„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjónabandið byggt á hagkvæmnissjónarmiðum frekar en ástríðu og eldheitri ást

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar skýtur föstum skotum að VG og segir flokk­inn bera ábyrgð á ómann­úð­legri stefnu í útlend­inga­lögum.

Hjónabandið byggt á hagkvæmnissjónarmiðum frekar en ástríðu og eldheitri ást
Logi Ein­ars­son. Mynd/Hallur Karlsson.

Logi Ein­ars­son skrifar grein í Frétta­blaðið þar sem hann gerir brott­vísun barna að umræðu­efni. Segir hann að nýlegar yfir­lýs­ingar um rýmkaðar reglur séu í sjálfu sér ánægju­legar þótt þær feli ekki í sér var­an­lega lausn á mál­efnum flótta­barna. Til að svo sé þurfi meiri­háttar stefnu­breyt­ingu.

Bendir Logi á að enn sé heim­ilt að senda börn til óör­uggra landa og enn alvar­legra sé að börn fái ekki sjálf­stæða máls­með­ferð. „Tekin er afstaða til umsókna for­eldra um vernd og síðan dregin sú ályktun að það sé barn­inu fyrir bestu að fylgja for­eldrum. Krafan er að staða barna sé metin sér­stak­lega og þau fái þannig notið eigin mann­rétt­inda.“

Ég geri mér grein fyrir því að hjóna­band VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins byggir frekar á hag­kvæmn­is­sjón­ar­miðum en ástríðu og eld­heitri ást. En það þving­aði þau eng­inn í þetta sam­band…

Logi rifjar upp að haustið 2017 hafi for­menn flokk­anna gert sam­komu­lag um að ráð­ast í end­ur­skoðun útlend­inga­laga og fram­kvæmd þeirra. Árangur af þverpóli­tískri þing­manna­nefnd sé hins vegar eng­inn. Ekki aðeins hafi núver­andi sleif­ar­lag verið látið við­gang­ast, heldur hafi rík­is­stjórnin afgreitt útlend­inga­lög í apríl sem gangi enn lengra í átt að ómann­úð­legri stefnu og liðkað fyrir brott­vísun barna. „Auknir fjár­munir og allur heims­ins fag­ur­gali duga því skammt ef mein­ingin er að herða enn á ómann­úð­legri stefnu.“

Að lokum beinir Logi spjótum sínum að VG.

„Ég geri mér grein fyrir því að hjóna­band VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins byggir frekar á hag­kvæmn­is­sjón­ar­miðum en ástríðu og eld­heitri ást. En það þving­aði þau eng­inn í þetta sam­band og þau bera því fulla ábyrgð á þeim slæmu mála­miðl­unum sem í því eru gerð. VG á því tvo leiki í stöð­unni: Að knýja fram mann­eskju­legar úrbætur á mál­efnum flótta­fólks eða gera stefnu VG í mála­flokkum full­kom­lega marklausa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins