„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Miðflokkurinn uppfullur af hættulegum mini-Trumpum

Miðflokkurinn uppfullur af hættulegum mini-Trumpum

Leiðarahöfundur Fréttablaðsins segir hættuleg öfl á sveimi í íslensku þjóðfélagi og rekur þau flest til Miðflokksins.

„Hættuleg ölf eru á sveimi í íslensku þjóð­fé­lagi og opin­bera sig hvað eftir annað,“ segir í upp­hafs­orðum leið­ara Kol­brúnar Berg­þórs­dóttur. Tilefnið er að gagn­rýni á til­lögu Íslands sem sam­þykkt var í Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem kraf­ist var rann­sóknar á aftökum án dóms og laga í Fil­ipps­eyjum.

Kolbrún segir að fyr­ir­fram hefði mátt ætla að óhugs­andi væri að ein­stak­lingar hér á landi „tækju sér stöðu með stjórn­völdum sem hafa þá mark­vissu stefnu að myrða þegna sína“. En hið ótrú­lega hafi gerst og það sé ugg­væn­legt að vita af ein­stak­lingum sem hlaupa í vörn fyrir for­seta Fil­ipps­eyja.

Einn stjórn­mála­flokka lands­ins, Mið­flokk­ur­inn, er eins og snýttur út úr nösinni á Trump.

Kolbrún minn­ist einnig á Donald Trump í leið­ara sínum. Hann hafi í emb­ætti hat­ast við alla minni­hluta­hópa og nýleg ummæli hans um hör­unds­dökkar þing­konur hafi opin­berað ras­isma hans og magnað upp kyn­þátta­hatur á meðal stuðn­ings­manna. Þar að auki beri stjórn hans ábyrgð á því að börn flótta­manna séu aðskilin frá for­eldrum sínum við landa­mærin og þau látin aðhaf­ast við ómann­úð­legar aðstæður í sér­stökum búðum. „Enginn ein­stak­lingur með vott af sið­ferð­is­kennd ætti að geta afsakað slíkt en það vefst ekki fyrir ein­hverjum Íslend­ingum,“ skrifar Kolbrún og horfir þar sér­stak­lega til Mið­flokks­ins.

„Einn stjórn­mála­flokka lands­ins, Mið­flokk­ur­inn, er eins og snýttur út úr nösinni á Trump. Þar eru mini-Trumpar á svo að segja öllum póstum. Þar er þing­maður sem hleypur í vörn fyrir Duterte og þar er for­maður sem nýlega gerði lítið úr hinni sænsku Gretu Thunberg í blaða­grein. Áherslur flokks­ins eru allar æði Trumps-legar. Hættuleg öfl eru á sveimi í íslensku þjóð­fé­lagi og hreiðra um sig á ýmsum stöðum. Við­vör­un­ar­ljósin blikka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins