„Þetta er hlutur sem hefur byrjað smátt og smátt, haldið áfram og svo er þetta orðið það umsvifamikið að það er farið að skemma götumynd hverfisins,“ sagði Jón Pálmi í samtali við Vísi. Sérstök ákvæði eru um framkvæmd og uppsetningu skjólveggja í deiliskipulagi hverfisins
Skjólveggirnir hafa staðið í talsverðan tíma og „eru í hróplegu ósamræmi við deiliskipulag og til þess fallnir að rýra götumynd hverfisins,” eins og segir í erindinu. „Farið er fram á að Garðabær bregðist nú þegar við óleyfisframkvæmdum og sjái til þess að þessum málum sé komið í lag.”
Urriðaholt ehf. þróaði skipulag og hugmyndafræði hverfisins í samráði við Garðabæ. Þá var fyrirtækið upphaflegur eigandi landsins sem hverfið reis á.




















Athugasemdir