andi skorti á lamba­kjöti. Í erind­inu segir: „Augljós teikn voru á lofti um fyr­ir­hug­aðan skort á lamba­kjöti strax í vor, enda fóru inn­flutn­ings­að­ilar þess á leit við ráðu­neytið í apríl að heim­ila tíma­bund­inn inn­flutn­ings­kvóta á lamba­kjöti en þeirri beiðni var hafnað. Seina­gangur stjórn­valda hefur því leitt til þess að inn­flytj­endur munu ekki geta veitt inn­lendri fram­leiðslu jafn­mikla sam­keppni og ef stjórn­völd hefðu brugð­ist strax við. Opinn toll­kvóti, sem ráð­gjaf­ar­nefnd um inn- og útflutn­ing land­bún­að­ar­vara hefur nú lagt til að ráð­herra gefi út, gildir aðeins í einn mánuð. Tíma tekur fyrir inn­flutn­ings­fyr­ir­tæki að finna kjöt til inn­flutn­ings, sér­stak­lega af því að það þarf að hafa verið í frysti í 30 daga, en afnám frysti­skyldu á inn­fluttu kjöti kemur ekki til fram­kvæmda fyrr en í byrjun nóv­em­ber. Líklegt er því að á næstu vikum verði skortur, með til­heyr­andi verð­hækk­unum á grill­kjöti land­ans, en um það leyti sem inn­flytj­endum tekst að koma inn­fluttu lamba­kjöti á markað, verði slát­ur­tíð um það bil að hefj­ast.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins