„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ástarmóðirin“ sem ættleiddi 118 börn dæmd í 20 ára fangelsi

„Ástarmóðirin“ sem ættleiddi 118 börn dæmd í 20 ára fangelsi
Ást­ar­móð­irin Li Yanxia.

54 ára gömul kínversk kona sem hafði öðlast frægð og frama fyrir meinta umhyggju sína gagnvart börnum, var á dögunum dæmd í 20 ára fangelsi fyrir ýmiss konar fjárplógsstarfsemi.

Saga Li Yanxia er um margt lygi­leg. Hún öðl­að­ist frægð árið 2006 þegar kín­verskir fjöl­miðlar fjöll­uðu um mann­úð­ar­störf hennar í heimabæ sínum Wu´an, en þar hafði hún ætt­leit og skotið skjóls­húsi yfir tugi barna.

Hún sagð­ist þá vera frá­skilin og að fyrrum eig­in­maður hennar hafi selt son þeirra í hendur glæpa­gengis. Henni hafi hins vegar tek­ist að end­ur­heimta son sinn og þá hafi hún ein­sett sér að því að hjálpa öðrum börnum. Í gegnum árin hafi henni áskotn­ast auður sem hún not­aði til að kaupa námu­fyr­ir­tæki og þegar hún sá umkomu­lausa stúlku nærri námunni ákvað hún að taka hana að sér. „Faðir hennar hafði látið lífið, móðir hennar strauk í burtu….þannig að ég tók hana að mér. Hún var fyrsta barnið sem ég ætt­leiddi,“ er haft eftir Li í stað­ar­blað­inu Yanzhao Metropolis Daily.

Þessi umhyggja hennar vatt svo upp á sig og ætt­leiddi hún tugi barna. Hún setti á fót mun­að­ar­leys­ingja­hæli sem kall­að­ist „Ást­ar­þorpið“ og var hún fyrir vikið kölluð „Ást­ar­móð­irin“. Á hápunkti starf­sem­innar, árið 2017, bjuggu 118 börn á mun­að­ar­leys­ingja­hæl­inu. Kín­verskir fjöl­miðlar fjöll­uðu mikið um starf­sem­ina og fyrir vikið var fjöldi fólks til­bú­inn að leggja starf­sem­inni lið með fjár­fram­lögum.

En ekki var allt sem sýnd­ist. Lög­reglu­yf­ir­völdum fór að ber­ast ábend­ingar um að ekki væri allt með felldu í starf­sem­inni. Í maí í fyrra fann lög­reglan háar fjár­hæðir inni á banka­reikn­ingum Li, and­virði 2,4 millj­óna króna í doll­urum og hvorki meira né minna en and­virði 355 millj­óna króna í júan. Hún átti sömu­leiðis safn glæsi­bif­reiða á borð við Land Rover og Mercedes Benz.

Við nán­ari rann­sókn kom í ljós að Li hafði stundað hvers kyns fjár­plógs­starf­semi allt frá árinu 2011, meðal ann­ars fjár­kúgun. Þannig sig­aði hún hinum ætt­leiddu börnum á bygg­inga­svæði til að stöðva vinnu verk­taka og sagði þeim meira að segja að leggj­ast undir vinnu­vél­arnar. Svo heimt­aði hún fé frá verk­taka­fyr­ir­tækj­unum svo að þau gætu haldið vinnu sinni áfram. Einnig er hún sögð hafa stungið fram­lögum til Ást­ar­þorps­ins í eigin vasa.

Þegar Li var hneppt í varð­hald voru 74 börn í hennar umsjá. Þeim hefur verið komið fyrir á við­eig­andi stofn­unum.

Li var svo í vik­unni dæmd í 20 ára fang­elsi og gert að greiða and­virði 48 millj­óna króna í sekt. 15 aðrir sam­verka­menn hlutu einnig dóma, þar á meðal kær­asti hennar sem hlaut 12 og hálfs árs fang­els­is­dóm og sekt sem nemur 30 millj­ónum króna.

BBC greinir frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins