„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eva Joly hlaut viðurkenningu fyrir afrek sín í baráttu gegn spillingu

Eva Joly, rann­sókn­ar­dóm­ari og Evr­ópu­þing­kona, hefur hlotið Anderson-Lucas-Norman verð­launin fyrir afrek sín í bar­áttu gegn spill­ingu. Hún hefur barist gegn hæstu valda­stigum í við­skiptum og póli­tík. Tax Justice Network greinir frá.

Eva Joly hlaut viðurkenningu fyrir afrek sín í baráttu gegn spillingu

Eitt eft­ir­minni­leg­asta mál Joly er rann­sókn hennar á fjársvikum franska olíu­fyr­ir­tæk­is­ins Elf Aquitaine. Fyr­ir­tækið var þá í eigu franska rík­is­ins. The Guardian lýsti því sem „stærsta spill­ing­ar­máli í Evrópu eftir síð­ari heims­styrj­öld­ina.” Þrátt fyrir morð­hót­anir hélt Joly áfram með rann­sókn­ina. Hún afhjúpaði þónokkur svik sem leiddu til sak­fell­ingu tugi ein­stak­linga sem voru tengdir olíu­fyr­ir­tæk­inu.

Joly rann­sak­aði einnig Bernard Tapie, fyrr­ver­andi ráð­herra þétt­býl­is­mála í Frakk­landi, fyrir spill­ingu. Rann­sóknin leiddi til hand­töku Tapie.

Tók upp hanskann fyrir íslenskan almenning í Icesave-málinu

Joly hefur tekið þátt í mörgum alþjóð­legum verk­efnum og hefur meðal ann­ars ráð­lagt rík­is­stjórn Íslands í rann­sóknum á skatt- og fjársvikum hér­lendis. Hún tók upp hansk­ann fyrir íslenskan almenn­ing í Icesave mál­inu eftir hrun. Í við­tali við hol­lenska blaðið Nrc Hand­els­blad vakti hún athygli á því að bank­arnir, sem nán­ast stefndu Íslandi í þrot, hafi all­ir verið í einka­eigu. Meiri­hluti ís­lensku þjóðar­inn­ar hafi ekki komið þar nærri. Hins veg­ar séu skuld­ir bank­anna nú orðnar að skuld­um rík­is­ins og hafi því áhrif á alla. Hún sagði þetta „þjófnað á al­manna­fé.“

Þá sagði hún hol­lensk­a eft­ir­lits­að­ila hafi verið kæru­laus­ir þegar að kom að því að kanna hvort eft­ir­lits­að­ilar á Íslandi væru að vinna vinn­una sína varð­andi Ices­a­ve. Þeir hafi ekki gert það. Hol­lend­ing­ar hafi þá reynt að fela mis­tök sín með því að vísa til laga­legr­ar skyldu Íslend­inga hvað varðar Ices­a­ve-reikn­ing­ana.

Hún lýsti yfir áhyggjur af fólks­flótt­anum og biðl­aði til Hol­lend­ing­a að koma til móts við Íslend­inga „Fólks­flótt­inn er byrj­aður. Átta þús­und vel mennt­aðir ein­stak­ling­ar hafa þegar yf­ir­gefið eyj­una og fleiri munu fylgja í kjöl­farið. Það er ekki okk­ar hag­ur að ganga nærri Íslandi. Landið á gjöf­ul­ar nátt­úru­auð­lind­ir og stað­setn­ing þess mik­il­væg. Við ætt­um ekki að kúga þá held­ur semja við þá, á mun betri og þroskaðri hátt held­ur en hingað til,“ sagði Joly í við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins